Bændablaðið - 11.05.2017, Side 31

Bændablaðið - 11.05.2017, Side 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 www.n1.is facebook.com/enneinn Cofra Powerhide leðurhanskar Vnr. 7151 G120 KD00 Endingargóðir leðurhanskar með laska. Stærðir: 10-11. Microflex regngalli Vnr. 5790 6919356 Regnkuldagalli. Litur: Dökkblár/ljósblár. Dunlop Purofort stígvél Vnr. 9655 D460933 Dunlop Purofort professional stígvél eru létt á fæti og með höggdeyfi í sóla. Litur: Grænn. Stærðir: 37-48. Dimex úlpa vattfóðruð Vnr. 9609 6691 Dimex úlpa, vattfóðruð. Litur: Svartur. Stærðir: XS -3XL. Þjarkur samfestingur Vnr. 9628 120020 Þunnur samfestingur með hnjápúðavösum. Litur: Dökkblár/kóngablár. Fristads flannelskyrta Vnr. 9613 104986 Köflótt skyrta úr 100% bómull. Litir: Bláköflótt og svartköflótt. Stærðir: S-3XL. Fristads mittisbuxur Vnr. 9613 P154280 Sterkar og endingargóðar buxur með vösum á lærum. Litir: Svartur, grár og blár. Stærðir: 44-64. Portwest samfestingur fyrir börn Vnr. 9657 C890 Endingargóður galli fyrir kröftuga krakka. Litur: Dökkblár. Stærðir: 4/5 - 6/7 - 8/9 - 10/11 - 12/13 - 14/15. Verslanir N1 um land allt Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574 Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245 Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127 E N N E M M / S ÍA / N M 8 1 3 3 2 Vertu til er vorverkin kalla 5x20 N1 ástæðuna vera þá að brunanóttina hafi verið strekkingsvindur úr vestri og því hafi enginn reykur borist inn í íbúðarhúsið til að byrja með. Það var ekki fyrr en eldur var kominn í þak tengibyggingarinnar – og slökkviliðið komið á staðinn – sem reykskynjari fór af stað í húsinu. Reykskynjararnir í útihúsunum voru samtengdir skynjurum í tengibyggingunni, en Júlíus heyrði aldrei í þeim. Hann dregur þann lærdóm af reynslu sinni að það þurfi að halda ráðstefnu þar sem meðal annars tryggingafélögin, slökkvilið, lögregla og jafnvel björgunarsveitir ættu aðkomu. Þar þyrfti að ræða hvernig bregðast skuli við aðstæðum sem geta komið upp eins og í dæmi Júlíusar – þar sem fólk stendur eitt eftir í sárri þörf eftir aðstoð. Brunavarnarátak í dreifbýli Guðmundur Hallgrímsson, sem starfar meðal annars í Slökkviliði Borgarbyggðar, vann verkefni á árunum 2006 til 2012 með Búnaðarsamtökum Vesturlands sem kallast Brunavarnarátak í dreifbýli. Hann gerði grein fyrir því verkefni auk þess að segja frá nokkrum stórum verkefnum sem Slökkvilið Borgarbyggðar hefur þurft að ráðast í vegna gróðurelda. Hann ræddi líka um varnir gegn gróðureldum. Guðmundur sagði að aðdragandinn að verkefninu hefði verið sá að nokkrir stórbrunar höfðu orðið á undanförnum árum og mikilvægt hefði verið að skoða brunavarnir til sveita og taka saman á skipulagðan hátt upplýsingar sem kæmu að gagni ef það kæmi upp eldur. Sveitarfélög eigi að sjá um brunavarnir til sveita, en það sé víða ábótavant. Því hafi Búnaðarsamtök Vesturlands farið af stað með verkefnið þar sem um mikið hagsmunamál væri að ræða fyrir bændur og gert samkomulag við þau sveitarfélög sem vildu taka þátt í verkefninu. Sveitarfélögin greiddu þá fasta upphæð fyrir hvert lögbýli í sveitarfélaginu, akstur og einnig vinnu við frágang á upplýsingamöppu. Verkefnið gekk í reynd út á að heimsækja bændur, skrá niður allar nauðsynlegar upplýsingar; eins og hvaða byggingarefni væri í húsunum, aðkomu að bænum, hvar væri hægt að komast í vatn til dælingar, vegalengdir og hæðarmunur. Ef ekki væri vatn fyrir hendi, hvert væri styst að sækja vatn með tankbíl eða haugsugu. Farið var yfir flóttaleiðir, bæði í íbúðarhúsum og gripahúsum. Einnig hvað fólkið á bænum gæti gert á meðan beðið væri eftir slökkviliðinu. Upplýsingamöppur í slökkviliðsbílana Útbúin var mappa með öllum þessum nauðsynlegu upplýsingum, en þar var einnig loftmynd af bænum, öll hús merkt og skráðar allar upplýsingar um hvert fyrir sig og hvað bæri að varast fyrir slökkviliðsmenn, en möppurnar fóru svo í slökkviliðsbílana á svæðunum. Þau