Bændablaðið - 11.05.2017, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Eru þvottaklútarnir hreinir?
Klútarnir, sem notaðir eru til að
þvo spena og júgur, eiga auðvitað
að vera hreinir eftir að hafa
farið í þvottavélina eftir notkun
en reynslan erlendis sýnir að oft
ná þvottavélarnar ekki að sjóða
klútana þó svo að vélin sé stillt
þannig.
Skýringin felst einfaldlega í því að
skynjarar eða hitakerfi þvottavélanna
geta bilað. Ef klútarnir eru ekki
soðnir er hætta á því að bakteríur
lifi þvottinn af og geti þar með valdið
smiti við næstu notkun klútanna. Til
þess að tryggja góðan þvott þarf því
reglulega að yfirfara þvottinn og með
því móti draga úr líkunum á því að
smitefni geti borist á milli kúa með
klútunum.
Val á þvottavél
Margir kúabændur nota hefðbundnar
heimilisþvottavélar fyrir klútaþvott-
inn en þær eru í raun ekki sérlega
heppilegar fyrir svona þvott, enda
eru oft í klútunum bæði mikið af
óhreinindum, löng hár og jafnvel
spænir eða strá. Það er því mælt
með því að nota iðnaðarþvottavél-
ar fyrir klútaþvottinn en þær eru
byggðar fyrir stórþvott og eiga mun
auðveldara með að takast á við
klútaþvottinn, sér í lagi vegna þess
að slíkar vélar eru með botnloku sem
hleypir óhreinindum beint í niðurfall
en hefðbundnar heimilisvélar nota
þar til gerðar dælur sem eru við-
kvæmar fyrir aðskotahlutum.
Til þess að verja þessar dælur eru
því flestar vélar með síur sem sía
frá mestu óhreinindin en þessar síur
draga úr afköstum vélanna auk þess
sem reglulega þarf að hreinsa þær.
Þá eru hitakerfi heimilisþvottavél-
anna mun afkastaminni og ekki eins
traustlega gerð og hitakerfin sem eru
í iðnaðarvélunum, sem eru einnig
almennt byggðar fyrir mun fleiri
þvotta en heimilisvélar og ættu því
að endast mun lengur.
Þrífðu þvottavélina
Eitt af því sem sést of oft eru afar
óhreinar þvottavélar og slíkt getur
aukið hættuna á því að bakteríur
nái að vaxa og dafna. Það þarf
því reglulega að þrífa vélarnar
handvirkt.
Helstu staðir sem þarf að þrífa
handvirkt er glerið á vélinni og
gúmmíþéttilistinn, sérstaklega ef
hann er með fellingu sem getur
hæglega safnað í sig miklu magni
af óhreinindum. Þá þarf alltaf öðru
hverju að skoða hvort tromlan er
vel hrein og laus við óhreinindi sem
eiga það til að festast í henni.
Ekki yfirfylla vélina
Jafnvel þó svo að þvottavélin virki
vel og í samræmi við væntingarnar
þá er ekki þar með sagt að þvotturinn
á klútunum takist vel. Skýringin
getur falist í jafn einföldum hlut
og að ekki er notað þvottaefni
sem hentar fyrir klútaþvott eða
þvottaefnið ekki notað í réttu magni
miðað við þarfirnar við þvottinn.
Líklega er þó algengasta skýringin
sú að vélarnar eru einfaldlega
yfirfylltar og þá næst auðvitað ekki
góður þvottur.
Allar þvottavélar eru gerðar fyrir
ákveðið magn af þvotti og það er
mikilvægt að fara ekki yfir þessi
mörk. Til þess að minnka líkurnar
á því að það gerist er óhætt að mæla
með því að setja rétt magn í vélina
og t.d. setja strik á hurðina sem sýnir
þá það hámarksmagn sem setja má
í vélina.
Sumir bændur hafa tekið mynd
af fullri þvottavél og eru svo með
útprentaða mynd einhvers staðar
í námunda við vélina til þess að
minna sig og aðra á það hvað vélin
ræður við. Þetta mætti einnig gera
fyrir magnið af sápunni sem notuð
er, þ.e. sé um handvirka skömmtun
að ræða. Þá mætti einnig vera með
fasta mælieiningu fyrir þvottaefnið
og nota t.d. margir plastmál sem er
með striki á eða jafnvel skorið til
þannig að sléttfullt málið innihaldi
þá kórrétt magn af sápu.
Gott eftirlit eykur öryggið
Óháð því hvort notuð er
hefðbundin heimilisþvottavél eða
iðnaðarþvottavél er mikilvægt að
fylgjast reglulega með því hve vel
hún þvær og þá má einnig auka
endingu hennar með því að þvo
hana tóma öðru hverju og hreinsa
með þar til gerðum efnum. Þá er
hægt að mæla hitastig við þvottinn
með sérstökum límmiðum sem hægt
er að panta víða. Þessir miðar eru
límdir innan á glerið á hurðinni og
eftir þvottinn má lesa af miðanum
hvort ætluðum hita hafi verið náð við
þvottinn. Þetta er afar einfalt húsráð
sem eykur öryggið við þvottinn og
ætti að nota reglulega óháð því
hvort notuð er heimilisþvottavél
eða iðnaðarþvottavél.
