Bændablaðið - 25.01.2018, Page 18

Bændablaðið - 25.01.2018, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018 Hagagæði er samstarfsverkefni Landgræðslunnar og Félags hrossabænda: Markmiðið er að nýta land án þess að rýra gæði þess HROSS&HESTAMENNSKA Á liðnu ári stofnuðu Landgræðsla ríkisins og Félag hrossabænda til landnýtingarverkefnis, sem nefnist „Hagagæði“. Landgræðslan sér um framkvæmd verkefnisins. Verkefnisstjóri er Bjarni Maronsson, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Norðurlandi vestra. Frá og með árinu 2000 til ársloka 2016 var við lýði Gæðastýring í hrossarækt. Einn þáttur gæðastýringarinnar var sjálfbær landnýting á hrossabúum og sá Landgræðslan um úttektir á beitarlandi þeirra hrossabænda er þess óskuðu. Þau bú sem stóðust sett viðmið hlutu viðurkenningu. Líkt og í gæðastýringunni snýst þátttaka í „Hagagæðum“ um að nýta land án þess að rýra gæði þess og fá það staðfest árlega með úttekt og viðurkenningu á því að land þátttakenda standist sett viðmið. Í verkefnislýsingu „Hagagæða“ er tilgangur verkefnisins skilgreindur á eftirfarandi hátt: Að tryggja sjálfbæra nýtingu beitarlands, að auka ábyrgð landnotenda sem vörslumanna lands, að auka umhverfisvitund landeigenda og landnotenda og að tryggja velferð hrossa. Bjarni segir þessi atriði snúa öll að ábyrgð, landlæsi og umhverfisvitund landnotenda og eru grunnur að bættri beitarstjórnun. Þá er einnig minnt á að velferð hrossa og beitarlands fer ætíð saman. „Landnýtingarþáttur gæða- stýringar var fyrst og fremst sniðinn að landnotkun þeirra sem stunduðu hrossarækt og uppeldi hrossa. Hagagæði er víðtækara verkefni en landnýtingarþátturinn og auk hrossaræktenda geta tekið þátt aðilar sem halda hross í atvinnuskyni, s.s. hestaleigur og þeir sem halda hross til brúkunar í tómstundum. Einnig sveitarfélög og hestamannafélög, sem eiga og/eða hafa umsjón með hrossabeitarhólfum til almenningsnota,“ segir Bjarni. Öllum hrossabændum gefinn kostur á þátttöku Öllum hrossabændum, sem voru með í landnýtingarþættinum árið 2016 var kynnt þetta nýja verkefni og þeim gefinn kostur á þátttöku í Hagagæðum, enda stæðist beitarland þeirra sett ástandsviðmið. Af 40 búum, sem voru með í landnýtingarþættinum óskuðu 38 eftir þátttöku í Hagagæðum og stóðust þau öll landúttektir. Þá bættust við sex ný bú. Allt eru þetta bú sem stunda hrossarækt og/eða hrossakjötsframleiðslu. Enn hafa einstaklingar eða fyrirtæki með annars konar hestastarfsemi ekki sóst eftir þátttöku í verkefninu. En hvað er til ráða ef beitarland þeirra er æskja þátttöku í Hagagæðum stenst ekki sett ástandsviðmið? Bjarni segir að Landgræðslan geti boðið viðkomandi upp á aðstoð við gerð þriggja ára úrbótaáætlunar, sem hefur það að markmiði að í lok tímans uppfylli beitarlandið sett viðmið um landnýtingu. Úrbætur taka mið af ástandi og eðli landsins og geta annaðhvort eða bæði falist í uppgræðslu lands og bættri beitarstýringu. Ástandsviðmið Hagagæða eru það rúm að ef beitarland jarðar stenst ekki úttekt er næsta víst að beitarstýring er ekki í lagi á viðkomandi stað. Bjarni segir að áhugi sé fyrir Hagagæðum. „Við höfum fengið fyrirspurnir frá áhugasömum landnotendum sem vonandi leiðir til þátttöku. Í öðru lagi er greinilegt að þátttakendur huga betur að beitarstýringu en áður. Í þriðja lagi má nefna að starfsfólki Landgræðslunnar er nauðsynlegt að fara sem víðast um sveitir og fylgjast með landnýtingu, þjálfast í landlæsi og mynda tengsl við þá sem nýta landið. Ætlunin er að meta reynsluna af þessu fyrsta starfsári og þróa verkefnið áfram 2018.