Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 47

Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 byggingameistari með sérmenntun í að gera upp gömul tréhús. Þau sögðu skilið við bæjarlífið í Bergen árið 2012 og fluttu út á land sem þau sjá ekki eftir. Um kvöldið var veitinga- og gististaðurinn Store Ringheim í Voss sóttur heim þar sem eigandi staðarins, Svein Ringheim tók á móti hópnum. Hér rekur fjölskyldan níu herbergja sveitahótel ásamt veitingastað og sveitakrá þar sem sagan svífur í loftinu og var mjög heimilislegur bragur á staðnum. Sviðahausar, eplavín og verðlaunasalerni Rétt við Voss komst hópurinn í Evanger Landhandleri, litla sveitaverslun og kaffihús þar sem svæðisbundin matvæli eru í hávegum höfð. Þar á eftir var Smalahovetunet við Voss sótt heim en þetta er eini staðurinn í Noregi sem framleiðir svið. Þau framleiða þó fleira en svið, eins og til dæmis hið ekta norska pinnekjött sem er jólamatur hjá allflestum. Pinnekjött eru söltuð og þurrkuð rif af sauðfé, Norðmennirnir setja mjóar birkispýtur í kross á djúpum potti og kjötið ofan á og sjóða í 2–3 tíma svo það losni af beininu. Hér fékk hópurinn að smakka á norskri betasúpu sem svipar til íslenskrar kjötsúpu nema í hana er sett reykt kjöt og korv-pylsur. Eftir málsverðinn fékk hópurinn kynningu á staðnum og þeir sem vildu gátu sviðið kindahausa við opnum eldi en einnig fékk hann að sjá þegar hausarnir voru sviðnir í vél í verksmiðjunni. Eftir sviðaheimsóknina í Smalahovetunet hélt hópurinn til Ulvik í Harðangursfirði þar sem Nils Lekve á sveitabænum Lekve var sóttur heim. Hann er einn þriggja aðila í ávaxta- og síderferðahringnum í Ulvik. Þetta eru einu aðilarnir í Noregi sem bjóða upp á slíka þjónustu, það er að taka á móti hópum í kynningu á ávaxtarækt, djús og víngerð en þeir tóku sig saman fyrir nokkrum árum til að bjóða upp á þessa upplifun sem er ólík hjá hverjum bónda fyrir sig. Á Lekve-bóndabænum er hefðbundin ávaxtaræktun með epli, plómur og mórelluræktun. Einnig er veigamikil framleiðsla á eplasafa og síder en ásamt því er nútímaleg víngerð þar sem framleitt er eplabrennivín. Einnig er veitingastaður á bænum þar sem sæti eru fyrir 80 manns. Nils uppsker um 100 tonn á ári af eplum en pressar í kringum 300 tonn árlega í eplasafa og -vín. Síðasta stoppið þennan daginn var hjá Skjervsfossen sem er mögnuð náttúruperla. Þetta er í raun tveir fossar sem renna mjög þétt eftir hver öðrum í 150 metra falli. Hér er búið að gera mjög fína aðstöðu fyrir fólk að skoða og ganga upp með fossinum sem var opnuð í fyrra og kostaði rúmar 200 milljónir íslenskra króna. Almenningssalernin við fossinn eru einnig markverð og þess virði að sjá en arkitektafyrirtækið Fortun AS hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir útfærsluna. Á leið hópsins frá Voss til Bergen, undir lok ferðarinnar, var komið við á síðustu tveimur Hanen-stöðunum sem voru báðir nálægt Bergen. Annars vegar var það Lysefjorden Mikrobryggeri sem er lítið brugghús sem markaðssetur svæðisbundinn handverksbjór. Hér notast eigendurnir við hefðbundnar uppskriftir en gefa þeim persónulegan blæ með því að blanda hefðum og því sem nýjast er í bjórfræðunum saman. Þau keppast við að nota svæðisbundin og handtínd hráefni í bjórgerðina. Hafa þau unnið til