Bændablaðið - 11.05.2017, Page 37

Bændablaðið - 11.05.2017, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 með áburði eða við aðrar aðstæður. Þótt baunirnar séu minni og léttari, þá eru þær afar próteinríkar og því hentugar sem þurrfæði til að senda út með geimförum, og því óhætt að segja að baunirnar þeirra fari víða. Uppskeran uppseld í desember hvert ár Lenticchia di Ustica-Azienda Pagliuzzo heitir fyrirtæki Giuseppe og er með um 17 hektara til umráða, blanda af eigin landi og því sem hann er með til leigu. Þar af eru 9 hektarar í ræktun á hverjum tíma og af því koma um 10 tonn af linsubaunum. Uppskerutími er í júní en þá er grösunum safnað saman og þau send í sekkjum til meginlandsins þar sem þar til gerðar vélar aðskilja þurrar plönturnar og baunirnar. Plönturnar eru notaðar í skepnufóður en þeir fá baunirnar aftur þar sem þær eru hreinsaðar og gerðar klárar til sölu. Þó þetta ferli standi fram á haust þá er uppskeran yfirleitt öll uppseld í desember, mikið til seld í búðum í Palermo en einnig til annarra staða í Evrópu. Guiseppe segir að hjá honum starfi 4 menn og aðferðirnar kannski frekar frumstæðar á íslenskan mælikvarða. Hann er þó afar framsýnn maður, hefur fjárfest í þremur vélum sem hann notar við uppskeruna og vinnur með vélarnar fyrir aðra bændur eins og hægt er. Flestir bændurnir eru með ræktarland á mismunandi svæðum á eynni, þó ekki sé hún stór. Þetta er gert til að tryggja sig fyrir uppskerubresti, ef veðrátta er sérstaklega slæm úr ákveðinni átt, þá er ekki öll þeirra uppskera bundin við eitt svæði. Einnig þarf oft að hvíla bletti til að fá ekki sveppi og aðrar óværur í uppskeruna þar sem engin eiturefni eru notuð gegn því. Eyjan sjálfbær með vatn Eitt af þeim vandamálum sem bænd- ur og íbúar Sikileyjar og Ustica þurfa að glíma við er vatnsskortur. Á Sikiley má víða sjá steyptar rennur sem liggja að vatnsbóli og hafa það hlutverk að safna rigningarvatni. Á Ustica var vandamál að fá vatn þar sem engin uppspretta er á eynni. Því var venjan að flytja vatn til eyj- arinnar í tönkum áður en sett var upp vatnshreinsistöð sem er afar tækni- leg. Þar er unnið drykkjarhæft vatn úr sjó, afar flókið ferli sem túlkun á milli ítölsku og ensku náði ekki alveg að skila sér til undirritaðs blaðamanns. Í stöðinni eru tvær túrbínur en yfir vetrartímann er aðeins önnur þeirra keyrð en báðar þegar ferðamannatími byrjar og sumar- dvalargestir streyma að. Eyjan er því orðin sjálfbær með vatn og vonir standa til að næsta skrefið verði að vera sjálfbær með orku eftir nokkur ár. Þá verða íbúar hvattir til að nota rafmagnsbíla, sem myndi setja af marga litla Fiat-bíla sem alls staðar mátti sjá. Eingöngu heimasjómenn mega veiða Ustica er vinsæl meðal kafara og er það ein helsta afþreying ferðamanna sem sækja eyna heim. Það er þó tak- mörkunum háð. Í kringum Ustica var fyrsta sjávarverndarsvæði Ítalíu komið á stofn árið 1986 til þess að vernda sjávarlífverur í kringum eyna. Verndarsvæðið nær í heild yfir tæpa 16 þúsund hektara og er skipt upp í þrjú svæði. Á svæði A (um 60 ha) má ekki stunda neinar veiðar eða sigla á bátum, eina sem má er að synda frá landi. Á svæði B (8000 ha) má ekki skaða eða nýta neinn sjávargróður eða lífríki, siglingar og veiðar eru eingöngu leyfðar samkvæmt reglum MPA-sjávarverndunarsvæðisins. Á þriðja svæðinu, C, er leyfð meiri nýting sjávar en þó samkvæmt reglum um sjávarverndun. Aðeins 9 sjómenn stunda núna veiðar á svæð- um B og C en það er skilyrði að einungis íbúar mega veiða, og hver bátur ekki meira en 50 kg á dag. Það má greina að heimamenn eru afar stoltir af sínu, sjálfbærir um vatn, með hágæða linsubaunaræktun og sjávarverndarsvæði sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar. Vel þess virði að koma til Ustica, fyrir þá sem eiga leið til Sikileyjar. /Gréta Bergrún Jóhannesdóttir Giuseppe Mancuso. Í byrjun mars eru linsubaunagrösin rétt að koma upp, græn og falleg. Einn af ökrunum sem Giuseppe sáði í og er að byrja að taka við sér. Unnið við linsubaunaræktunina. Á Ustica var vandamál að fá vatn þar sem engin uppspretta er á eynni. vatnshreinsistöð sem er afar tæknileg. Ustica Fiat. Allar baunir frá eynni eru seldar undir gæðastimpli merktar Ustica og rík áhersla lögð á að allir fylgi þeim viðmiðum sem sett eru. Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig. Fáðu heyrnartæki til prufu Akranes | Akureyri | Borgarnes | Egilsstaðir | Húsavík | Selfoss | Vestmannaeyjar Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.