Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 17

Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 17 Segja má að frysting á karfa hafi byrjað hér fyrir einskæra tilviljun hjá HB & Co á Akranesi. Í viðtali við Harald Böðvarsson sjötugan í Morgunblaðinu í maí 1959 víkur hann að upphafi karfavinnslunnar. Einnig er sagt frá upphafinu í ævisögu Haraldar, „Í fararbroddi“, sem Guðmundur Gíslason Hagalín skráði. Farið heldur illa með verðmætin Haraldur rifjar upp í Morgunblaðsviðtalinu að vinnsla á karfa hafi að mestu verið óþekkt til ársins 1949. Á þessum árum var karfinn bræddur í stórum stíl meðal annars á Akranesi. Þá var það að bandarískur maður í þjónustu Sameinuðu þjóðanna, Cooley að nafni, var í heimsókn hér á landi. Sturlaugur, sonur Haraldar, tók á móti honum. Þar sem þeir fóru um var togari að landa karfa til bræðslu. Cooley staldraði við og spurði hvað Íslendingar kölluðu þennan fisk. Sturlaugur sagði að þetta væri karfi en Englendingar kölluðu hann redfish. Cooley sagðist ekki betur sjá en að þetta væri sami fiskur og nefndur væri ocean perch í Bandaríkjunum og vildi fá að vita hvort mikið veiddist af honum hér. Honum var sagt að karfanum væri mokað upp. Stundum væri sjórinn rauður af dauðum karfa í kringum togarana. Hann væri ekki nýttur til manneldis, en unnið úr honum mjöl og lýsi. Í ævisögu Haraldar segir að Cooley hafi þagað við og hrist höfuðið en sagt síðan: „Ef þetta er ocean perch, sem ég held endilega að það sé, þá má víst segja, að þið farið heldur illa með verðmætin.“ Eftirsóttur fiskur í Bandaríkjunum Cooley og Sturlaugur settust síðan niður og flettu upp latneska heitinu á karfanum og sannfærðust um að þetta væri fiskurinn sem Bandaríkjamenn kölluðu ocean perch, en sá fiskur var einhver eftirsóttasti fiskur í Bandaríkjunum. Cooley lýsti því hvernig karfinn væri unninn í Bandaríkjunum. Hann væri settur í vél áður en hann væri flakaður og þar væru brotnir af honum gaddarnir og bolurinn afhreistraður. Cooley dvaldi nokkra daga á Akranesi. Áður en hann fór hafði verið flakaður og frystur einn bílfarmur af karfa í hraðfrystihúsi HB & Co. Sýnishorn af frystu karfaflökunum voru send til Bandaríkjanna og líkaði ágætlega. Eftir það hófst vinnsla á karfa af fullum krafti og fór hann allur á Ameríkumarkað. Togararnir komu eftir það iðulega til Akraness og losuðu karfa jöfnum höndum til flökunar, en einnig til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni eftir því hve mikið barst að. Karfavinnsla þróaðist hratt og árið 1952 voru komnar flæðilínur þess tíma hjá HB & Co og karfanum var pakkað í mismunandi neytendapakkningar. Rösklega 100 handflakarar unnu við karfann þegar mest var. HB & Co gerði ekki út togara á þessum árum en samið var við Bæjarútgerð Akraneskaupstaðar um kaup á karfa af síðutogurunum Bjarna Ólafssyni AK og Akurey AK. /kjartanst@simnet.is REKI EHF EFTIR FARSÆL 30 ÁR HORFUM VIÐ STOLTIR FRAM VEGINN. SÍMI: 562 2950www.reki.is VIÐ ÞÖKKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR 30 FARSÆL ÁR Í REKSTRI OG HORFUM STOLTIR FRAM VEGINN. 110 REYKJAVÍKHÖFÐABAKKA 9 Hvaða fiskur er þetta?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.