Bændablaðið - 15.11.2018, Side 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201828
Höskuldur Pálsson, rekstrarstjóri
Ísfugls í Mosfellsbæ, kynnti
starfsemi fyrirtækisins fyrir
gestum á Landbúnaðarsýningunni
í Laugardalshöll. Þar gaf hann
fólki jafnframt að smakka á
framleiðslunni.
Uppsetning á bás Ísfugls var
einföld en afar smekkleg. Þar komu
gestir að kjötborði þar sem sjá mátti
afurðirnar á bak við gler, en Ísfugl
hefur mikla sérstöðu á íslenskum
alifuglakjötsmarkaði.
Eini kalkúnaframleiðandi
landsins
„Um 50 manns starfa hjá Ísfugli.
Sérstaðan hjá Ísfugli er að við
erum eina fyrirtækið sem bjóðum
upp á íslenskar kalkúnaafurðir en
kalkúnninn kemur frá Reykjabúinu.
Auk þess eru allar okkar afurðir
rekjanlegar til framleiðanda,“ segir
Höskuldur.
Íslenskir kjúklingar og kalkúnar
Ísfugl vinnur og selur eingöngu
íslenska kjúklinga og kalkúna frá
Ísfuglsbændum. Fyrirtækið notar
engin fúkkalyf við eldi fuglanna.
Bændurnir leggja inn kjúklinga og
kalkúna til Ísfugls. Þar er fuglunum
slátrað og kjötið unnið og selt ýmist
ferskt eða frosið, soðið eða steikt
og unnið undir vörumerki Ísfugls.
Vörurnar eru seldar til verslana,
veitingastaða og mötuneyta.
Þú sérð frá hvaða Ísfuglsbónda
kjötið þitt kemur!
Ísfugl leggur ríka áherslu á að
neytendur geti séð á umbúðum
vörunnar frá hvaða búi hún kemur.
Allt ferskt og óunnið kjöt frá Ísfugli
er rekjanlegt til bónda. Um leið
og unginn kemur úr egginu fær
hann rekjanleikanúmer sem fylgir
honum allt til enda. Nafn búsins
kemur fram á umbúðum og á www.
isfugl.is getur neytandinn aflað sér
frekari upplýsinga um bóndann sem
ræktað hefur fuglinn sem keyptur
er hverju sinni. Þá eru þær afar
smekklega hannaðar og fanga strax
augu viðskiptavina.
Landbúnaðarsýningar mættu
vera oftar
Höskuldur sagði viðtökurnar hafa
verið afar góðar á sýningunni og fólk
hafi sýnt þeirra framleiðslu mikinn
áhuga.
„Ég held að svona sýning mætti
veru reglulega, kannski á þriggja ára
fresti. Ég held að það væri ekkert
of í lagt, allavega miðað við þann
gestafjölda sem hingað hefur komið.
Það eina sem vantar á þessa sýningu
eru fleiri matvælaframleiðendur.“
Kjötvinnsla reist
í Mosfellsbæ 1979
Ísfugl sláturhús og kjötvinnsla
var reist árið 1979 á Reykjavegi
í Mosfellsbæ og var þá í
eigu hlutafélags nokkurra
alifuglabænda. Þá hófst úrbeining
og vinnsla kjúklingakjöts
hérlendis, en fram að þeim tíma
höfðu kjúklingar aðeins verið
seldir frosnir í heilu lagi. Ísfugl
er elsta starfandi fyrirtækið í
greininni en forveri Ísfugls var
lítið fuglasláturhús sem Jón M.
Guðmundsson reisti á Reykjum
árið 1962. Þar slátraði Jón fyrir
sjálfan sig og nokkra aðra bændur.
Eigendur Ísfugls frá árinu 2012 eru
Jón Magnús Jónsson og Kristín
Sverrisdóttir, bændur á Reykjum,
en bændur Reykjabúsins hafa verið
hluthafar frá upphafi.
Með fyrsta A-vottaða
alifuglasláturhús landsins
Á Íslandi eru þrjú alifuglasláturhús.
Ísfugl framleiðir nú um 20%
af innlendu alifuglakjöti og er
jafnframt minnsta fyrirtækið á því
sviði á íslenska markaðnum. Ísfugl
er nú með A-vottun frá MAST, fyrst
alifuglasláturhúsa á landinu. Helsta
áskorun innlendrar framleiðslu er
að mæta auknum innflutningi næstu
árin.
Strangt eftirlit með
framleiðslunni
Ísfugl starfar undir ströngu eftirliti
Matvælastofnunar og það gera
bændur Ísfugls líka. Bændur
þurfa að taka campylobaktersýni
og salmonellusýni úr öllum
eldishópum áður en þeir koma
til slátrunar í Ísfugli. Annað
sýni er síðan tekið í sláturhúsi til
staðfestingar. Eftirlitsdýralæknir
Matvælastofnunar hefur daglegt
eftirlit með góðum starfsháttum og
velferð fuglanna í Ísfugli. /HKr.
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
SENDUM HVERT
Á LAND SEM ER!
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
NÝR DEKKJAVEFUR!
www.jeppadekk.is
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
Ísfugl í Mosfellsbæ:
Eini kalkúnaframleiðandi landsins
– Rík áhersla lögð á rekjanleikja og góðar upplýsingar fyrir neytendur á umbúðum
Höskuldur Pálsson segir að Ísfugl leggi ríka áherslu á að neytendur geti séð á umbúðum vörunnar frá hvaða búi hún kemur. Myndir / HKr.
Bás Ísfugls vakti greinilega áhuga bæði fullorðinna sem barna.