nokkurra verðlauna, meðal annars fyrir besta bjórinn í Noregi árið 2015. Hins vegar var síðasta heimsóknin til Bönes gårdsmat sem hefur verið starfrækt síðan 1975. Þetta er fjölskyldurekið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða kjötvörum og má finna vörur þeirra í flestum stórum matvöruverslunum á vesturlandi Noregs en þau bjóða upp á 35 vörutegundir. Þau hafa unnið til margra verðlauna fyrir vörur sínar en markmið þeirra er að bjóða upp á meiri bragðupplifun með hreinna kjöti. Hér var afar vel tekið á móti hópnum þar sem Bønes-hjónin reiddu fram pylsur og kjötklatta úr eigin framleiðslu með salati og svæðisbundnum epladjús. Um kvöldið komu formaður og framkvæmdastjóri Hanen- samtakanna, Bernt Bucher Johannessen og Jan Tjosås, til fundar við hópinn á hóteli í Bergen og kynntu starfsemi sinna samtaka sem hefur um 500 meðlimi og fer stækkandi. Langflestir meðlimir Hanen eru bændur í ferðaþjónustu, veitingarekstri eða sem selja vörur sínar beint frá býli. Samtökin aðstoða þó einnig við að upplýsa um ýmiss konar afþreyingu í öllum landshlutum. /ehg Berglind Hilmarsdóttir hjá Opnum landbúnaði fékk að spreyta sig á að svíða verkið. Á föstudagskvöldinu komu formaður og framkvæmdastjóri Hanen-samtak- í Bergen og kynntu starfsemi sinna samtaka sem hefur um 500 meðlimi og fer stækkandi. Sigurlaug Gissurardóttir á Brunnhóli við Höfn og formaður frá Íslandi. Sviðahausavélin í Smalahovetunet var sérsmíðuð fyrir framleiðsluna og af svæðinu til að aðstoða sig við smíðina. Hún tekur 15 hausa í einu og er sjö og hálfa mínútu að svíða hvern haus. Úrval af eplasafa, síder og eplavínum eykst ár frá ári hjá Nils Lekve á Lekve-bóndabænum í Ulvik í ástríðum hans við framleiðsluna að þróa nýjar vörur. tóku vel á móti íslenska hópnum þar sem þau steiktu heimagerðar pylsur og kjötklatta úr framleiðslunni á stórri pönnu og framreiddu með salati og svæðisbundnum eplasafa. BÚFRÆÐI FJARNÁM Landbúnaðarháskólinn býður upp á vandaðar fjarnámslausnir í flestum námsgreinum háskóladeilda skólans. Þetta veitir nemendum mikið frelsi til að stunda námið óháð staðsetningu. Allir fyrirlestrar í staðnámi eru teknir upp og fjarnámsnemar vinna öll sömu verkefni og staðarnemar. Skyldumæting er í verklegum vikum en að öðru leyti er engin mætingarskylda í fjarnámi. Búfræðinám er tveggja ára sérhæft starfsmenntanám þar sem helsta markmiðið er að auka þekkingu og færni til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf. Námið er að stærstum hluta kennt á Hvanneyri að undanskilinni 12 vikna námsdvöl á einu af tæplega 80 kennslubúum sem LBHÍ er með samstarfssamning við. BÚVÍSINDI Landbúnaðarframleiðsla og ræktun lands eru veigamiklir þættir í námi í búvísindum. Námið veitir undirbúning fyrir margvísleg störf tengd landbúnaði og er góð undirstaða fyrir framhaldsnám og vísindastörf á sviði landbúnaðarfræða. Þriggja ára nám ti l BS-gráðu Tveggja ára starfsmenntanám HÁSKÓLI LÍFS & LANDS WWW.LBHI.IS · LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS · HVANNEYRI, 311 BORGARNESI · LBHI@LBHI.IS · 433 5000 BÚVÍSINDI HESTAFRÆÐI STARFS- & ENDURMENNTUN SKÓGFRÆÐI & LANDGRÆÐSLA NÁTTÚRU- & UMHVERFISFRÆÐI UMHVERFISSKIPULAG FRAMHALDSNÁM 5. JÚNÍ UMSÓKNAR- FRESTUR ... TIL AÐ BLÓMSTRA

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.