Bændablaðið - 11.05.2017, Qupperneq 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 201758
Nú í byrjun maí-
mánaðar kom
út hefti ársins af
Súlum, sem er
norðlenskt tímarit,
gefið út á Akureyri
af Sögufélagi
Eyfirðinga. Þetta
er 56. hefti af ritinu,
sem á sér sögu frá
árinu 1971 og hefur
undanfarið komið
út einu sinni á
ári, nú sem oftar
160 bls. að lengd.
Hér er að finna
ýmislegt efni, fyrst og fremst
þjóðlegan fróðleik sem einkum
tengist Eyjafjarðar svæðinu.
Ritið er prentað í Ásprenti á
Akureyri.
Í þessu hefti eru tvö viðtöl
sem Hreiðar Jónsson á Akureyri
tók 2002. Hið fyrra er við Björgu
Baldvinsdóttur, sem var lengi vel
ein þekktasta leikkona Leikfélags
Akureyrar, en það fagnar 100
ára afmæli sínu um þessar
mundir. Björg er lítið eitt eldri
en leikfélagið og enn á lífi. Hitt
viðtalið er við Hjörleif Hafliðason
sem lengi vann á Sambands-
verksmiðjunum á Akureyri
en er látinn. Einnig er birtur
árshátíðarbragur verksmiðjanna
Gefjunar og Iðunnar 1949.
Á forsíðu heftisins er
loftmynd af Hrísey frá hendi
myndasnillingsins Harðar
Geirssonar. Þessi mynd tengist
lengstu ritgerð heftisins sem er
eftir unga konu, Klöru Teitsdóttur,
og fjallar um útgerðarsögu
heimabyggðar hennar, Hríseyjar,
frá 1850 til 1950.
Í heftinu er einnig
margvíslegt annað
efni. Þorsteinn
Krüger birtir þætti
úr skemmtanalífi
Akureyringa á fyrri
hluta 20. aldar.
Kristín Jónsdóttir
frá Munkaþverá
skrifar um Hallgrím
Júlíusson organista.
Elín Friðriksdóttir
á hér minningar frá
uppvaxtarárum í
Akrahreppi. Guðrún
Sigurðardóttir skrifar um
handavinnu kvenna á 20. öld
og birt er gömul ferðasaga eftir
Steinunni Bjarman. Sjá má af
þessu að meirihluti efnis í heftinu
er eftir konur eða um þær.
Í lokin er birt stutt ársskýr-
sla Sögufélags Eyfirðinga,
sem gefur Súlur út, formaður
félagsins er Jón Hjaltason. Sími
félagsins / símsvari er 462 4024.
Áskriftarverð þessa heftis Súlna
er kr. 4.200. Heftið fæst einnig í
lausasölu í Pennanum á Akureyri.
Við áskriftarbeiðnum tekur
Guðmundur P. Steindórsson, net-
fang gudps@simnet.is.
Ritstjóri Súlna hefur síðustu
fimm ár verið Björn Teitsson,
netfang hans er: banna@simnet.
is, heimasími 456 4119. Í ritnefnd
eru einnig Ása Marinósdóttir,
Jón Hjaltason og Kristín
Aðalsteinsdóttir. Þau öll taka við
efni til birtingar og eru stuttar
minningar eða frásagnir sérlega
vel þegnar segir í fréttatilkynningu
frá Sögufélagi Eyfirðinga. /MÞÞ
MENNING&LISTIR LESENDABÁS
Sæll og blessaður, Davíð
Herbertsson, og þakka þér
innilega fyrir bráðskemmti-
legt bréf sem ég var að lesa (í
Bændablaðinu þ. 27. apr.) Það
er svo miklu meira gaman að sjá
að einhver les og vill ræða málin,
eða svara þegar fólki finnst að sér
vegið.
Reyndar verð ég að byrja á því að
segja að það var og er fjarri mér að
vera með nokkrar aðdróttanir að þér
persónulega, né draga í efa að bæði
þú og margir aðrir fjárbændur, gerið
allt ykkar besta til að fara vel með
fénað og fóður, sem að sjálfsögðu
er til bóta fyrir skepnuna, en kemur
ekki í veg fyrir orsök og afleiðingu
þess að vetrarrýja féð.
