Bændablaðið - 15.11.2018, Side 31

Bændablaðið - 15.11.2018, Side 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 31 Talsvert hefur borið á sveppasmiti í byggökrum í ár. Svo víða reyndar að fregnir eru af svepp í öllum landshlutum og meira að segja eru fréttir af sveppasmiti í byggökrum í nýrækt. Helsta sveppategundin sem herjar á bygg hér á landi er augnflekkur (Rhynchosporium commune). Augnflekkur lifir í leifum byggplantna í jarðvegi og smitar því nýja akra árið eftir og getur þannig ræktast upp í byggökrum þar sem ekki eru stunduð sáðskipti. Bændur hafa eðlilega spurt sig hvort sveppurinn hafi borist með sáðvöru erlendis frá, á því verða að teljast hverfandi líkur. Innfluttar sáðvörur eru vottaðar og ef smit hefur fundist þá er fræið bæsað með sveppavörn áður en það er flutt til landsins. Rannsókn á íslenskum afbrigðum af augnflekk sýndu að það er lítill skyldleiki á milli íslenskra og evrópskra augnflekksafbrigða (Stéfansson et al. 2012). Blautt tíðarfar eykur líkur á smiti í plöntum og úrhellis rigning hjálpar honum að dreifast um akurinn, sumarið í ár hefur því verið mjög hagstætt fyrir sveppi. Prófanir hérlendis hafa sýnt fram að augnflekkur getur valdið töluverðu uppskerutapi allt að 24% (Hermannsson og Sverrisson, 2003). Til að forðast að smit byggist upp er mælt með að nota sáðskipti og rækta þá ekki bygg meira en tvö ár í röð í sama akri. Annar valmöguleiki er að úða varnarefnum gegn sveppnum, það telst þó ekki sem varanleg lausn því hún getur leitt til aukinnar notkunar sveppvarnarefna. Önnur lausn á vandanum er að kynbæta ný yrki með mótstöðu gegn augnflekk og er sú vinna þegar hafin hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með samnorrænu verkefni sem ber heitið „Public-Private Partnership in Pre- Breeding – Combining Knowledge from Field and Laboratory for Pre-Breeding in Barley“. Sumarið 2018 var lögð út tilraun með 125 byggplöntum og voru þær svo allar smitaðar af sérstökum íslenskum stofni af augnflekk. Plönturnar voru síðan metnar með tilliti til hversu móttækilegar þær voru sveppasmitinu. Frumniðurstöður tilraunarinnar benda til þess að arfgerðirnir hafa mismikla mótstöðu gagnvart sveppnum, og hafa þær bestu góða mótstöðu. Erfðaefni plantnanna er svo greint til að finna megi gen sem veita mótstöðu gagnvart augnflekk, þær upplýsingar er hægt að nota í kynbætur nýrra yrkja, sem og til að greina hvort yrki sem þegar eru á markaði hafi mótstöðugen gegn sveppnum. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Höfundar: Hrannar Smári Hilmarsson Magnus Göransson Heimildir Jónatan Hermannsson og Halldór Sverrisson, 2003. Augnblettur í byggi á Íslandi. Ráðunautafundur 2003, 180–182. Tryggvi S. Stefansson, Marjo Serenius og Jon Hallsteinn Hallsson, 2012. The genetic diversity of Icelandic populations of two barley leaf pathogens, Rhynchosporium commune and Pyrenophora teres. European Journal of Plant Pathology 134:167–180. „Matvælaframleiðsla verður eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna á þessari öld,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ) nýverið. Og leggja þyrfti sérstaka áherslu á að uppfræða börn um matvælaframleiðslu og kynna fyrir þeim hvaðan matvæli koma og hvernig framleiðsluferli væri háttað, auk þess sem móta þyrfti framtíðarsýn matvælalandsins Íslands: „Þarna þurfum við að vinna þvert á ráðuneyti og stofnanir og setja okkur stefnu þannig að við byggjum hér upp matvælaframleiðslu, tryggjum matvæla- og fæðuöryggi, drögum úr matarsóun, berjumst gegn loftslagsbreytingum, eflum lýðheilsu og aukum nýsköpun og þróun á sviði matvælaframleiðslu,“ sagði Katrín. Ég get tekið heilshugar undir þetta hjá forsætisráðherra og þá er að vinna að því að svo verði. Eitt fyrsta verk forsætisráðherra í þeim efnum er að taka ýmsa samráðherra sína og þingmenn á skólabekk fyrir þessa framtíðarsýn og ekki síst landbúnaðarráðherrann sjálfan sem lýsti því í grein í MBL nýverið að ekkert annað væri framundan en að leggjast flatur fyrir kröfum ESB um óheftan innflutning á hráu ófrosnu kjöti og tollfrjálsum innflutningi matvara. Og í samræmi við stefnu lagði hann niður sérstaka skrifstofu landbúnaðar og matvæla í ráðuneytinu, en færði reyndar leifarnar undir Brüssel-skrifstofuna. Fékk ráðherrann ómælt lof frá forvera sínum á ráðherrastól þegar þeirri ráðstöfun var mótmælt á Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er einlæg í baráttunni fyrir inngöngu í ESB og leist vel á þessa ráðstöfun fyrrum flokksbróður síns. Nú þarf forsætisráðherra að taka stefnuna Á hinn bóginn heyrum við hástemmdar yfirlýsingar