Nota einungis tandurhreinar
klútafötur
Þegar klútarnir hafa verið þrifnir
er mikilvægt að þeir séu settir í
tandurhreina klútafötu enda má
segja að vinnan við þvottinn sé fyrir
bí ef nýþvegnir klútarnir eru settir í
óhreina fötu eða annað ílát.
Hægt að rannsaka klútana
Enn eitt atriðið sem nefna má,
þegar rætt er um meðhöndlun á
þvottaklútum, er að ef grunur er um
að klútarnir geti innihaldið bakteríur
eftir þvott, þá er hægt að rannsaka
þá og komast að því hvort bakteríur
leynast enn í þeim eftir þvottinn.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
UTAN ÚR HEIMI
Hjólabúnaður Þrýstibremsur Nefhjól
Læsanlegir og einfaldir
beislisendar
Ljós og ljósabúnaður
Bremsuborðar Hjólalegur
Hjólnöf
Bremsubarkar
Samhliða innflutningi okkar á Indespension kerrum
erum við með varahluti og hluti til kerrusmíða fyrir
flestar kerrugerðir, t.d. Indespension, Ifor Williams o.fl.
Eigum á lager mikið úrval varahluta í helstu gerðir
bremsu og hjólabúnaðar fyrir Alko og Knott. Bjóðum
einnig sérpantanir.
Kerruvarahlutir á góðu verði
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Á FAGLEGUM NÓTUM
Við mjólkurframleiðslu þarf að passa vel upp á þrif og þá er vissara að
klútarnir sem notaðir eru séu líka tandurhreinir og lausir við bakteríur.
Bayer reynir að friða samkeppnisyfirvöld:
Selja tvö Liberty fyrirtæki
vegna kaupa á Monsanto
Eigendur þýska stórfyrirtækis-
ins Bayer hafa samþykkt að selja
Liberty herbicide og LibertyLink
sem starfar í markaðssetningu
einkaleyfisvarinnar sáðvöru til
að reyna að slá á andúð vegna
fyrirhugaðra kaupa á bandaríska
efnafyrirtækinu Monsanto.
Fjallað var um málið á vefsíðu
agprofessional.com þann 9. maí. Þar
segir að sala Bayer á fyrirtækjunum
tveim hafi verið lögð fram hjá
samkeppnisyfirvöldum í Suður-
Afríku síðastliðinn sunnudag. Um
er að ræða sölu á hlutabréfasafni upp
á 2,5 milljarða dollara. Spurningin
er hvort samkeppnisyfirvöldum
þyki þetta nóg að gert í kaupum
Bayer á Monsanto sem hljóða
upp á 66 milljarða dollara. Bayer
hefur þó þegar samþykkt að fara
þessa leið til að mæta gagnrýni um
markaðsráðandi stöðu við yfirtökuna
á Monsanto.
Liberty í harðri samkeppni við
Monsanto í eiturefnasölu
Þótt Suður-Afríka sé tiltölulega lítill
markaður í heimsviðskiptunum með
landbúnaðarvörur, þá hefur Bayer
viðurkennt nauðsyn þess að selja
frá sér Liberty fyrirtækin tvö sem
hafa verið í harðri samkeppni við
Monsanto á þessum markaði um sölu
á skordýraeitri og gróðureyðingar-
og ýmiss konar varnarefnum. Þar
er Monsanto umfangsmikið í sölu
á Roundup „illgresiseyðinum“
svokallaða og í sölu á Roundup
Ready sáðkorni.
Samruni Bayer og
Monsanto eru líka talin valda
áhyggjum samkeppnisyfirvalda
í Bandaríkjunum og hjá
Evrópusambandinu. Þar mun ekki
enn verið búið að sækja um samþykki
fyrir samrunanum. Bayer mun þó
halda áfram vinnu við að reyna að
fá samþykki samkeppnisyfirvalda
um allan heim fyrir kaupunum á
Monsanto. Gerir fyrirtækið ráð fyrir
að viðskiptin geti gengið í gegn fyrir
árslok 2017.
Hafa grætt vel á auknum
eiturvanda í landbúnaði
LibertyLink hefur aðallega verið að
þjónusta ræktendur á sojabaunum,
bómull og repju og hefur þar verið
helsti keppinautur Monsanto.
Vandi bænda í Suður-Afríku,
Bandaríkjunum og víðar er að
vegna mikillar notkunar á Roundup
tilbúnu korni, þá hefur annar gróður
eða meint illgresi líka þróað með
sér þol gegn glyfósati sem er virka
eiturefnið í Roundup.
Þar hefur LibertyLink verið að
koma með nýjar lausnir. Hefur þetta
leitt til þess að hundruð milljóna
evra gróði LibertyLink af sölu
slíkrar vöru hefur tvöfaldast frá
2013. Hefur móðurfélagið Bayer
m.a. byggt nýja verksmiðju í Mobil
í Alabama í Bandaríkjunum til að
mæta vaxandi eftirspurn þar sem
verksmiðja í Frankfurt í Þýskalandi
hefur ekki undan.
Monsanto hefur brugðist við
með því að koma með eldra
gróðureyðingarefni, „dicamba“,
sem er þá væntanlega sterkara. Þá
vinnur fyrirtækið að því að koma
á markað kornafbrigðum sem þola
báðar tegundir plöntueitursins.
Gróðavonin af samlegðaráhrifum
við samruna þessara fyrirtækja er
því augljós. /HKr.
Forsvarsmenn Bayer vonast til að kaupin á Monsanto geti gengið í gegn
fyrir árslok 2017.