Bændablaðið - 15.11.2018, Page 28

Bændablaðið - 15.11.2018, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201828 Höskuldur Pálsson, rekstrarstjóri Ísfugls í Mosfellsbæ, kynnti starfsemi fyrirtækisins fyrir gestum á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll. Þar gaf hann fólki jafnframt að smakka á framleiðslunni. Uppsetning á bás Ísfugls var einföld en afar smekkleg. Þar komu gestir að kjötborði þar sem sjá mátti afurðirnar á bak við gler, en Ísfugl hefur mikla sérstöðu á íslenskum alifuglakjötsmarkaði. Eini kalkúnaframleiðandi landsins „Um 50 manns starfa hjá Ísfugli. Sérstaðan hjá Ísfugli er að við erum eina fyrirtækið sem bjóðum upp á íslenskar kalkúnaafurðir en kalkúnninn kemur frá Reykjabúinu. Auk þess eru allar okkar afurðir rekjanlegar til framleiðanda,“ segir Höskuldur. Íslenskir kjúklingar og kalkúnar Ísfugl vinnur og selur eingöngu íslenska kjúklinga og kalkúna frá Ísfuglsbændum. Fyrirtækið notar engin fúkkalyf við eldi fuglanna. Bændurnir leggja inn kjúklinga og kalkúna til Ísfugls. Þar er fuglunum slátrað og kjötið unnið og selt ýmist ferskt eða frosið, soðið eða steikt og unnið undir vörumerki Ísfugls. Vörurnar eru seldar til verslana, veitingastaða og mötuneyta. Þú sérð frá hvaða Ísfuglsbónda kjötið þitt kemur! Ísfugl leggur ríka áherslu á að neytendur geti séð á umbúðum vörunnar frá hvaða búi hún kemur. Allt ferskt og óunnið kjöt frá Ísfugli er rekjanlegt til bónda. Um leið og unginn kemur úr egginu fær hann rekjanleikanúmer sem fylgir honum allt til enda. Nafn búsins kemur fram á umbúðum og á www. isfugl.is getur neytandinn aflað sér frekari upplýsinga um bóndann sem ræktað hefur fuglinn sem keyptur er hverju sinni. Þá eru þær afar smekklega hannaðar og fanga strax augu viðskiptavina. Landbúnaðarsýningar mættu vera oftar Höskuldur sagði viðtökurnar hafa verið afar góðar á sýningunni og fólk hafi sýnt þeirra framleiðslu mikinn áhuga. „Ég held að svona sýning mætti veru reglulega, kannski á þriggja ára fresti. Ég held að það væri ekkert of í lagt, allavega miðað við þann gestafjölda sem hingað hefur komið. Það eina sem vantar á þessa sýningu eru fleiri matvælaframleiðendur.“ Kjötvinnsla reist í Mosfellsbæ 1979 Ísfugl sláturhús og kjötvinnsla var reist árið 1979 á Reykjavegi í Mosfellsbæ og var þá í eigu hlutafélags nokkurra alifuglabænda. Þá hófst úrbeining og vinnsla kjúklingakjöts hérlendis, en fram að þeim tíma höfðu kjúklingar aðeins verið seldir frosnir í heilu lagi. Ísfugl er elsta starfandi fyrirtækið í greininni en forveri Ísfugls var lítið fuglasláturhús sem Jón M. Guðmundsson reisti á Reykjum árið 1962. Þar slátraði Jón fyrir sjálfan sig og nokkra aðra bændur. Eigendur Ísfugls frá árinu 2012 eru Jón Magnús Jónsson og Kristín Sverrisdóttir, bændur á Reykjum, en bændur Reykjabúsins hafa verið hluthafar frá upphafi. Með fyrsta A-vottaða alifuglasláturhús landsins Á Íslandi eru þrjú alifuglasláturhús. Ísfugl framleiðir nú um 20% af innlendu alifuglakjöti og er jafnframt minnsta fyrirtækið á því sviði á íslenska markaðnum. Ísfugl er nú með A-vottun frá MAST, fyrst alifuglasláturhúsa á landinu. Helsta áskorun innlendrar framleiðslu er að mæta auknum innflutningi næstu árin. Strangt eftirlit með framleiðslunni Ísfugl starfar undir ströngu eftirliti Matvælastofnunar og það gera bændur Ísfugls líka. Bændur þurfa að taka campylobaktersýni og salmonellusýni úr öllum eldishópum áður en þeir koma til slátrunar í Ísfugli. Annað sýni er síðan tekið í sláturhúsi til staðfestingar. Eftirlitsdýralæknir Matvælastofnunar hefur daglegt eftirlit með góðum starfsháttum og velferð fuglanna í Ísfugli. /HKr. EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is SENDUM HVERT Á LAND SEM ER! JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður NÝR DEKKJAVEFUR! www.jeppadekk.is ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018 Ísfugl í Mosfellsbæ: Eini kalkúnaframleiðandi landsins – Rík áhersla lögð á rekjanleikja og góðar upplýsingar fyrir neytendur á umbúðum Höskuldur Pálsson segir að Ísfugl leggi ríka áherslu á að neytendur geti séð á umbúðum vörunnar frá hvaða búi hún kemur. Myndir / HKr. Bás Ísfugls vakti greinilega áhuga bæði fullorðinna sem barna.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.