“ Bjarni segir að oft sé spurt hvaða gagn viðkomandi hafi af því að vera með í Hagagæðum. Hagagæði geta sparað hey „Því er til að svara að það er fyrst og fremst undir viðkomandi komið hvort og þá hvernig hann geti hagnýtt sér þátttökuna. Leiði Hagagæði til betri beitarstýringar og búmennsku er næsta víst að spara má hey á viðkomandi búi. Ef fullorðin, væn hross hafa aðgang að grösugum haga að hausti og vetri þurfa þau sáralitla heygjöf, enda sé bæði gott skjól og vatn til staðar. Hey kostar peninga og hagur bóndans að bruðla ekki með það. Sífellt fleira hestafólki er umhugað um að aðbúnaður hrossa sé sem bestur bæði á húsi og í haga. Ætla má að hrossakaupendur, ekki síst erlendir, taki æ meira mið af þeim aðstæðum sem hross alast upp við þegar þeir ákveða kaup á hrossum hérlendis. Því gæti sá bóndi, sem hlotið hefur þá viðurkenningu sem í Hagagæðum felst, haft aukna sölumöguleika fyrir sín hross. Einnig má nefna að hannað hefur verið sérstakt einkennismerki (logo) fyrir Hagagæði, sem þátttakendur geta notað starfsemi sinni til framdráttar, t.d. á heimasíðum sínum.“ /ÁÞ 1. Sauðanes Ágúst M. Ágústsson/Steinunn Halldórsdóttir Norður-Þingeyjarsýsla 2. Bakki, Svarfaðardal Þór Ingvason Eyjafjarðarsýsla 3. Bringa Bringa ehf. Sverrir Reynir/Guðbjörg Jóna Eyjafjarðarsýsla 4. Hólsgerði Brynjar Skúlason/Sigríður Bjarnadóttir Eyjafjarðarsýsla 5. Jarðbrú Þorsteinn Hólm Stefánsson/Þröstur Karlsson Eyjafjarðarsýsla 6. Litla-Brekka Vignir Sigurðsson Eyjafjarðarsýsla 7. Ásgeirsbrekka Jóhann Ingi Haraldsson Skagafjarðarsýsla 8. Enni Haraldur þ. Jóhannsson/Eindís Kristjánsdóttir Skagafjarðarsýsla 9. Flugumýri II Flugumýri ehf. Anna Sigurðardóttir Skagafjarðarsýsla 10. Hafsteinsstaðir Skapti Steinbjörnsson/Hildur Claessen Skagafjarðarsýsla 11. Hólar í Hjaltadal Hólaskóli Skagafjarðarsýsla 12. Hverhólar Freysteinn Traustason/Birna S. Hafsteinsdóttir Skagafjarðarsýsla 13. Íbishóll Íbishóll ehf, Magnús Bragi/Elisabeth Jansen. Skagafjarðarsýsla 14. Kálfsstaðir Ólafur Sigurgeirsson/Sigríður Björnsdóttir Skagafjarðarsýsla 15. Nautabú Karen Steindórsdóttir/Eyjólfur Þórarinsson Skagafjarðarsýsla 16. Tunguháls II Þórey Helgadóttir Skagafjarðarsýsla 17. Víðidalur/Kirkjuhóll Pétur Stefánsson Skagafjarðarsýsla 18. Ytra-Skörðugil Ingimar Ingimarsson Skagafjarðarsýsla 19. Ytra-Vallholt Vallholt ehf. Björn og Harpa Skagafjarðarsýsla 20. Geitaskarð Íslensk hrossarækt Austur-Húnavatnssýsla 21. Hof í Vatnsdal Jón Gíslason/Eline Schrijver Austur-Húnavatnssýsla 22. Hólabak Björn Magnússon Austur-Húnavatnssýsla 23. Steinnes Magnús Jósefsson Austur-Húnavatnssýsla 24. Auðunnarstaðir I Júlíus G. Antonsson Vestur-Húnavatnssýsla 25. Stóra-Ásgeirsá Elías Guðmundsson/Magnús Á. Elíasson Vestur-Húnavatnssýsla 26. Ytri-Þóreyjarnúpur Þórey ehf./ Gerður Hauksdóttir Vestur-Húnavatnssýsla 27. Þóreyjarnúpur Þóreyjarnúpshestar ehf./Halldór G.Guðnason Vestur-Húnavatnssýsla 28. Hjarðarholt Þorvaldur T. Jónsson/Hrefna B. Jónsdóttir Mýra-og Borgarfjarðarsýsla 29. Lundar II Sigbjörn Björnsson Mýra-og Borgarfjarðarsýsla 30. Oddsstaðir I Sigurður O. Ragnarsson/Guðbjörg Ólafsdóttir Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 31. Ölvaldsstaðir IV Guðrún Fjeldsted Mýra-og Borgarfjarðarsýsla 32. Hömluholt Gísli Guðmundsson Snæfellsnessýsla 33. Auðsholtshjáleiga/Grænhóll Gunnar Arnarson Árnessýsla 34. Hólar í Árborg Ímastaðir ehf./Einar Hallsson Árnessýsla 35. Hraun I Hrafnkell Karlsson Árnessýsla 36. Hvoll I Ólafur H. Einarsson Árnessýsla 37. Litlaland Sveinn Steinarsson Árnessýsla 38. Árbæjarhjáleiga Kristinn Guðnason/Marjolijn Tiepen Rangárvallasýsla 39. Ásborg Eydís Þ. Indriðadóttir Rangárvallasýsla Rangárvallasýsla 41. Hemla Vignir Siggeirsson/Lovísa Ragnarsdóttir Rangárvallasýsla 42. Kirkjubær Kirkjubæjarbúið/Ágúst Sigurðsson Rangárvallasýsla 43. Oddhóll Sigurbjörn Bárðarson Rangárvallasýsla 44. Vakursstaðir Valdimar og Hjörtur Bergstað Rangárvallasýsla HAGAGÆÐI Árið 2017 stóðust eftirtalin hrossabú úttektir vegna landnýtingar Bjarni Maronsson, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Norðurlandi vestra, og Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda. Mynd / ÁÞ HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Einkennismerki Hagagæða. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.