Þessi brenglaði ofgnótta og
sóunar hugsunarháttur nútímans, að
vilja helst leggja niður landbúnað og
byggð í sveitum, þekkir ekki mun-
inn á raunverulegum verðmætum
og LÍFSNAUÐSYNJUM, eða hvað
það er sem gerir gæfumuninn þegar
á reynir og í nauðirnar rekur. Þær
öfugmæla aðstæður sem nútíminn
hefur skapað og úthlutað sauðfjár-
ræktinni, hafa sett hana út í horn,
sem afætur þjóðfélagsins, styrkþega
og óþurftar atvinnugrein. Skilur ekki
gildi hennar í fæðu- og klæðaöflun
breytilegra tíma, né samfélagslega
ábyrgð þess að byggja mannvænt
þjóðfélag af menningarlegri reisn
þekkingar og reynslu.
Ég veit ekki hvort þú hefur líka
lesið það sem ég hef áður skrifað
um ullina og sent þessu blaði. En
þar hef ég verið að reyna að vekja
athygli á, að nútíma rúningsvenjur
eru að eyðileggja og útrýma þel-
inu, dýrmætasta hluta ullarinnar,
lífgjafa þessarar þjóðar um aldir og
sérstöðu íslensku sauðkindarinnar
á heimsmælikvarða. Merkilegt að
það tók ekki nema hálfa mannsævi
að aftengja þá þekkingu og hugsun
úr þjóðarvitundinni. Ef til vill varla
von að þeir sem aldrei hafa séð eðli-
legt vorrúið reyfi af vel fóðraðri
kind, viti hvernig það lítur út, eða
hvað svona 96 ára gamlingjar eru
að tala um. En af því ég nýt þeirra
foréttinda að hafa lifað atvinnu-
þróun heillar aldar og tekið virkan
þátt í þeirri nýsköpun til sjávar og
sveita, þá þekki ég af eigin raun
þessar stökkbreytingar. Þar á meðal
vinnslu og notkun ullarinnar.
Það er mikill skaði að glutra
niður þeim verðmætum sem fel-
ast í þelinu. Þess vegna tel ég það
skyldu mína að reyna að vara við
þeirri hættu og koma því á fram-
færi við þá sem enn gæti verið lag
að vekja til umhugsunar og úrbóta.
Gæti líka verið gagnlegt og gaman
að ræða margbreytilega möguleika
í framtíð sauðfjárbúskapar, sam-
hliða ferðaþjónustuatvinnuvegi
í uppbyggingu. Þar er að mörgu
að hyggja í sambandi við mat-
vælaframleiðsluna og afþreyingu.
Og ekki eru nú fætur ferðamanna
léttstígari á viðkvæmum stöðum
sem verja þarf ágangi. Né spörðin
þrifalegri á húsahlöðum lands-
manna. Þess vegna sýnist mér að
mikil þörf sé enn og aftur fyrir sem
skýrasta og óbrenglaðasta hugsun
og fyrirhyggju. Og veitir ekkert af
að minna öðru hvoru á það.
En þetta með nýyrðin og íslensk-
una væri svo miklu meira gaman að
ræða við þig persónulega og orði
til orðs. Samt hvorki mannsber né
berjúgra, hvað þá mannsberjúgra,
það mundi ég ekki taka í mál. Að
fá svo vísur eins og rúsínur í enda
bréfs, var líka alveg svarbréfs og
þakka skylda. Ég kann reyndar
aðra vísu, allt of líka annarri þinni.
En hana ræði ég ekki né hef yfir
á almannafæri nema við vissar
aðstæður.
Gleður auga og léttir lund,
lítil vísa, stuðlum skreytt.
Því er eftir þennan fund,
þögnin mælsk og kyrrðin breytt.
Ef að brenglast orðarugl,
oft er best að segja fátt.
Önnur vísan erfitt þrugl,
eldri gerðin varla sátt.
Því ég enda þetta bréf,
þakka vökult málaskraf.
Áfram gæti annað skref,
okkur leitt á visku haf.
Með kveðju.
Guðríður B. Helgadóttir
Opið bréf til Davíðs Herbertssonar
Bændablaðið
í allt sumar
Þó svo að sumarleyfi gangi
í garð þá er engin ástæða til
að slá af í auglýsingabirtingum
í Bændablaðinu.
Bændahöllinni við Hagatorg
Sími 563 0300 / Netfang augl@bondi.is / bbl.is
Ásgerður María Hólmbertsdóttir auglýsingastjóri
veitir ráðgjöf og tekur á móti auglýsingapöntunum
í síma 563–0300 og í netfangið amh@bondi.is
Við bjóðum auglýsendum að gera birtingaáætlanir fram
í tímann. Það auðveldar skipulagningu og gerir markaðsstarf
fyrirtækja markvissara og árangursríkara. Með vandaðri
áætlanagerð getur þú sparað bæði tíma og peninga.
Tímaritið Súlur árið 2017 komið út:
Meirhluti efnis um eða eftir konur
Guðríður B. Helgadóttir