Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201824 ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018 Fyrirtækið Expert kæling ehf.: Þjónustar bændur, iðnað og verslun – Með kæli- og frystibúnað, meðal annars fyrir matvæli og mjólkurtanka frá RØ-KA í Danmörku Fyrirtækið Expert kæling ehf. er ört vaxandi þjónustufyrirtæki sem er með snertifleti víða. Fyrirtækið leggur allt í að veita framúrskarandi þjónustu og sér meðal annars um viðhald og viðgerðir allra kæli- og frystitækja fyrir Coca Cola á Íslandi, N1, Samkaup og ýmsar útgerðir hérlendis. En á síðustu árum hefur fyrirtækið stóraukið þjónustu sína við bændur. Starfsmenn fyrirtækisins kynntu starfsemi þess á sýningunni Landbúnaður á Íslandi 2018 sem fram fór í Laugardalshöllinni í síðasta mánuði. Expert kæling er m.a. með umboð fyrir hina margrómuðu RØ-KA mjólkurkælitanka, sem eru í dag á fjórða hverjum bæ á Íslandi og hafa reynst framúrskarandi vel. Danska fyrirtæki RØ-KA industri A/S, er með aðsetur í Rødding í Danmörku. Það er með yfir 50 ára reynslu í framleiðslu á búnaði sem er ætlaður til að kæla mjólk. Fyrirtækið framleiðir tanka í ýmsum stærðum, allt frá 5.000 til 40.000 lítra, bæði sem liggjandi eða síló tanka. Framleiðslan er seld til meira en 50 landa. „Þetta hefur gengið vel og hópur okkar viðskiptavina hefur farið ört vaxandi,“ sagði Sigurjón Guðmundsson, vélfræðingur og einn af eigendum Expert kælingar, í samtali við blaðamann Bændablaðsins. Fyrirtækið er nú með starfsstöðvar í Reykjavík, á Selfossi og Akureyri. Með kælikerfi fyrir mjólk, ýmiss konar iðnað og verslanir „Ég er búinn að vera í frysti- og kæligeiranum síðan 1992 og mínir samstarfsmenn eru með víðtæka starfsreynslu, svo innan fyrirtækisins er mjög öflug þekking og reynsla sem nýtist okkar viðskiptavinum. Við leggjum okkur fram við og sýnum mikinn metnað við að þjónusta landbúnaðinn. Þetta verður allt að vera í topplagi, því annars er fljótt að verða tjón sem er algjörlega ótækt. Þess vegna bjóðum við bakvaktar- og neyðarþjónustu fyrir þá viðskiptavini okkar sem eru með þjónustusamning. Sú þjónusta hefur sannað sig og bjargað miklum verðmætum á síðustu árum.“ Líka að þjónusta bruggverksmiðjur Þá segir Sigurjón að umfang örbrugg- verksmiðja hafi stóraukist á Íslandi. Þeirri starfsemi fylgi upp setningar, umsjón og eftirlit með rafmagns- og kælibúnaði sem Expert kæling hafi sinnt víða um land. Kolsýran mikið að koma í stað Freons og annarra kælimiðla Hefur tæknin eitthvað breyst varðandi efnin sem notuð eru sem kælimiðill? „Já, tæknin er að gjörbreytast. Hér áður voru bara fjögur kæliefni sem notuð voru. Þau voru Ammoniak, Freon 22, Freon 12 og Freon 502. Nú eru fjölmargar tegundir af alls konar blöndum. Kolsýran hefur verið að koma mjög sterk inn sem kælimiðill á liðnum misserum. Kolsýran hefur það fram yfir flest önnur efni að vera umhverfisvænni og er að verða mjög algeng í í íslenskum verslunum. Hún er hins vegar undir meiri þrýstingi en önnur hefðbundin kæliefni. Því þarf allt lagnakerfið og kútar að vera mun öflugri. Í stað þess að vera með þrýsting á kælikerfum í kringum 2 til 3 bör, getur þrýstingur í kolsýrukerfum náð allt upp í 130 bör,“ segir Sigurjón. Svona til að gefa fólki hugmynd um hvað Sigurjón er þarna að tala um þá getur þrýstingur í hjólbörðum fólksbíla kannski verið nálægt 30 pundum (psi) á tommu2, eða rétt rúmlega 2 bör. Því eru 130 bör nærri 63 sinnum meiri þrýstingur en í fólksbíladekki, eða 1.885 pund á fertommu. Lítil hætta á ferðum þó kolsýrukerfi leki „Þótt þrýstingurinn sé mikill er hættan fyrir fólk lítil þótt kerfið færi að leka. Í það minnsta ef ekki er um að ræða lokað rými þannig að það skapist súrefnisskortur. Það er bara kolsýra sem lekur út og því ekki hætta á íkveikju. Freon veldur svo sem ekki heldur íkveikju, því það er eðlisþungt og ryður súrefni frá eldi. Við bruna getur Freon hins vegar klofnað í hættuleg efnasambönd, sem kolsýra gerir ekki.“ Framkvæmdastjórinn með löng tengsl við landbúnaðinn Sigurður Frímann Emilsson, rafvirkjameistari og vélstjóri, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann stóð líka vaktina á bás Expert kælingar þegar Bændablaðið átti þar leið um. Hann er vel kunnugur bændum og þeirra þörfum, af áralangri þjónustu í sambandi við mjólkurtanka, mjaltavélar og annan búnað en Sigurður starfaði áður fyrir Mjólkurbú Flóamanna og Remfló ehf. á Selfossi. Sigurður er með aðsetur á Selfossi og hafði hann í nógu að snúast við að upplýsa bændur og aðra áhugasama gesti landbúnaðarsýningarinnar um undur kælitækninnar. /HKr. Sýningarbás Expert kælingar ehf. á landbúnaðarsýningunni Íslenskur landbúnaður 2018 sem haldin var í október í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Myndir / HKr. Félagarnir Sigurður Frímann Emilsson framkvæmdastjóri og Sigurjón Guðmundsson stóðu vaktina í bás Expert kælingar. Þeir höfðu í nógu að snúast við að sinna áhugasömum gestum. Bjórdælan sem Expert-menn útbjuggu úr gömlum mjólkurbrúsa vakti mikla athygli. Á honum var númerið 0183 en hann var frá kúabúi á Barðaströndinni. Var gaman að fylgjast með hvað margir gestanna kíktu eftir því hvort þeir könnuðust við bæjarnúmerið um leið og þeir biðu eftir dýrindis bjór úr dælunni – að sjálfsögðu veittu Expert-menn bjórinn Bónda, en það er nýr session IPA bjór, sem bruggaður er hjá Viking Brugg á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.