Bændablaðið - 25.01.2018, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
Nú á dögum tengja Íslendingar
hákarl helst við þorrablót. Í
hugum margra er hákarl fyrst
og fremst hvítu teningarnir
sem menn skola niður með
brennivíni af mismikilli ánægju í
góðum félagsskap. Færri vita að
hákarlinn var einn verðmætasti
nytjafiskur Íslendinga á 19. öldinni
og undirstaða þilskipaútgerðar í
landinu.
Beinar hákarlaveiðar við Ísland
heyra næstum sögunni til. Aðeins
örfáir smábátar leggja hákarlalóðir.
Meirihluti hákarlaaflans sem berst
á land slæðist óvart í veiðarfæri
togskipa. Á síðustu fjórum árum
hefur landaður afli á ári verið á
bilinu 17–27 tonn, samkvæmt skrá
Fiskistofu.
Jón Svansson, sem rekur
fyrirtækið Íslandshákarl á
Vopnafirði, gerir út tvo smábáta til
hákarlaveiða. Hann sagði í samtali
við höfund þessa pistils að veiðarnar
á síðasta ári hefðu gengið mjög vel.
Alls hefðu þeir fengið 22 hákarla
á tímabilinu frá apríl og fram í
byrjun júní. Mest hefðu fengist fimm
hákarlar á 18 króka en línurnar eru
helst ekki látnar liggja lengur en í
þrjár nætur í senn.
Hákarlinn og ammóníakið
Eftir að hákarlinn hefur verið
skorinn þarf að kasa hann sem
kallað er. Ólíkt mörgum öðrum
hryggdýrum hafa hákarlarnir ekkert
þvagkerfi. Skömmu eftir að hákarl
er drepinn tekur þvagefnið að brotna
niður og eitt af myndefnum þess er
ammóníak. Það flæðir um allt hold
dýrsins og styrkur þess getur verið
svo mikill að sá sem neytir þess getur
fengið eitrun og jafnvel dáið, að því
er fram kemur á Vísindavefnum.
Dæmi eru um að ísbirnir hafi étið
hræ af grænlandshákarli og orðið
skammlífir eftir átið.
Erlendis eru hákarlar blóðgaðir
strax eftir að þeir eru drepnir og
síðan kældir. Við blóðgunina næst
þvagefnaríkt blóðið úr dýrinu og þá
er hægt að neyta kjötsins án þess að
finna keim af ammóníaki. Á Íslandi
hefur kæsing verið notuð frá alda
öðli til þess að losna við eituráhrif
ammóníaks. Lengst af fólst hún í
því að láta hákarlinn gerjast í 1–3
mánuði í moldar- eða malargryfju
og síðan var hann þurrkaður. Nú til
dags eru gjarnan notaðar trégrindur
í fiskikössum með afrennsli og fargi
við þessa verkun.
Vonarpeningur
Eftir að kæsingunni lýkur er
hákarlinn hengdur upp í hjalla til
þurrkunar. Þá getur brugðið til
beggja vona um hvernig til tekst.
Þar er veðurfarið ekki hvað síst
örlagavaldurinn. Jón sagði að tíðin
haustið 2016 hefði verið sérstaklega
góð til hákarlaverkunar en haustið
2017 hefðu veðurfarslegar aðstæður
aftur á móti verið afar óhagstæðar,
blautt og rakt loft vikum saman.
Ofan í það komu svo frosthörkur
sem leiddu til þess að verkunin
stöðvaðist. Þá gerist ekkert fyrr en
hákarlinn þiðnar á ný. „Veiðarnar
eru eitt og verkunin annað. Þetta er
vonarpeningur. Það er ekkert í hendi
fyrr en verkuninni lýkur,“ sagði Jón.
Hann sagði að veiðarnar gætu gefið
ágætlega af sér ef allt gengi upp, en
svo gætu menn þurft að borga með
þessu þegar verr gengi.
Hættulaus skepna
Hákarlinn sem veiddur er hérlendis
er af tegundinni grænlandshákarl.
Hann getur orðið 6–7 metra langur,
en algengasta lengdin er á bilinu 2–5
metrar. Einhverjir kynnu að halda
að þetta gætu verið árásargjarnar
og hættulegar skepnur litlum bátum
sem stunda þessar veiðar, minnugir
kvikmyndarinnar frægu Jaws
og frásagna í heimsfréttunum af
sundfólki sem orðið hefði hákörlum
að bráð. Jón segir að þvert á móti
sé hákarlinn hér við land hægur í
hreyfingum og hugsi um það eitt að
sleppa ef hann festist á krók. Hann
bregðist við með því að velta sér en
við það flæki hann línunni gjarnan
utan um sig og þar með séu dagar
hans taldir. Bátum á hákarlaveiðum
hér við land stafi því engin hætta af
bráð sinni.
