Bændablaðið - 25.01.2018, Page 2

Bændablaðið - 25.01.2018, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018 Íslensku kýrnar standa sig vel í framleiðslu á mjólk: Brúsastaðir í Vatnsdal afurðahæsta bú landsins annað árið í röð – Alls eru 15 kúabú á landinu með meira en 8.000 kg í meðalnyt eftir hverja árskú og sú öflugasta mjólkaði heilum 14 tonnum Brúsastaðir í Vatnsdal í Austur- Húnavatnsýslu voru afurðahæsta kúabúið á Íslandi 2017 með 8.937 kg mjólkur í meðalnyt. Er það rétt undir Íslandsmeti sama bús frá 2016 sem er 8.990 kg. Samkvæmt tölum RML úr skýrsluhaldi kúabænda um nýliðin áramót, þá voru 8 íslensk kúabú með meðalmjólkurnyt á árskú yfir 8.000 kg. Í fyrsta sæti voru Brúsastaðir eins og fyrr segir með 8.937 kg. Er búið rekið af hjónunum Sigurði Ólafssyni og Gróu Margréti Lárusdóttur. Þá kom Hóll í Svarfaðardal með 8.356 kg sem rekið er af Karli Inga Atlasyni og Erlu Hrönn Sigurðardóttur. Gautsstaðir á Svalbarðsströnd voru svo í þriðja sæti með 8.269 kg, en þar er Pétur Friðriksson við stjórnvölinn. Þess má geta að Brúsastaðir voru einnig afurðahæsta kúabú landsins 2014 og 2013. Alls eru 573 kúabú í skýrsluhaldi RML. Ekki eru mörg ár síðan það þótti mjög gott að vera með meðalnyt yfir 6.000 kg. Afurðahæsta kúabú landsins árið 2005 var Kirkjulækur í Fljótshlíð með 7.669 kg í meðalnyt á 35,5 árskýr. Var það þá nýtt Íslandsmet, en fyrra metið átti búið Stóra- Hildisey 2 í Austur-Landeyjum með 6,450 kg árið 2003. Þar á undan var sett met árið 2001 í Birtingaholti í Hrunamannahreppi. Afurðahæsta búið nú er því með vel ríflega tonni meira á hverja árskú að meðaltali, eða 1.268 kg en metið var 2003. Fyrir utan fóðrun, umhirðu og ræktun, virðist innleiðing mjaltaþjóna á íslenskum kúabúum haft þarna mikið að segja við að hækka nyt íslensku kúnna og auka stöðugleika í framleiðslunni. /HKr. FRÉTTIR Bú - desember 2017 Skýrsluhaldarar Árskýr Afurðir kg Brúsastaðir í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu 8.937 Hóll í Svarfaðardal við Eyjafjörð 8.356 Gautsstaðir á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð 8.269 Flugumýri í Blönduhlíð austan Vatna í Skagafirði 8.205 Skáldabúðir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Árnessýslu 8.183 Hvanneyri á Hvanneyri í Borgarfirði 8.180 Ytri-Skógar undir Austur-Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu 8.179 Steinnýjarstaðir á vestanverðum Skaga, norðan við Skagaströnd 8.170 Hraunháls í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, nærri Stykkishólmi 8.124 Kúskerpi í Blönduhlíð austan Vatna í Skagafirði 8.115 Grænahlíð í Eyjafjarðarsveit (sunnan/framan Akureyrar) 8.047 Reykjahlíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Árnessýslu 8.023 Garðakot í Hjaltadal í Skagafirði 8.019 Moldhaugar í Kræklingahlíð við Eyjafjörð, norðan Akureyrar 8.010 Stóru-Tjarnir í Ljósavatnsskarði, Þingeyjarsveit 8.005 Afurðahæstu kúabúin 2017 - Nythæsta kýrin á landinu árið 2017 var kýr nr. 851, undan Ými 0715 Skandalssyni 03034, en hún mjólkaði 14.199 kg samkvæmt skýrsluhaldi Ráðgjafarstofu landbúnaðarins. Var fituinnihald mjólkurinnar 3,64% fitu og 3,33% prótein. Sló kýrin 851 ársgamalt Íslandsmet Nínu 676 á Brúsastöðum í Vatnsdal sem var 13.833 kg. Burðartími 851 féll mjög vel að almanaksárinu en hún bar sínum þriðja kálfi 2. janúar 2017. Því miður þurfti svo að fella þennan mikla afurðagrip núna í byrjun janúar og er þar skarð fyrir skildi. