Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 29
Hringhella 12, 221 Hafnarfjörður · Sími 565 1489 · isror@isror.is · www.isror.is
Hjá Ísrör færðu einangruð
hitaveiturör frá LOGSTOR
– Stálrör
– Stálfittings og samsetningar
– Pexrör
– Pexfittings og samsetningar
– PexElextra sveiganlegri plaströr
– Pexfittings og samsetningar
Og svo allt annað sem þarf til
hitaveitulagna
Nýtt hjá ÍSRÖR
Bjóðum nú kaldavatnslagnir
PE-100 og PE-80 ásamt
tilheyrandi fittings
Bjóðum einnig snjóbræðslurör
PP og PE
Líklega besta verðið
Öll verð eru í íslenskum krónum með vsk. og birtast með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur.
Tilboð gilda á meðan að birgðir endast.
gildir frá 15.10.-15.12.2018
Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is
SKOÐIÐ FLEIRI VORTILBOÐ FRÁ HOLZMANN Á
HEIMASÍÐU IÐNVÉLA: WWW.IDNVELAR.IS
WP20H
WP30PLUSWP20H WP30PLUS
verkstæðispressur WP20H & WP30PLUS
WP20H WP30PLUS
slag 190 mm 160 mm
þrýstingur 20 t 30 t
vinnusvæði 0-988 mm 166-1126 mm
stærð 850x1800 mm 780x750x1838 mm
þyngd 93 / 120 kg 170 / 206 kg
55.600,- 131.100,-
rafmagnshjól EKR20M
32.600,-
rafhlöðu borvél AKS45IND
23.500,-
tifsög DKS21PRO
20.467,-
rennibekkur tré D300F
55.000,-
rennibekkur og rennijárnasett
TILBOÐ
H AU S T
3 fasa - 1500/2200 W
20 m kapall
18 V - 2 lithium-ion rafhlöður
LÍF&STARF
Opnað fyrir skil á
haustskýrslum
– Hestamenn hvattir til að sinna skráningarskyldu
Matvælastofnun hvetur umráðamenn hrossa í þéttbýli sérstaklega til skila
á haustskýrslum. Mynd / HKr.
Matvælastofnun vekur athygli á að
opnað hefur verið fyrir skráningar
á haustskýrslur í Bústofni (www.
bustofn.is) og bendir á að nú
hafi verið ráðist í umbætur á
skráningarferlinu til að auðvelda
umráðamönnum hrossa í þéttbýli
skráninguna. Undanfarin ár hefur
borið á því að slíkar skráningar
hafi skort sem þó er skylt að sinna.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
kemur fram að í samræmi við reglur
(lög um búfjárhald nr. 38/2013)
skulu umráðamenn búfjár skila
árlega inn haustskýrslu fyrir 20.
nóvember um búfjáreign, fóður og
landstærðir.
Vantaðu upp á skil á
undanförnum árum
„Undanfarin ár hefur vantað
upp á að umráðamenn hrossa í
þéttbýli hafi skilað haustskýrslu
lögum samkvæmt. Til að auðvelda
u m r á ð a m ö n n u m / e i g e n d u m
hrossa í þéttbýli að ganga frá
haustskýrslu hefur Matvælastofnun
ráðist í umtalsverðar umbætur á
skráningarferlinu. Umráðamenn/
eigendur hrossa geta í ár sótt
upplýsingar úr WorldFeng,
upprunaættbók íslenska hestsins
(www.worldfengur.com), og byggja
upplýsingarnar á fjölda hrossa í
umráð viðkomandi.
Jafnframt er vakin athygli á að
umráðamenn hrossa sem aðeins
telja fram hross á haustskýrslu geta
nú skilað haustskýrslu í heimarétt
WorldFengs. Nánari leiðbeiningar
um skil á haustskýrslum er að finna
á heimasíðu Matvælastofnunar og í
heimarétt WorldFengs.
