Bændablaðið - 15.11.2018, Side 12

Bændablaðið - 15.11.2018, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201812 Fjórir einstaklingar, sem jafnframt allir eru bændur eða frístundabændur í Borgarfirði, hafa keypt Sláturhús Vesturlands ehf. í Borgarnesi. Þetta eru þau Þorvaldur T. Jónsson í Hjarðarholti, sem er framkvæmdastjóri, Eiríkur Blöndal, Jaðri sem er stjórnarformaður, Guðrún Sigurjónsdóttir á Glitstöðum, auk þess sem Guðjón Kristjánsson, sem var sláturhússtjóri í fyrra rekstrarformi, er nú kominn í þennan hóp. Félagið er rekstrarfélag Sláturhússins í Borgarnesi og hefur gert leigusamning við eigendur hússins til 10 ára. Bændurnir voru áður með húsið og reksturinn á leigu, eða frá hausti 2017. Þar áður hafði Guðjón rekið sláturhúsið með þremur bræðrum sem enn eiga húsnæðið; Jóni Sævari, Snorra og Kristni Þorbergssonum. Að sögn Þorvaldar hefur reksturinn gengið vel í haust. „Það hefur gengið vel að slátra í haust og við erum enn að slátra sauðfé. Þetta er svipað og í fyrra, en nú fórum við ekkert af stað fyrr en í byrjun október. Við ætlum að slátra allan ársins hring og stefnum að stórgripaslátrun þegar sauðfjárslátrun lýkur. Það hefur verið talsverð eftirspurn hjá bændum um slátrun hjá okkur – líklega svipað og í fyrra og við erum mjög sátt við það, enda verkefni verið umfram væntingar. Sláturhúsið verður enn um sinn rekið sem þjónustusláturhús, en í framtíðinni er stefnt á að hægt verði að selja frá því, fyrir þá bændur sem eru í föstum viðskiptum. /smh FRÉTTIR NÚ BROSIR NÓTTIN Ævisaga refaskyttunnar Guðmund- ar Einarssonar sem var goðsögn í lifanda lífi. Hér er líst samskiptum náttúrubarns 19. aldar við landið og lífríki þess. UNDIR HRAUNI Spennandi frásögn sem byggir á raunveru- legum atburðum þegar tveir þýskir skip- brotsmenn flúðu undir breska hernum upp í Hekluhraun og unnu þar í púlsvinnu fyrir Selsundsbónda. FORYSTUFLEKKUR Fallegar dýrasögur úr gamla bændasamfé- laginu sem lýsa ástríku sambandi manna og dýra sem og einstökum vitsmunum málleysingjanna. KYNNIR NÝJAR BÆKUR: Sauðfjárslátrun 2018: Sláturlömbum fækkar en meðalvigt hærri milli ára Meðalfallþungi sláturlamba í haust var 0,15 kílóum hærri í haust en á síðasta ári. Fallþungi sláturlamba á Norðurlandi var hærri en á Suðurlandi og í ár var slátrað meira af fullorðnu fé og hrútum en í fyrra. Meðalfallþungi dilka á nýliðinni sláturtíð var 16,56 kíló, sem er 0,15 kílóum meira en á síðasta ári. Heildarfjöldi sláturlamba hefur aftur á móti dregist saman úr 599.954 árið 2017 í 542.674 árið 2018. Meiru af fullorðnu fé var slátrað í ár en í fyrra. Alls var í ár slátrað 59.500 ám og hrútum í haust sem er 4.350 minna en á síðasta ári. Lægri meðalvigt á Suðurlandi Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir að fallþungi norðanlands hafi verið hærri en sunnanlands. „Tíðin sunnanlands í vor var erfið og í sumum tilfellum geltust ærnar hreinlega upp og meðalþyngd dilka hjá okkur var 16,5 kíló 2017 en var 16,3 kíló í ár. Sláturlömbum fækkaði um 5% milli ára en þau voru 102.752 í fyrra en 97.352 í ár. Fullorðnu fé fjölgaði aftur á móti úr 11.425 í 11.831 milli ára. Steinþór segir að þar sem ærslátrunin er að aukast þrátt fyrir samdrátt í dilkum þá dragi hann þá ályktun að von sé á svipaðri fækkun næsta haust, eða 4–5%. Veruleg aukning í slátrun á fullorðnu fé Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, segir að sláturtíðin hafi gengið vel í ár. Bæði hvað varðar samvinnu við bændur og að fá fé til slátrunar. „Við rekum tvö sláturhús, annað á Húsavík og hitt á Höfn. Samanlagt felldum við 114.861 lamb og fullorðið fé á báðum stöðum. Fallþunginn á Húsavík var 16,7 kíló sem er 270 grömmum hærri en árið 2017 og hann var 16,3 sem einnig er 270 grömmum meiri en 2017.“ Ágúst segir aukningu vera í slátrun á fullorðnu fé milli ára. „Í ár slátruðum við 12.200 fullorðnum ám og hrútum en í fyrra 10.604. Þannig að aukningin er veruleg á milli ára.