ríkis- stjórnar innar um baráttu gegn loftslagsbreytingum og skuldbindingum Íslands í þeim efnum og þá ekki hvað síst horft til landbúnaðar- og matvælaframleiðslu. „En þar stendur hnífurinn í kúnni. Við leysum ekki loftslagsskuldbindingar Íslendinga né heldur fullnægjum stefnunni um sjálfbæra þróun með því að hætta hér matvælaframleiðslu og flytja allt inn þó svo kolefnisbókhaldið okkar vænkist tímabundið á blaðinu. Herðum frekar löggjöfina íslenskri framleiðslu í hag Formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, sparar ekki stóru orðin í ágætri grein sem birtist í Morgunblaðinu: „Á Íslandi höfum við verið svo lánsöm að búa við þær aðstæður að íslenskar landbúnaðarafurðir eru með því heilnæmasta sem finnst í heiminum. Búfjársjúkdómar eru sjaldgæfir vegna legu landsins og vegna þess hvernig bændur hafa staðið að búskap sínum. Við erum því í einstakri og eftirsóknarverðri stöðu þegar kemur að því að kaupa í matinn. Við getum valið íslenskt og verið örugg um það að sú vara er með því öruggasta og besta sem fyrirfinnst í matvöruverslunum í heiminum. ... Kannski ættum við í ljósi rannsókna að herða frekar löggjöfina þegar kemur að innflutningi á matvælum heldur en að gefa eftir.“ Nú er hann í ríkisstjórn og getur fylgt málum eftir. „Við stjórnmálamenn að eiga“ Segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknar flokksins og ráðherra, sem lætur ekki sitt eftir liggja í ágætri grein í Bændablaðinu: „Við eigum að efla okkar varnir og varðstöðu vegna þess að engin þjóð býr við jafn góð og heilnæm matvæli eða jafn gott heilbrigðisástand búfjárstofna og jarðvegurinn ómengaður af eiturefnum.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir „aumingjaskap“ ríkisstjórnarinnar, hún hafi „ svikið íslenskan landbúnað og matvælaframleiðslu og bætti við í þeim efnum að aðeins tíu ár væru liðin frá því að landbúnaðurinn bjargaði landinu frá gjaldþroti“. Hreinleikinn er dýrmæt auðlind „Ræfildómur að reyna ekki að halda landinu hreinu“ sagði Margrét Guðnadóttir, okkar einn færasti veirusérfræðingur: „Það er alvarlegt mál ef hér koma upp nýir dýrasjúkdómar eða ólæknandi mannasjúkdómar. Ég treysti ekki þeim mönnum sem vilja flytja inn hrátt, ófrosið kjöt til að verja okkur fyrir þeim.“ Frá orði til athafna „Mikið asskoti komst ég vel að orði“ sagði kall einn þegar hann hafði látið móðan mása um eigið ágæti og allt það sem hann ætlaði að gera. Lagðist svo á koddann og ekki orð um það meir. Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir þarf að taka á sig rögg og láta gjörðir fylgja orðum. Til þess hefur hún alla burði. Við verðum að standa á fullveldisrétti þjóðarinnar og hafna valdi og kröfum ESB um innflutning á hráum kjötvörum. Segja upp tollasamningum sem gerður var í fullkominni eftirgjöf við ESB og semja algjörlega upp á nýtt í samræmi við þá stefnu sem forsætisráðherra hefur boðað. Í minni ráðherratíð var þessari tollaeftirgjöf og hömlulausa innflutningi landbúnaðarvara hafnað. Sjálfstætt landbúnaðar- og matvælaráðuneyti Stofna þarf sjálfstætt landbúnaðar- og matvælaráðuneyti og hrinda í framkvæmd stefnu og aðgerðaráætlun í að efla hér enn fjölbreyttari landbúnað og heilnæma matvælaframleiðslu, tryggja hér fæðuöryggi, berjast gegn loftslagsbreytingum á sönnum íslenskum forsendum. Þar eru mikil sóknarfæri og enn þá þarf líka pólitískur grunnur að vera kjölfestan. Sá grunnur virðist fyrir hendi ef menn standa við orð sín. Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra LESENDABÁS Orðum fylgi athafnir S é r þ e k k i n g s p a r a r t í m a • Greining og ráðgjöf vegna mála varðandi fasteignir, eignarhald þeirra, stærð og afmörkun lóða og jarða. • Stofnun nýrra fasteigna og samruni þeirra. Aðstoð við skráningu á óskiptu landi. • Aðstoð við þinglýsingu skjala og samskipti vegna þeirra. • Aðstoð vegna mála varðandi fasteignaskatt, fasteignamat og brunabótamat þ.m.t. kærur til yfirfasteignamatsnefndar. • Gerð eignaskiptayfirlýsinga bæði fyrir fjöleignarhús og land og gerð skráningartaflna. • Aðstoð og ráðgjöf vegna jarða s.s. landskipta, stærðarskráningar, hlunninda, veiðiréttar, umferðarréttar og annarra kvaða. • Stjórnsýslukærur og samskipti við aðra opinbera aðila. • Öll lögfræðileg skjalagerð. LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF HVAÐA VERKEFNI ? S É R S V I Ð D I R E K T U E R F A S T E I G N A R É T T U R Direkta lögfræðiþjónusta | Bæjarhrauni 22 | 220 Hafnarfirði. Sími 571 8600 | direkta@direkta.is | www.direkta.is Jón Bjarnason. Sveppasmit í byggökrum Mynd / Magnus Göransson

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.