Allir félagar í hestamannafélögum
Landssambands hestamannafélaga
og félögum Félags hrossabænda um
allt land eiga að hafa frían aðgang
að WorldFeng. Þeir sem hafa ekki
þann aðgang geta hins vegar skráð
sig inn í WorldFeng með sérstökum
hjarðbókaraðgangi, sem var opnaður
í vikunni. Þeir sem ekki hafa tök á
því að skila sjálfir stendur til boða
þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins.
Nánari upplýsingar veitir
Matvælastofnun (dýraeftirlitsmenn
og búnaðarstofa),“ segir í tilkynningu
Matvælastofnunar /smh
VÍS hyggst loka útibúi
í Húnaþingi vestra
– Sveitarstjóra falið að segja upp tryggingum
Sveitarstjórn Húnaþings
vestra fól sveitarstjóra á
dögunum að segja upp
samningi sveitarfélagsins við
VÍS fyrir 1. júlí 2019 og leita
tilboða í tryggingar hjá þeim
tryggingarfélögum sem treysta
sér til að þjónusta samfélagið með
viðunandi hætti.
Lokun útibús Vís á
Hvammstanga var rædd á fundi
sveitarstjórnar Húnaþings vestra
nýverið og þar tekið heils hugar
undir bókun byggðaráðs og gerir
sveitarstjórn hana að sinni. Þar er
harðlega mótmælt boðaðri lokun
útibús VÍS í Húnaþingi vestra.
„Aðgerðir sem þessar bitna verulega
á íbúum landsbyggðarinnar sem
þurfa sífellt að sækja þjónustu um
lengri veg. Með lokun útibúsins er
engin þjónusta frá Vís aðgengileg
á atvinnusvæði íbúa Húnaþings
vestra,“ segir í bókuninni.
Fram kemur einnig að
ljósleiðaravæðingu landsins hafi
meðal annars verið ætlað að gera
fólki kleift að stunda vinnu sína
hvar á landi sem er. Þrátt fyrir þá
miklu tæknibyltingu virðist gæta
þess misskilnings hjá stjórnendum
stórfyrirtækja að hennar helsta
hlutverk sé að safna sem flestu
starfsfólki undir sama þak og þá
helst á dýrasta stað í höfuðborg
landsins, frekar en að gera fólki
alls staðar að af landinu kleift að
sinna viðkomandi störfum.
„Erfitt er að sjá að þessi þróun
sé viðskiptavinum í vil, enda hefur
hvergi komið fram að þessi þróun
verði til að lækka iðgjöld þeirra,“
segir í bókun sveitarstjórnar
Húnaþins vestra sem jafnframt
hvetur stjórn VÍS til að endurskoða
ákvörðun sína með það að markmiði
að viðhalda góðri þjónustu við
landsbyggðirnar. /MÞÞ
Ný einangrunarstöð fyrir hunda og ketti
E i n a n g r u n a r s t ö ð i n
Mósel í Holtum í Rang-
ár þingi ytra er ný ein-
angrunarstöð sem var
nýlega opnuð fyrir hunda
og ketti.
Eigendur stöðvarinnar
eru þau Ingvar Guðmunds-
son og Jóhanna Þorbjörg
Magnúsdóttir. Í stöðinni
er pláss fyrir sextán hunda
í einu og einn kött. Hver
hundur hefur sitt herbergi
með aðgangi að útiaðstöðu.
Kötturinn hefur svítu undir
sig en stefnt er að því að
hægt verði að taka þrjá
ketti inn í stöðina í einu.
„Viðtökurnar hafa
verið frábærar, við og
eigendur dýranna sem
koma hingað erum í
skýjunum, hér er aðstaða
til fyrirmyndar og frábært
að sjá hvað dýrunum
líður vel hjá okkur,“ segir
Jóhanna.
Hver hundur þarf
að vera í einangrun á
stöðinni í 28 daga. /MHH
Ingvar og Jóhanna við hliðið á nýju einangrunarstöðinni
sem þau hafa opnað. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson