Bændablaðið - 11.05.2017, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017
Fyrir nokkru kom í sölu
Suzuki Ignis frá Suzuki bílum
í Skeifunni, en lítið mál var
að fá bílinn lánaðan yfir rign-
ingarhelgina miklu um mánaða-
mótin síðustu.
Suzuki Ignis er fjórhjóla-
drifinn, beinskiptur og með 90
hestafla 1242cc. bensínvél.
Ótrúlega mikið pláss
inni í litlum bíl
Í þessa tvo daga sem ég hafði
bílinn notaði ég fyrri daginn í
innanbæjarakstur. Það fyrsta
sem ég hjó eftir voru lítil og mjó
dekkin, en á skemmdum götum
borgarinnar var lítill belgur
dekkjanna ekki að gefa mikla
fjöðrun, en smæstu holur lömdu
upp í bílinn.
Mér lék því forvitni á að vita
hvernig bíllinn væri með tvo
farþega í aftursætunum á holóttum
vegum borgarinnar og bauð tveim
yfirvigtarmönnum að sitja aftur í
bílnum á meðan ég valdi verstu
vegi borgarinnar. Útkoman var
ekkert spennandi, lítil fjöðrun og
hörð skemmti ekki farþegunum.
Hins vegar hældu þeir plássinu sem
var aftur í bílnum og að sætin væru
þægileg svo lengi sem ég færi ekki
í holur eða yfir hraðahindranir.
Sparneytinn í
innanbæjarakstrinum
Eftir að hafa ekið innanbæjar í
rúma eina og hálfa klukkustund
á meðalhraða upp á 38 km á
klukkustund var ég að eyða 5,7
lítrum á hundraðið en var samt
ekkert að spara eldsneytisgjöfina.
Úti var rok og rigning sem ekki
er vænlegt til sparaksturs. Þess
má geta að uppgefin eyðsla í
blönduðum akstri er 5 lítrar á
hundraðið.
Daginn eftir var enn meira rok
og rigningin heldur blautari en
daginn áður. Enda 1. maí og „árleg
kröfugönguvökvun í gangi“.
Ákvað ég að prófa bílinn í
stuttri keyrslu á 90 vegi. Núllstillti
eyðslumælinn í Kollafirði og ók
fyrir Kjalarnesið. Við Kiðagil
skoðaði ég eyðsluna og það kom
mér á óvart að eyðslan í rokinu og
rigningunni var ekki nema 4,6 lítr-
ar á hundraðið eftir 21 km akstur.
Það væri gaman að prófa aftur við
kjörskilyrði.
Á sléttu malbiki er bíllinn hreint
ótrúlega stöðugur
Að vera á litlum og léttum fjór-
hjóladrifnum bíl lék mér forvitni á
að vita hvernig hann væri í beygj-
um. Ég fór því á autt bílaplan
og prófaði að taka hressilega á
bílnum. Það kom mér verulega
á óvart hversu hratt var hægt að
fara í beygjum á honum, bíllinn
virtist hreinlega vera límdur við
malbikið.
Ég prófaði líka að taka vel á
bílnum í beygju á sléttu malarplani
og þar var sama sagan. Ótrúlega
gott grip á sléttri mölinni, en þegar
ég kom í holu á mölinni í beygjunni
hoppaði bíllinn og missti grip.
Miðað við þessar prófanir er
greinilega of lítil fjöðrun að koma
frá dekkjunum. Skynsamlegt væri
að setja minni 14 tommu felgur
og fá belgmeiri dekk. Við svo-
leiðis breytingu væri IGNIS sann-
kallaður „malarvegaskelfir“ og
örugglega frábær á malarvegum
og holóttum götum Reykjavíkur.
Ekki kraftmesti fjórhjóladrifni
smábíllinn, en góður
Margir góðir punktar eru í bílnum
svo sem bæði baksýnisspegillinn
inni í bílnum og hliðarspeglar,
bakkmyndavél á stórum skjá.
Þó svo að bíllinn sé ekki með
varadekk í sýningarsal Suzuki
bíla þá er sett varadekk í alla bíla
hjá Suzuki. Suzuki Ignis er mjög
fljótur að hitna að innan, sætis-
hitararnir eru einhverjir fljótustu
hitarar sem ég hef kynnst. Var sitj-
andinn orðinn full heitur eftir eina
mínútu svo ég þurfti að slökkva
á hitaranum.
Mjög gott útsýni er fram fyrir
bílinn og framsætin þægileg í
að sitja. Verðið er ekki nema
2.480.000 kr. Lokaorð er að sem
borgarbíll er hann að mínu mati
vænlegur kostur, en ef á að ferðast
mikið á honum og keyra á malar-
vegum þarf að fá betri fjöðrun út
úr dekkjunum.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 870 kg
Hæð 1.595 mm
Breidd 1.690 mm
Lengd 3.700 mm
Helstu mál og upplýsingar
Myndir / HLJ