Bændablaðið - 15.11.2018, Side 22

Bændablaðið - 15.11.2018, Side 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201822 Sá óvenjulegi heimsatburður átti sér stað í flugskýli flugfélagsins Ernis sunnudaginn 11. nóv- ember, að þar var tekið á móti norðlenskri forystukind sem kom fljúgandi frá Húsavík og henni gefið nafn með viðhöfn. Eigandi k indar innar, Guðni Ágústs son, fyrrverandi landbúnaðar ráðherra, var þar mættur ásamt fríðu föruneyti til að taka á móti kindinni. „Þetta er gert for ystukind inni til heiðurs. Hún er með mannsvit í veðrum, leiðir hjörðina og bónd ann heim,“ seg ir Guðni. Hóp ur manna kem ur ár lega sam an á kótilettu kvöldi í Þing- borg í Flóa til að safna fé til styrkt ar út gáfu Flóa manna bók ar. Þar eru kálf ar og ýms ir aðrir vinn ing ar í verðlaun í happ drætti og síðustu þrjú árin hef ur einnig verið meðal vinn inga for yst ugimb ur frá Skúla Ragn ars syni, bónda á Ytra-Álandi í Þistil f irði. Sá sem hreppti gimbrina í haust gat ekki tekið við henni og gerðu þeir Guðni þá kaup með sér og Guðni eignaðist kind ina. Gimbrin er þrílembingur undan Slyddu á Ytra-Álandi og Strump frá Gunnarsstöðum, svört með hvítar hosur. Guðni hringdi í Aðalstein Baldursson, verkalýðsforingja á Húsavík, og bað hann um að sækja fyrir sig svörtu gimbrina og koma henni suður. Gimbrina geymdi Aðalsteinn í bílskúrnum heima hjá sér og sendi síðan með áætlunarvél Ernis til Reykjavíkur á sunnudag. Tekið var við henni með viðhöfn á Reykjavíkurflugvelli. Hörður Guðmundsson, eigandi flugfélagsins, hellti yfir hana sunnlensku rigningarvatni úr glasi og gaf henni nafnið Flugfreyja. Guðni segir að Geir Gíslason, bóndi á Stóru-Reykjum í Flóa, muni fóstra gimbrina fyrir sig. Vænti Guðni þess að Flugfreyja muni fara fyrir kindahjörð hans, en hún verður þó ekki eina forystukindin í þeirri hjörð. „Forystukindin er sérstakt fjárkyn, einstakt á heimsvísu. Þyrfti að rannsaka það frekar, meðal annars hvaðan kynið er komið,“ segir Guðni. Við athöfnina var boðið upp á veglega tertu með nafni Flugfreyju undir mynd af henni sjálfri. Þá lýsti Ólafur R. Dýrmundsson stuttlega þessu einstaka fjárkyni. Árið 2015 var forystufé tekið um borð í Bragðörkina (Ark of Taste) hjá Stofnun Slow Food um líffræðilegan fjölbreytileika. Komst forystukindin þar inn ásamt sauðkindinni og landnáms- hænunni. Í Bragðörkinni er safnað saman gæðamatvælum sem eru talin búa yfir menningarlegu verðmæti og í útrýmingarhættu; til að mynda búfjár- kynjum, ávaxta- og græn metis tegundum, ostum, verkuðu kjöt- og fiskmeti og korn afurðum. Um 2.700 skráningar eru nú yfir matvæli í Bragðörkinni og eiga Íslendingar 13 þeirra – flestar Norðurlandanna. /HKr. LÍF&STARF Hörður Guðmunds son, eig andi flug fé lags ins Ern is og Guðni Ágústs son stilla sér upp til mynda töku með gimbrinni Flug freyju. Með Guðna eru dótt ur dæt ur hans, Eik og Eva Arn ars dæt ur. Fyrir aftan frá vinstri eru: Ágúst Ingi Ket- ils son, fjall kóng ur Flóa manna, Al dís Þór unn Bjarn ar dótt ir og Geir Gísla son á Stóru-Reykj um, sem munu vista Flugfreyju fyrir Guðna, og Ólafur R. Dýrmundsson, fyrrverandi landsráðunautur hjá BÍ. Myndir / HKr. Guðni Ágústsson fékk forystukind frá Ytra-Álandi í Þistilfirði senda frá Húsavík með farþegaflugvél Ernis: Var henni gefið nafnið Flugfreyja því að stökkva á hana sunnlensku rigningarvatni í votta viðurvist. Erni, gaf Guðna Ágústsyni fyrsta bitann af tertunni góðu. Næstur í röðinni var Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Guðni hinn mesti. Breytingum á fyrstu hæð