“ /VH Heimild: Búnaðarstofa MAST Bæ nd ab la ði ð / H Kr . Kg 16,30 Sláturfélag Suðurlands 16,49 Sláturhús KVH ehf. 16,70 SAH afurðir ehf. 16,54 Norðlenska, Húsavík 16,43 15,91 Fjallalamb 15,73 Norðlenska, Höfn 15,93 Sláturhús Vesturlands Seglbúðir Bændur kaupa Sláturhús Vesturlands ehf. í Borgarnesi: Nýtt rekstrarfélag leigir til tíu ára Guðjón Kristjánsson er í stjórn Sláturhúss Vesturlands ehf. Mynd / smh Styrkir til jarðræktar: Alls 1.531 umsókn vegna 76.710 hektara Í rammasamningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins sem tók gildi þann 1. janúar 2017 er kveðið á um fjármuni ætlaða til jarðræktar og landgreiðslna. Matvælastofnun sér um að ráðstafa þessum fjármunum til umsækjenda sem uppfylla tilskilin skilyrði samkvæmt gildandi reglugerð, en umsóknarfrestur er 20. október ár hvert. Úthlutun þessara styrkjaflokka kom til framkvæmdar í fyrsta skipti í fyrra, og þótti takast ágætlega til þó umsóknarferlið hafi að margra mati verið full flókið. Nú hefur það ferli hins vegar verið stórlega bætt og einfaldað en helstu breytingar fólust í því að nú sækir hver umsækjandi aðeins um á einni umsókn, en ekki nokkrum umsóknum eins og var í fyrra, en þá skiptust umsóknir annars vegar upp eftir hvort sótt var um landgreiðslu eða jarðræktarstyrk, og hins vegar upp eftir mismunandi landnúmerum sem umsækjandi hafði heimild til að nýta. Mikið og gott samstarf hefur verið á milli Búnaðarstofu Matvæla- stofnunar, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og búnaðarsambanda um land allt við undirbúning og framkvæmd umsóknarferlisins. Ráðgjafarmiðstöðin hefur haft umsjón með þróunarvinnu í skýrsluhaldsforritinu Jörð ásamt því að aðstoða bændur við skráningu ræktunar og uppskeru, en fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í Jörð er forsenda styrkveitingar. Búnaðarstofa hefur séð um þróun rafræna umsóknarkerfisins á Bændatorginu sem sækir allar upplýsingar um ræktun og uppskeru sjálfkrafa í Jörð. Búnaðarstofa hefur einnig veitt umsækjendum aðstoð við umsóknir og sér að lokum um að greiða út styrkina. Búnaðarsamböndin starfa svo á vegum Matvælastofnunar og sjá um úttektir á umsóknunum, en til þess nota þau t.a.m. gervihnattamyndir frá síðasta sumri ásamt því að hringja í og/eða heimsækja hluta umsækjenda. Samkvæmt reglugerð skal þessari úttektarvinnu vera lokið fyrir 15. nóvember ár hvert, og hefur Búnaðarstofa þá fram til áramóta að greiða út styrkina. Í ár bárust í heildina 1.531 umsókn. Sótt var um landgreiðslur vegna 76.710 uppskorinna hektara og jarðræktarstyrk vegna 10.404 ræktaðra hektara. Þetta er sambærilegt við umsóknir síðasta árs en þó ekki sú aukning sem gert var ráð fyrir. Mýrdalshreppur: Víkurþorp færi á flot í stóru jökulhlaupi úr Kötlu Sveitarstjórn Mýrdals- hrepps hefur sent dóms- málaráðherra erindi þar sem óskað er eftir því við ráðherra að nýr varnar garður austan Víkurþorps, vegna jökul hlaups í kjölfar eldgoss í Kötlu, komist til framkvæmda sem allra fyrst. Ný hermun, sem unnin var af verkfræðistofunni Vatnaskil fyrir Lögreglustjórann á Suðurlandi, sýnir glöggt að hætta er á að flóð nái alla leið til Víkur. „Fjárhagslegt tjón af slíku flóði yrði gífurlegt svo að áætlaður kostnaður við gerð nýs varnargarðs bliknar í samanburði. Um leið leggur sveitarstjórn áherslu á að varnargarður austan Höfðabrekku verði grjótvarinn og e.t.v. hækkaður“, segir m.a. í erindinu. Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri í Vík, segir að Víkurþorp muni fara á flot verði stórt jökulhlaup í kjölfar eldgoss í Kötlu. „Tjónið af slíku hlaupi hleypur á bilinu 6 til 13 milljarðar, hefur þá mikið að segja hvort um vatns- eða aurflóð yrði að ræða. Kostnaðurinn hins vegar við varnargarðinn niður af Víkurkletti með upphækkun á vegi er talinn vera einungis um 100 milljónir, lítið í stóra samhenginu. Ef við fengjum þennan varnargarð þá myndi það breyta öllum forsendum varðandi viðbragð við Kötluhlaupi, að öllum líkindum þyrfti þá ekki að rýma húsin og allar forsendur varðandi skipulagningu á þorpinu væru breyttar,“ segir Þorbjörg. /MHH Þorbjörg Gísladóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.