Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 11.05.2017, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2017 Fyrir nokkru kom í sölu Suzuki Ignis frá Suzuki bílum í Skeifunni, en lítið mál var að fá bílinn lánaðan yfir rign- ingarhelgina miklu um mánaða- mótin síðustu. Suzuki Ignis er fjórhjóla- drifinn, beinskiptur og með 90 hestafla 1242cc. bensínvél. Ótrúlega mikið pláss inni í litlum bíl Í þessa tvo daga sem ég hafði bílinn notaði ég fyrri daginn í innanbæjarakstur. Það fyrsta sem ég hjó eftir voru lítil og mjó dekkin, en á skemmdum götum borgarinnar var lítill belgur dekkjanna ekki að gefa mikla fjöðrun, en smæstu holur lömdu upp í bílinn. Mér lék því forvitni á að vita hvernig bíllinn væri með tvo farþega í aftursætunum á holóttum vegum borgarinnar og bauð tveim yfirvigtarmönnum að sitja aftur í bílnum á meðan ég valdi verstu vegi borgarinnar. Útkoman var ekkert spennandi, lítil fjöðrun og hörð skemmti ekki farþegunum. Hins vegar hældu þeir plássinu sem var aftur í bílnum og að sætin væru þægileg svo lengi sem ég færi ekki í holur eða yfir hraðahindranir. Sparneytinn í innanbæjarakstrinum Eftir að hafa ekið innanbæjar í rúma eina og hálfa klukkustund á meðalhraða upp á 38 km á klukkustund var ég að eyða 5,7 lítrum á hundraðið en var samt ekkert að spara eldsneytisgjöfina. Úti var rok og rigning sem ekki er vænlegt til sparaksturs. Þess má geta að uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 5 lítrar á hundraðið. Daginn eftir var enn meira rok og rigningin heldur blautari en daginn áður. Enda 1. maí og „árleg kröfugönguvökvun í gangi“. Ákvað ég að prófa bílinn í stuttri keyrslu á 90 vegi. Núllstillti eyðslumælinn í Kollafirði og ók fyrir Kjalarnesið. Við Kiðagil skoðaði ég eyðsluna og það kom mér á óvart að eyðslan í rokinu og rigningunni var ekki nema 4,6 lítr- ar á hundraðið eftir 21 km akstur. Það væri gaman að prófa aftur við kjörskilyrði. Á sléttu malbiki er bíllinn hreint ótrúlega stöðugur Að vera á litlum og léttum fjór- hjóladrifnum bíl lék mér forvitni á að vita hvernig hann væri í beygj- um. Ég fór því á autt bílaplan og prófaði að taka hressilega á bílnum. Það kom mér verulega á óvart hversu hratt var hægt að fara í beygjum á honum, bíllinn virtist hreinlega vera límdur við malbikið. Ég prófaði líka að taka vel á bílnum í beygju á sléttu malarplani og þar var sama sagan. Ótrúlega gott grip á sléttri mölinni, en þegar ég kom í holu á mölinni í beygjunni hoppaði bíllinn og missti grip. Miðað við þessar prófanir er greinilega of lítil fjöðrun að koma frá dekkjunum. Skynsamlegt væri að setja minni 14 tommu felgur og fá belgmeiri dekk. Við svo- leiðis breytingu væri IGNIS sann- kallaður „malarvegaskelfir“ og örugglega frábær á malarvegum og holóttum götum Reykjavíkur. Ekki kraftmesti fjórhjóladrifni smábíllinn, en góður Margir góðir punktar eru í bílnum svo sem bæði baksýnisspegillinn inni í bílnum og hliðarspeglar, bakkmyndavél á stórum skjá. Þó svo að bíllinn sé ekki með varadekk í sýningarsal Suzuki bíla þá er sett varadekk í alla bíla hjá Suzuki. Suzuki Ignis er mjög fljótur að hitna að innan, sætis- hitararnir eru einhverjir fljótustu hitarar sem ég hef kynnst. Var sitj- andinn orðinn full heitur eftir eina mínútu svo ég þurfti að slökkva á hitaranum. Mjög gott útsýni er fram fyrir bílinn og framsætin þægileg í að sitja. Verðið er ekki nema 2.480.000 kr. Lokaorð er að sem borgarbíll er hann að mínu mati vænlegur kostur, en ef á að ferðast mikið á honum og keyra á malar- vegum þarf að fá betri fjöðrun út úr dekkjunum. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Þyngd 870 kg Hæð 1.595 mm Breidd 1.690 mm Lengd 3.700 mm Helstu mál og upplýsingar Myndir / HLJ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.