Reyndar virðist vera gert alltof
mikið úr árásargirni hákarla í
heiminum ef marka má erlenda
vefsíðu sem upplýsir að árið 2015
hafi slíkar árásir á fólk verið 98
talsins í veröldinni allri, þar af
hafi sex þeirra leitt til dauða. Í
því sambandi er bent á að yfir
100 milljón hákarlar séu drepnir á
ári, vægt reiknað, aðallega vegna
ugganna. Af því megi ráða hvor
sé hættulegri hinum, hákarlinn
eða mannskepnan. Af tæplega 500
hákarlategundum í heiminum stafi
manninum aðeins hætta af örfáum
tegundum og þá aðeins við sérstakar
aðstæður.
Hákarlaveiðar fyrr á öldum
Nýting hákarls til matar á sér langa
sögu á Íslandi. Þegar á 14. öld voru
þær orðnar allmiklar og fóru svo
vaxandi. Farið var í svokallaðar
hákarlalegur á opnum bátum og tók
hver veiðiferð frá 2–4 dögum og allt
upp í eina til tvær vikur ef afli var
tregur eða veður óhagstætt. Þóttu
þessar sjóferðir æði slarksamar. Í
bókinni Sjósókn og sjávarfang eftir
Jón Þ. Þór segir að á 17. og 18. öld
hafi Vestfirðingar og Norðlendingar
verið mestir hákarlaveiðimenn hér á
landi. Veiðarnar náðu svo hámarki
á 19. öldinni þegar þilskip komu
til sögunnar auk áraskipanna.
Upphaflega var þilskipunum
trúlega ætlað að veiða þorsk
og hákarl jöfnum höndum en
þegar kom fram yfir 1830 voru
hákarlaveiðarnar orðnar burðarás
þilskipaútgerðarinnar. Olli þar
mestu að verð á lýsi hækkaði
hlutfallslega gagnvart fiskverði.
Lifrin úr hákarlinum var
brædd í landi og lýsið flutt út og
notað sem ljósmeti til að lýsa
upp borgir Evrópu. Lýsisverðið
hækkaði ár frá ári vegna aukinnar
eftirspurnar. Hákarlaveiðarnar
gáfu mikinn og skjótfengan gróða
og sköpuðu fyrsta umtalsverða
uppgangsskeiðið í sögu íslensks
sjávarútvegs á síðari öldum, segir
Jón Þ. Þór í bók sinni. Þegar best
lét gátu eigendur þilskipanna greitt
kaupverð skipanna eftir eina vertíð.
Margir tugir þilskipa stunduðu
þessar veiðar.
Blómaskeiðinu lýkur
En engin gósentíð varir að eilífu.
Upp úr 1860 var blómaskeið
hákarlaveiðanna senn á enda
þegar farið var að nota steinolíu
í stað hákarlalýsis sem ljósmeti.
Hákarlaveiðar á þilskipum héldu
að vísu áfram allt til 1925 en eftir
1870 drógust þær saman ár frá ári.
Ekki liggja fyrir tölur um hversu
mikill hákarlaaflinn var hér við land
hér áður fyrr eða hversu miklum
verðmætum hann skilaði, en þegar
lýsisútflutningurinn var sem mestur
nam hann 13.000 tunnum á ári. Það
er lifur úr æði mörgum hákörlum.
„Hákarlinn er sennilega vanmetnasti
fiskur Íslandssögunnar,“ sagði Jón
Þ. Þór í viðtali við Morgunblaðið
fyrir allmörgum árum. Það eru orð
að sönnu.
Við hjá Bændablaðinu höfum
eins og flestir gaman af því að
létta okkur upp og reynum eftir
megni að halda þeim þjóðlega
sið að blóta þorrann, borða
íslenskar landbúnaðarafurðir,
drekka mysu og dansa
hringdans.
Margir kannast við það
vandræðalega ástand sem getur
skapast í fyrstu við slík tækifæri
áður en mysan fer að virka. Fátt
er betur til þess fallið að hrista
saman gesti og létta andrúmsloft
í þorrablótið en skemmtilegir
samkvæmis- eða helgileikir.
Þekkir þú hljóðið?
