Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Myndir / ehg
Beint frá býli og Opinn landbúnaður í fræðsluferð til Noregs með Hey Iceland:
Landbúnaður er uppspretta endalausra sagna
Í lok apríl stóðu Hey Iceland
í samvinnu við Beint frá býli
og Opnum landbúnaði fyrir
fræðsluferð til Noregs þar sem
meðal annars félagar í Hanen-
samtökunum voru sóttir heim.
Samtökin eru vegvísir fyrir
norskar byggðaperlur, hvort sem
það snýr að mat og drykk eða
gistingu þar sem bændur eru í
flestöllum tilfellum í fararbroddi.
Dagskrá ferðarinnar var
fjölbreytt þar sem níu staðir voru
heimsóttir sem eru aðilar í Hanen-
samtökunum, allt bændur sem eru
að fást við mismunandi framleiðslu
og rekstur. Einnig voru nokkrar
náttúruperlur skoðaðar og norskar
menningarminjar.
Fyrsti viðkomustaður í ferðinni
var á Thorbjørnrud-hótelið í
Jevnaker en eigandi þess, Olav Lie-
Nilsen, keypti hótelið fyrir fimm
árum þar sem hann býður gestum
eingöngu upp á svæðisbundin mat-
væli. Gömlu sundlauginni á hótelinu
var breytt í ostagerðarvinnslu og eru
nú framleidd yfir 20 tonn af osti þar
árlega. Hann notar alla framleiðslu
af sveitabæ sínum á hótelinu.
Olav ólst upp í sveit og hefur
alltaf verið upptekinn af ferðaþjón-
ustubransanum, mat og matarmenn-
ingu og því segir hann sjálfur að hann
sé í draumastöðu með því að skapa
upplifanir og minningar fyrir gesti
sína á hótelinu. Olav vill geta aukið
meðvitund um svæðisbundin mat-
væli, lifandi menningu og dýravel-
ferð og þess vegna hefur hann valið
að hafa alla virðiskeðjuna á hótelinu
hjá sér, það er, hann framleiðir eins
mikið af matnum sjálfur sem notað-
ur er á hótelinu. Þegar hann kvaddi
hópinn minnti hann á að landbúnaður
sé uppspretta endalausra sagna og
var það gott veganesti inn í frekari
heimsóknir ferðarinnar.
Villt dýr og menningarverðmæti
Því næst var haldið í náttúrugarðinn
Langedrag sem er friðlýst svæði í
um þúsund metra hæð yfir hafi milli
Hallingdal og Numedal.
Stofnendur svæðisins, Eva og
Edvin K. Thorson, byrjuðu á verk-
efninu árið 1978 en draumur þeirra
var að gera sveitabæ þar sem gestir
gætu fengið einstaka upplifun og
nálægð við dýr og náttúruna. Hér
er hugmyndafræðin um að náttúran
sé okkar besti leiðbeinandi við lýði.
Í Langedrag eru um 350 dýr og
25 mismunandi dýrategundir. Hér er
ostagerð og geitamjólkurframleiðsla
ásamt skólabúðum fyrir nemendur.
Á þessu friðlýsta svæði er hægt að
komast í návígi við villt dýr eins
og úlfa, gaupa, fjallaref, villisvín,
elgi, moskúsa og hreindýr. Það var
magnað að sjá og upplifa með eigin
augum hversu mikla nánd Tuva hefur
náð við villtu dýrin eins og gaupa
og úlfa.
Hópurinn fékk einnig leiðsögn
um Borgund stafkirkju sem er í
Lærdal í Sognfylki. Kirkjan er byggð
í kringum 1180, er vel varðveitt og
er talin ein af þeim merkilegustu
af þeim stafkirkjum sem eftir eru
í landinu því stór hluti hennar er
upprunalegur.
Flestar stafkirkjur í Noregi voru
byggðar á árunum 1130–1350 þegar
svarti dauði kom í veg fyrir meiri
byggingarframkvæmdir. Um þús-
und slíkar voru byggðar í Noregi
en í dag eru einungis 28 sem hafa
varðveist. Einnig var komið við
hjá útsýnispallinum Stegastein í
Aurland sem er 3,3 metra breið og
31 metra löng göngubrú sem gefur
einstakt útsýni yfir Aurlandsfjörðinn.
Útsýnispallurinn er 13 metra hár í
640 metra hæð yfir sjávarmáli og er
hluti af þjóðlegu ferðamannavegun-
um sem Vegagerðin í Noregi stendur
fyrir.
Lítil og heimilisleg sveitahótel
Næsti viðkomustaður var til 29/2
Aurland sem er sveitabær sem býður
upp á gistingu og veitingar ásamt
því að þjónusta veiðimenn. Þar tók
Snædís Bjarnadóttir landslagsarki-
tekt á móti hópnum með svæðis-
bundnum epladjús, geitapylsu og
geitaosti með flatbrauði. Eigendur
staðarins, Tone Rönning Vike og
Björn Vike, voru vant við látin og því
hljóp Snædís í skarðið til að upplýsa
íslenska hópinn um staðinn.
Tone og Björn eru með 9
herbergi, hún er blaðamaður og hann