Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Alls bárust Matvælastofnun 177 umsóknir um fjárfestingar- stuðning í nautgriparækt vegna fram kvæmda á árinu 2017, en umsóknarfresti lauk 31. mars sl. vegna framkvæmda á árinu. Af þeim voru 52 umsóknir vegna nýframkvæmda, og 125 umsóknir vegna endurbóta. Um er að ræða framkvæmdir þar sem kostnaður vegna nýframkvæmda er um 4 milljarðar kr. og vegna endurbóta um hálfur milljarður kr. Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014. Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd. Matvælastofnun vinnur þessa dagana við að fara yfir allar umsóknir og að sögn Jóns Baldurs Lorange, framkvæmdastjóra Búnaðarstofu Matvælastofnunar, sem hefur þetta verkefni með höndum, þá liggur mikil vinna í að yfirfara umsóknir og fylgiskjöl með þeim eins og gefur að skilja. Öllum umsóknum átti að fylgja rökstuðningur, vandaðar framkvæmda- og kostnaðaráætlanir, teikningar, byggingarleyfi o.fl. skv. reglugerð um stuðning við nautgriparækt nr. 1150/2016. Í reglugerðinni er kveðið á um að 40% af stofnkostnaði sé styrkhæfur en hámarksstyrkur (þak) getur mest orðið um 10% af heildarframlögum stuðningsins samkvæmt fjárlögum, eða um 19,4 milljónir kr. 80 milljónir bætast við Til úthlutunar eru tæplega 195 milljónir skv. fjárlögum en Framkvæmdanefnd búvörusamninga ákvað á fundi sínum þann 27. apríl sl. að 80 milljónir sem eru til ráðstöfunar vegna framleiðslujafnvægis bættust við úthlutun á þessu ári. Það þýðir að um 274 milljónir kr. verður úthlutað á þessu ári. Jón Baldur segir að miðað við stöðuna í dag eftir fyrstu yfirferð að þá komi til umtalsverðrar skerðingar miðað við ákvæðið um 40% af stofnkostnaði. Þannig verði hámarksstyrkur líklegast um 4–5 milljónir þar sem umsækjendur ,,rekast í þakið“, en endanleg upphæð kemur í ljós eftir að frekari svör hafa borist frá umsækjendum og lokayfirferð umsókna liggur fyrir. Nokkuð var um að sótt væri um framkvæmdir á árinu 2016 og jafnvel 2015, en þær eru ekki styrkhæfar, aðeins framkvæmdir á umsóknarárinu 2017. Þá er tækjabúnaður, svo sem mjólkurróbótar, ekki styrkhæfir. Matvælastofnun skal fyrir 15. maí ljúka yfirferð umsókna og leggja mat á hvort þær uppfylli skilyrði fyrir stuðningi. Fyrri helmingur styrkupphæðar greiðist við upphaf framkvæmdar, sem telst styrkhæf, og hinn helmingurinn í framhaldi af skilum á lokaskýrslu til Matvælastofnunar. Massey Ferguson Meiriháttar dráttarvélar fyrir meiriháttar bændur Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar og fáið sérsniðna vél að ykkar höfði. Til á lager MF5610 , MF5613 og MF6615 Það er ekki að ástæðulausu að Massey Ferguson er ein mest selda dráttarvél undanfarinna ára. Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is ...frá heilbrigði til hollustu Á annað hundrað umsóknir í 195 milljóna fjárfestingarstuðning – 80 milljónum verður bætt við þannig að heildarupphæðin verður 274 milljónir Húnaþing vestra: Tekur þátt í Arctic Coast Way Sveitarfélagið Húnaþing vestra hefur ákveðið að taka þátt í verkefninu Arctic Coast Way eða strandvegur á Norðurlandi. Vegurinn liggur að mestu meðfram strandlengju Norðurlands og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands. Verkefnið hófst fyrir um einu og hálfu ári síðan en Markaðsstofa Norðurlands hefur haldið utan um það síðan í september í fyrra. Sérstakur starfshópur með fulltrúum úr landshlutanum hefur unnið að verkefninu undanfarið en markmiðið er að skapa tækifæri til markaðssetningar og fjölga ferðamönnum á þessari leið. Sveitarfélögin sem samþykktu fyrst að vera með í verkefninu eru Skagafjörður, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð og Akureyrarbær ásamt Norðurhjara sem eru ferða- þjónustusamtök á svæðinu frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð. Verkefnið er fjármagnað með fram- lagi frá þátttakendum að fjárhæð 500 á hvern íbúa hvers sveitarfélags. Þetta kemur fram á vefsíðunni huni. is. /MÞÞ Skagafjörður: Harma sinnuleysi við vegakerfið Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar sinnuleysi stjórnvalda í viðhaldi og uppbyggingu vegakerfisins og beinir því til ríkisstjórnar og þingmanna kjördæmisins að lagðir verði auknir fjármunir í málaflokkinn. Í ályktun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar segir að víða í Sveitarfélaginu Skagafirði megi finna vegi sem beinlínis séu hættulegir yfirferðar vegna skorts á viðhaldi. Leggur sveitarstjórn áherslu á að farið verði sem fyrst í uppbyggingu á Reykjastrandarvegi og Hegranesvegi. Á síðustu árum hefur umferð um Reykjastrandaveg aukist töluvert og samkvæmt talningum Vegagerðarinnar má gera ráð fyrir að hátt í 50 þúsund ökutæki hafi ekið um veginn árið 2016. Umhverfis- og samgöngunefnd hefur borist erindi frá íbúum Hegraness þar sem óskað er eftir endurbótum og viðhaldi á Hegranesvegi nr. 764. Undir erindið rita allir íbúar Hegraness. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.