Bændablaðið - 15.11.2018, Page 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 17
Segja má að frysting á
karfa hafi byrjað hér fyrir
einskæra tilviljun hjá HB &
Co á Akranesi. Í viðtali við
Harald Böðvarsson sjötugan
í Morgunblaðinu í maí
1959 víkur hann að upphafi
karfavinnslunnar. Einnig er
sagt frá upphafinu í ævisögu
Haraldar, „Í fararbroddi“, sem
Guðmundur Gíslason Hagalín
skráði.
Farið heldur illa með
verðmætin
Haraldur rifjar upp í
Morgunblaðsviðtalinu að vinnsla
á karfa hafi að mestu verið óþekkt
til ársins 1949. Á þessum árum
var karfinn bræddur í stórum
stíl meðal annars á Akranesi. Þá
var það að bandarískur maður í
þjónustu Sameinuðu þjóðanna,
Cooley að nafni, var í heimsókn
hér á landi. Sturlaugur, sonur
Haraldar, tók á móti honum. Þar
sem þeir fóru um var togari að
landa karfa til bræðslu. Cooley
staldraði við og spurði hvað
Íslendingar kölluðu þennan fisk.
Sturlaugur sagði að þetta væri
karfi en Englendingar kölluðu
hann redfish.
Cooley sagðist ekki betur
sjá en að þetta væri sami fiskur
og nefndur væri ocean perch í
Bandaríkjunum og vildi fá að vita
hvort mikið veiddist af honum
hér. Honum var sagt að karfanum
væri mokað upp. Stundum væri
sjórinn rauður af dauðum karfa
í kringum togarana. Hann væri
ekki nýttur til manneldis, en
unnið úr honum mjöl og lýsi. Í
ævisögu Haraldar segir að Cooley
hafi þagað við og hrist höfuðið
en sagt síðan: „Ef þetta er ocean
perch, sem ég held endilega að
það sé, þá má víst segja, að þið
farið heldur illa með verðmætin.“
Eftirsóttur fiskur í
Bandaríkjunum
Cooley og Sturlaugur settust
síðan niður og flettu upp
latneska heitinu á karfanum og
sannfærðust um að þetta væri
fiskurinn sem Bandaríkjamenn
kölluðu ocean perch, en sá fiskur
var einhver eftirsóttasti fiskur í
Bandaríkjunum. Cooley lýsti
því hvernig karfinn væri unninn
í Bandaríkjunum. Hann væri
settur í vél áður en hann væri
flakaður og þar væru brotnir af
honum gaddarnir og bolurinn
afhreistraður.
Cooley dvaldi nokkra daga á
Akranesi. Áður en hann fór hafði
verið flakaður og frystur einn
bílfarmur af karfa í hraðfrystihúsi
HB & Co. Sýnishorn af frystu
karfaflökunum voru send til
Bandaríkjanna og líkaði ágætlega.
Eftir það hófst vinnsla á karfa af
fullum krafti og fór hann allur
á Ameríkumarkað. Togararnir
komu eftir það iðulega til
Akraness og losuðu karfa jöfnum
höndum til flökunar, en einnig til
vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni
eftir því hve mikið barst að.
Karfavinnsla þróaðist hratt
og árið 1952 voru komnar
flæðilínur þess tíma hjá HB &
Co og karfanum var pakkað í
mismunandi neytendapakkningar.
Rösklega 100 handflakarar unnu
við karfann þegar mest var. HB
& Co gerði ekki út togara á
þessum árum en samið var við
Bæjarútgerð Akraneskaupstaðar
um kaup á karfa af síðutogurunum
Bjarna Ólafssyni AK og Akurey
AK. /kjartanst@simnet.is
REKI EHF
EFTIR FARSÆL 30 ÁR
HORFUM VIÐ STOLTIR FRAM VEGINN.
SÍMI: 562 2950www.reki.is
VIÐ ÞÖKKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR
30 FARSÆL ÁR Í REKSTRI OG HORFUM
STOLTIR FRAM VEGINN.
110 REYKJAVÍKHÖFÐABAKKA 9
Hvaða fiskur
er þetta?