Bændablaðið - 11.05.2017, Side 32

Bændablaðið - 11.05.2017, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Carlo Petrini, stofnandi og forseti Slow Food-hreyfingarinnar, er á leið til landsins. Hann kemur hingað í boði Slow Food Reykjavík sem skipuleggur heimsóknir fyrir hann í Háskóla Íslands og til bænda og smáframleiðenda sem hafa haldið hugsjónum Slow Food í heiðri. Að sögn Dominique Plédel Jónsson, formanns Slow Food Reykjavík, hefur Petrini átt boð inni hjá henni í ein fimm til sex ár, en það sé ánægjulegt að hann sjái sér fært að þiggja það nú. Hann sé vel meðvitaður um það góða orðspor sem litla Ísland eigi innan hreyfingarinnar, sem lengi hefur verið í fararbroddi meðal Norðurlandaþjóða. „Ísland hefur sett fjölda afurða um borð í Bragðörkina og svo höfum við barist fyrir því að fá skyrið og geitina inn í Presidia, þetta hlýtur allt að hafa vakið forvitni hjá honum að heimsækja landið,“ segir Dominique. Í Bragðörk Slow Food eru afurðir skráðar sem talið er að búi yfir sérstöku menningar- og hefðarverðmæti – sem ákveðin hætta er á að glatist. Slow Food Presidia stuðlar til að mynda að verndun á framleiðsluaðferðum, búfjárkynjum og vistgerðum sem hafa sérstakt gildi og eru í útrýmingarhættu. Framleiðendum og bændum er þannig hjálpað að þeir geti haldið áfram framleiðslu. „Þá hefur árangursrík barátta okkar gegn GMO (erfðabreyttri ræktun) vakið athygli og við höfum státað af virkum og ástríðufullum smáframleiðendum og matreiðslumeisturum á Salone del Gusto & Terra Madre í Torino á Ítalíu, sem er hátíð Slow Food og er haldin annað hvert ár,“ segir Dominique. Carlo Petrini mun þiggja gistingu á Hótel Sögu og málsverð á Grillinu í boði Bændasamtaka Íslands. Merkur ferill Stofnun Slow Food-hreyfingarinnar má rekja til andófs nokkurra ítalskra ungmenna gegn skyndibitavæðingunni árið 1986, en þá mótmæltu þau við Spænsku tröppurnar í Róm byggingu McDonald’s matsölustaðar sem þar var fyrirhuguð. Carlo Petrini var þar í broddi fylkingar og var kosinn fyrsti formaður hreyfingarinnar í París árið 1989 – þegar stefnuyfirlýsing Slow Food var undirrituð í París – og hefur leitt hana síðan. Í dag starfa deildir Slow Food í 150 löndum og eru félagar um 100 þúsund. Helsti boðskapurinn sem hreyfingin breiðir út um heiminn er að matur eigi að vera góður á bragðið, eigi að vera hreinn og ómengaður og að framleiðslu- og söluferlið sé sanngjarnt fyrir alla; framleiðandann, salann og neytandann. Það séu mannréttindi að borða góðan mat en ekki forréttindi. Blaðamaðurinn og rithöfund- urinn Carlo Petrini fæddist 1949 í smábænum Bra skammt frá Torínó á Norður-Ítalíu. Hann hefur margsinnis fengið viðurkenningu ýmissa fjölmiðla. Hann fékk meðal annars nafnbótina „European Hero“ hjá Time Magazine árið 2004 og The Guardian útnefndi hann árið 2008 meðal 50 einstaklinga sem gætu bjargað heiminum. Árið 2003, var hann sæmdur heiðursgráðu í menningarmannfræði við Istituto Universitario Suor Orsola Benincasa háskólann í Napolí og í maí 2006 hlaut hann heiðursnafnbót í hugvísindum frá University of New Hampshire (BNA) fyrir árangur í starfi sínu sem „byltingarkenndur boðberi [og] stofnandi háskólans í matargerðarlist“. Starf Carlo Petrini hefur einnig hlotið viðurkenningu háskólans í Palermo en árið 2008 var hann sæmdur heiðursgráðu í landbúnaðarvísindum við háskólann. Sameinuðu þjóðirnar útnefndu hann einn tveggja handhafa Champion of the Earth-verðlaunanna árið 2013 fyrir „innblástur og aðgerðir“ og árið 2016 var hann útnefndur sérstakur sendiherra FAO fyrir Evrópu í tengslum við alheimsátak stofnunarinnar sem kallast Ekkert hungur þar sem unnið er að því að útrýma hungri í heiminum. Afkastamikill rithöfundur Hann hefur gefið út fjölmargar bækur: The Case for Taste (2001); Slow Food Revolution (2005); Slow Food Nation: Why Our Food Should be Good, Clean and Fair (2007, þýdd úr ítölsku á ensku, frönsku, spænsku, þýsku, pólsku, portúgölsku, japönsku og kóresku); Terra Madre (2011, þýdd á ensku, frönsku og þýsku). Meðal síðustu verka hans má einnig nefna „Cibo e libertà. Slow Food: storie di gastronomia per la liberazione“ (2013), Un’idea di felicità sem hann skrifaði ásamt Luis Sepùlveda (Guanda 2014), og Voler bene alla terra (Giunti e Slow Food Editore 2014). Árið 2016 var „Buono Pulito e Giusto“ endurútgefin tíu árum eftir fyrstu prentun. /smh Forseti Slow Food á leið til Íslands – Carlo Petrini er merkur og margheiðraður leiðtogi Hrossabændur - hestamenn! Vantar hross til slátrunar á næstu vikum. Forðist biðlista í haust. Bjóðum tímabundið hækkað verð! Sláturpantanir í síma 480 4100. Sláturfélag Suðurlands Selfossi Keðju og tannhjóla sett í Polaris, 6x6 hjól. Verð samkeppnisaðilans um 130.000 kr. Okkar verð 67.800 kr. Á Salone del Gusto & Terra Madre hátíðinni haustið 2012 heilsaði Carlo Petrini m.a. upp á Gísla Matthías Auðunsson matreiðslumeistara og Hrefnu Frigg Guðmundsdóttur frá Ytri-Fagradal í eldhúsi baksviðs. Þar voru þau að elda og undirbúa Hvannarlamb frá Höllu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal fyrir gesti. Gísli er hér í miðju hópsins, en yst til

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.