Leikurinn gerir miklar kröfur til
heyrnarinnar og er erfiðari en
virðist í fyrstu. Stjórnandinn fer
inn í herbergi og skilur dyrnar
eftir opnar, þar framkallar hann
ýmiss konar konar hljóð sem
aðrir viðstaddir reyna að þekkja.
Áheyrendur skrá niðurstöður
sínar á blað og sá sem þekkir flest
hljóðin sigrar.
Möguleikarnir eru gífurlegir
því það veldur oft miklum
vandræðum að þekkja hljóð ef
menn sjá ekki það sem framkallar
hljóðið. Til dæmis má hrista
eldspýtustokk, rífa bréf, hræra
í bolla fullum af vatni eða bíta
í epli. Skemmtilegast er þó að
finna upp á hljóðum sjálfur sem
tengjast daglegum athöfnum
manna án þess að þeim sé veitt
sérstök athygli.
Sölumannsleikur
Þetta er leikur án orða og byggist
á látbragði. Einhver viðstaddur, til
dæmis fermingarbarnið, tekur að
sér að vera fyrsti sölumaðurinn.
Hann eða hún fer út úr stofunni
eða salnum þar sem gestunum
hefur verið safnað saman og
kemur aftur inn með ferðatösku.
Sölumaðurinn fer síðan að tína upp
úr töskunni allt sem honum dettur
í hug að selja. Taskan er vitanlega
tóm en sölumaðurinn reynir að
sýna það sem hann tínir upp með
látbragði. Það geta hugsanlega
verið ýmiss konar handverkfæri,
hamar, sög eða hallamál,
sölumaðurinn getur einnig reynt
að selja fermingargestum undirföt
eða baðfatnað með viðeigandi
látbragði. Sá sem áttar sig fyrstur
á því hvað er verið að selja vinnur
leikinn og verður næsti sölumaður.
Fræg pör
Leikurinn felst í því að finna eins
mörg pör og hægt er, tvær persónur
sem í hugum allra eru samtengdar.
Þetta geta verið karl og kona eða
tveir einstaklingar af sama kyni. Sá
sem finnur flest pör innan ákveðins
tíma vinnur leikinn. Sem dæmi
um fræg pör má nefna Tomma og
Jenna, Gög og Gokke og Adam
og Evu.
Blásið í blöðrur
Þátttakendum er skipt í tvö eða
fleiri lið. Allir fá blöðru í hendurnar,
síðan stillir sá fyrsti sér upp á móti
einhverjum úr öðru liði. Þegar
merki er gefið eiga þeir að byrja
að blása í sína blöðru og halda því
áfram þar til hún springur. Þá tekur
sá næsti við og þannig er haldið
áfram þar til eitthvert liðanna er
búið að sprengja allar blöðrurnar
og vinna leikinn.
Flöskustútur eða bingó
Leikir af þessu tagi eru vinsælir
víða erlendis og möguleikarnir
óþrjótandi. Það má spila á spil,
fara í Twister eða leika flöskustút
eða bingó. Það er engin ástæða til
að vera of formlegur og láta fólki
leiðast. Njótum lífsins og leikum
okkur hvenær sem tækifæri gefst.
/VH
Samkvæmisleikir
fyrir þorrablótið
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Hákarlinn fyrr og nú
Kuldakast í Norður-Ameríku í janúarbyrjun:
Hákarlar frusu og krókódílar í ís
Kuldinn sem gengið hefur yfir
Bandaríki Norður-Ameríku
olli gríðarlegri snjókomu og
frosthörku víða í Norðurríkjunum.
Kuldinn við Cape Cod í
Massachusetts-ríki var svo mikill
að hákarlar hreinlega frusu í hel
og skoluðu upp á ströndina.
Að minnsta kosti þrem dauðum
nánast beinfreðnum hákörlum
skolaði á land við stendur Cape Cod
í Massachusetts-ríki í kuldakastinu
sem gekk yfir austurströnd
Bandaríkjanna fyrir skömmu.
Talið er að hákarlarnir hafi fengi
kuldasjokk þegar tálknin í þeim
frusu þegar sjórinn í kringum þá
kólnaði skyndilega og í framhaldi
af því hafi þeim skolað á land þar
sem þeir drápust og gegnfrusu
endanlega.
Kuldinn í Norður Karólínu-
ríki varð til þess að það sást til
krókódíla sem rekið höfðu trýnið
upp í gegnum göt á frosnu yfirborði
vatna sem þeir lifa í. /VH Frosinn hákarl við strönd Cape Cod.
Hákarl þurrkaður. Mynd / Íslandshákarl.
Hákarli landað. Mynd / Af vef Íslandshákarls