slökkvilið sem eru með tölvu í bílunum fengu upplýsingarnar á disk og geta menn skoðað aðstæður á leiðinni á brunastað. Guðmundur sagði að í þessum heimsóknum hafi norskt brunaviðvörunarkerfi fyrir útihús verið haft meðferðis til skoðunar fyrir bændur. Um reyksogskerfi er að ræða og sagði Guðmundur að slík kerfi væru einu viðvörunarkerfin sem væru samþykkt í Noregi, vegna þess að það væru einu kerfin sem virkuðu almennilega. Mikið öryggi sé í því að hafa viðvörunarkerfi vegna þess að það er frumskilyrði að komast að því sem allra fyrst ef eldur er laus. Að sögn Guðmundar voru 500 lögbýli heimsótt á Vesturlandi og tóku sex sveitarfélög þátt í verkefninu. Dýravelferð og brunavarnir Síðust á mælendaskrá var Elísabet Hrönn Fjóludóttir, héraðsdýralæknir í Vesturumdæmi Matvælastofnunar, en hún fjallaði um brunavarnir í landbúnaði og velferð dýra. Hún byrjaði á því að fara yfir helstu eldsvoðana í gripahúsum frá árinu 2004 til að sýna að brýn nauðsyn væri að fara gera eitthvað róttækt í brunavörnum til sveita. Í yfirliti Elísabetar kom fram að árið 2004 drápust 600 fjár, árið 2005 drápust 3.600 hænur, árið 2006 brunnu 40 nautgripir inni, árið 2008 urðu þrír stórir eldsvoðar þar sem 420 nautgripir drápust og 4.000 hænur, árið 2015 drápust dúfur í bruna í Hafnarfirði og svo á síðasta ári bruninn á Austurlandi þar sem ellefu nautgripir drápust. Hún sagði að af 98 fjósum í Vesturumdæmi séu einungis 3–4 fjós með viðurkennd brunaeftirlitskerfi í formi reyksogskerfis. Víða í gripahúsum sé frauðplast notað til að einangra þök og víða sést í bert frauðplastið. Þetta sé mjög slæmt því þegar frauðplastið brennur geti það lekið fljótandi niður á hold gripanna og brennt þá lifandi. Áleinangrun hafi þó aðeins verið að aukast sem innri klæðning í stað frauðplastsins. Þá ræddi hún um lagaumhverfið í tilliti dýravelferðar. Lög um velferð dýra segðu skýrt til um það í 29. grein um aðbúnað dýra, að umráðamaður dýra skuli tryggja að dýr séu haldin í umhverfi sem samræmist sjónarmiðum um velferð dýra, meðal annars hvað varðar öryggi þeirra. Í 30. grein um byggingar og búnað segði að húsnæði, innréttingar, girðingar og annar búnaður sem ætlaður sé dýrum skuli þannig úr garði gerður að tekið sé tillit til þarfa og öryggis dýranna hvað varðar fóðrun, atferli, hreyfingu, rýmisþörf, hvíld og annan aðbúnað, svo sem loftgæði, lýsingu, hljóðvist og efnisnotkun. Einnig skal þess gætt að dýrum stafi engin slysahætta af aðstæðum sem þeim eru búnar eða hætta skapist á því að dýrin geti orðið innikróuð eða bjargarlaus í neyð. Þetta séu lög sem byrjað var almennilega að vinna eftir á árinu 2015. Í reglugerðum um velferð dýra er mjög mismunandi tekið á brunavörnum, eftir því hvaða dýrategund á í hlut. Þannig er einungis í reglugerð um velferð gæludýra ákvæði um viðvörunarbúnað. Reglugerð um velferð hrossa og nautgripa kveða einungis á um að auðvelt skuli vera að rýma hús. Reglugerðir um velferð sauðfjár og geita, svína og alifugla minnast ekki að neinu leyti á brunavarnir. Skýringin á því segir Elísabet vera sú að talið var að almennar byggingarreglugerðir taki til brunavarna fyrir dýrahús. Sú sé ekki raunin. Brunavarnir í útihúsum utan regluverks eftirlitsins Elísabet sagði að lokum til umhugsunar að greinilegt væri að regluverkið næði ekki almennilega utan um brunavarnir í gripahúsum. Reglulegt eftirlit með brunavarnarmálum vanti þar. Hún spyr hver eigi að sjá um það, því Matvælastofnun sé einungis ætlað að sjá um eftirlit með dýrunum og reyndar er þá farið yfir neyðarrýmingu í gripahúsunum. Hún sagði að slökkvilið þyrftu að æfa björgun á stórgripum og fjarlægja þurfi frauðplast úr öllum gripahúsum. Hjálpa þurfi bændum að breyta og bæta brunavarnir. Í reglugerðum þyrftu að vera kröfur um að viðvörunarkerfi skuli vera til staðar í nýjum gripahúsum – sem yfirleitt séu annars vel tölvuvædd. /smh Guðmundur Hallgrímsson. Elísabet Hrönn Fjóludóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.