Hótel Sögu lokið: Glæsileiki í anda þess sem Hótel Saga er þekkt fyrir Gestir Hótel Sögu eiga án efa eftir að reka upp stór augu þegar þeir heimsækja hótelið á næstunni. Viðamiklar breytingar hafa staðið yfir á fyrstu hæð Sögu undanfarna mánuði. Búið er að endurnýja gestamóttökuna og kominn er nýr veitingastaður og bar þar sem áður var Skrúður og Mímisbar. Miklar endurbætur og breytingar hafa átt sér stað á Hótel Sögu síðustu misserin. Elías Blöndal Guðjónsson, framkvæmdastjóri Bændahallarinnar ehf., segir að breytingarnar hafi staðið frá 2016. „Frá þeim tíma hafa verið gerðar miklar breytingar á innviðum hótelsins. Fyrsta árið voru gerð 27 ný hótelherbergi á þriðju hæð norðurbyggingarinnar, skipt út lyftum, lagnir lagaðar og loftræsting endurbætt. Þar á eftir var ráðist í endurbætur á Súlnasalnum og herbergin á fjórðu hæð gömlu byggingarinnar verið endurnýjuð að öllu leyti en með hliðsjón af upprunalegu hönnuninni. Strax í framhaldi af þeim breytingum loknum var farið í endurgerð á fyrstu hæð hússins og nánast allt rifið út. Glerhúsið sem var við hliðina á aðalinnganginum og hýsti Skrúð var rifið og gestamóttakan tekin í gegn.“ Fyrsta hæðin afhent Fyrsta hæðin var formlega afhent hótelinu miðvikudaginn 14. nóvember og er þar að finna nýja gestamóttöku, nýjan bar og nýjan veitingastað fyrir hundrað manns. Hugmyndafræðin að baki nýja veitingastaðnum er að eldhúsið er opið þannig að gestir geta séð hvað á sér þar stað. Hugmyndin er líka að nýta íslenskt hráefni og afurðir bænda eins og hægt er, eða eins og kokkarnir segja „from head to tail“. Á nýja staðnum er ekki hlaðborð eins og var á Skrúð og allir réttir af matseðli og á góðu verði. Næsta sumar stendur til að fara í framkvæmdir við útisvæði austan megin við hótelið, eða þar sem inngangurinn að Súlnasalnum er, og setja upp aðstöðu þar sem má borða úti þegar veður leyfir. Fyrsta hæðin er hjartað í húsinu Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri Hótel Sögu, segir að endurbætur á hótelinu hafi í mörgum tilfellum verið orðnar tímabærar þar sem víða hafi ekkert verið gert frá því að húsið var byggt. „Húsið er stórt og hefur verið ópraktískt í mönnun. Hér voru mörg eldhús og þau staðsett víða í húsinu, illa útbúin og mörg skref að fara. Veitingahlutinn var því dýr í rekstri. Við ákváðum því að fara út í breytingar sem myndi þjappa honum saman og nýta starfsmennina betur og spara þannig rekstrarkostnað. Mun betri nýting eftir breytingar Dæmi um betri nýtingu eftir breytingar er Súlnasalurinn sem áður var eingöngu í notkun nokkur kvöld á ári. Eftir breytinguna er hann orðinn að fjölnota sal bæði fyrir morgunmat fyrir hótelgesti og sem samkomusalur á kvöldin.“ Ingibjörg segir að nýi veitingastaðurinn á fyrstu hæð Hótel Sögu kallist Mímir og kallist það á við Mímisbar sem hefur verið færður aðeins til en er enn á sínum stað. „Aðalbreytingin á fyrstu hæðinni er sú að þar er búið að búa til eitt stórt svæði sem ég tel vera hjartað í húsinu þannig að fólk sem kemur í húsið finnur fyrir rýminu, birtunni og þeirri þjónustu sem er í boði. Eins og oft vill verða undu breytingarnar upp á sig en að þeim loknum er rýmið mun betur nýtt en samt í anda þess glæsileika sem Hótel Saga er þekkt fyrir.“ /VH Fyrsta hæð Hótel Sögu verður gjör- breytt frá því sem áður var. Elías Blöndal Guðjónsson, framkvæmdastjóri Bændahallarinnar ehf. og Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri Hótel Sögu. Myndir / VH Framkvæmdir komnar á lokasnúning.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.