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur með að kýr nr. 851 var gríðarmikil mjólkurkýr og sýndi það strax á sínu fyrsta mjólkurskeiði er hún fór hæst í 37 kg dagsnyt. Á nýliðnu ári fór hún hæst í 57,0 kg dagsnyt og var enn í 28 kg nyt í desember sl. Skráðar æviafurðir hennar voru 33.661 kg um síðustu áramót en sinn fyrsta kálf átti hún 26. janúar 2015, þá 26 mánaða að aldri. Kýr nr. 851 frá Innri-Kleif í Breiðdal setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet á síðasta ári: Mjólkaði nær 14,2 tonnum Nýjar tölur um lestur fólks á prentmiðlum sýna að staða Bændablaðsins er sterk á blaðamarkaði. Á landsbyggðinni ber Bændablaðið höfuð og herðar yfir aðra prentmiðla og yfir landið allt er Bændablaðið í öðru sæti á eftir Fréttablaðinu í lestri. Í nýrri prentmiðlamælingu Gallup, sem nær yfir fjórða ársfjórðung 2017, kemur meðal annars fram að 43,1% íbúa á landsbyggðinni les Bændablaðið og 21,6% fólks á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á Bændablaðinu yfir landið allt er 29,4%. Þriðjungur karla les Bændablaðið Alls 33,6% íslenskra karla lesa Bændablaðið og eru þeir heldur með forskot á kvenfólkið en 25% þeirra lesa Bændablaðið reglulega. Alls 36,5% landsbyggðarkvenna og 49,2% karla utan höfuð- borgarsvæðisins láta blaðið ekki framhjá sér fara. Mismunur á milli aldurshópa Það er greinilegt að lestur prentmiðla er misjafn eftir aldri. Þegar aldursbilið 20–30 ára er skoðað sést að einungis 23,3% fólks á Íslandi les Fréttablaðið, 14,2% lesa Bændablaðið og 14% Morgunblaðið. Stundina lesa 12,7% í þessum aldurshópi og 6,6% lesa DV. Um leið og aldurinn hækkar eykst lesturinn. Þannig lesa 39,1% Íslendinga á aldursbilinu 50–60 ára Bændablaðið, 53,6% Fréttablaðið, 32,1% Morgunblaðið, 12,6% Stundina og 13,5% DV. Þeir sem komnir eru yfir sjötugt virðast lúslesa sum blöð umfram önnur. Fréttablaðið á vinninginn í þeim aldurshópi með 66,8% lestur yfir landið allt. Næst kemur Morgunblaðið með 58,5% og síðan Bændablaðið með 57,7% lestur. DV skorar líka hátt í þeim aldursflokki og er með 19,7% lestur. Stundina les 13% fólks á milli sjötugs og áttræðs. Lestur prentmiðla fer dalandi Lestur prentmiðla hefur almennt dalað á síðustu árum en það er misjafnt eftir blöðum hversu mikið. Lestur Fréttablaðsins yfir landið hefur lækkað úr 52% á fjórða ársfjórðungi árið 2014 niður í 43,8% í lok árs 2017. Morgunblaðið mælist nú með 26,1% lestur á Íslandi en í lok ársins 2014 var talan 28,8%. Á sama tímabili hefur lestur Bændablaðsins einungis minnkað um 0,9% á landsvísu. Áðurnefndar upplýsingar eru fengnar úr prentmiðlakönnun Gallup en könnunartími var okt.–des. 2017. Í könnuninni er lestur dagblaða mældur með samfelldum hætti. Um 30 svörum er safnað á hverjum degi, eða um 2.500 svörum á ársfjórðungi. Í úrtakinu eru Íslendingar á aldrinum 12–80 ára af landinu öllu. /TB Ný könnun staðfestir mikinn lestur Bændablaðsins Bændablaðið er með mikið forskot á aðra prentmiðla á landsbyggðinni. Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup PACTA lögmenn og Bændasamtök Íslands hafa gert samning um sérstök afsláttarkjör á almennri lögfræðiþjónustu við félagsmenn BÍ. Samningurinn felur í sér að bændur geta leitað til PACTA um land allt með þjónustu vegna allra sinna mála. Ekki þarf að greiða fyrir fyrsta viðtal sem er gjaldfrjálst. Afsláttarkjörin eru 20% af tímagjaldi sem miðast við útselda tíma, þ.e. vinnu fyrir utan símtöl og tölvupósta þar sem viðkomandi spyrst fyrir um réttarstöðu sína. Í einhverjum tilvikum er samið um fast verð fyrir ákveðið verk en alla jafna er kostnaður reiknaður á grundvelli tímagjaldsins. PACTA veitir alhliða lögfræðiþjónustu og ráðgjöf á 15 starfsstöðvum víða um land. Þeir sem vilja nýta sér samkomulagið geta haft samband í síma 440-7900 eða á netfangið hallgrimur@pacta.is. Veffangið er pacta.is. Lögfræðiþjónusta við bændur

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.