Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201836
Samtökin Guild of Fine Food með heimsmeistaramótið í ostum í Grieg-höllinni í Bergen í Noregi:
Jørn Hafslund frá Ostegården í
Bergen fór með sigur af hólmi
Það var sannkölluð veisla fyrir
bragðlaukana á dögunum þar
sem besti ostur í heimi var valinn
í Grieg-höllinni í Bergen í Noregi.
Bresku samtökin Guild of Fine
Food halda heimsmeistaramótið
í ostum ár hvert en að þessu sinni
var það ostaframleiðandinn Jørn
Hafslund frá Ostegården í Bergen
sem fór með sigur af hólmi eftir að
tæplega 3.500 ostar alls staðar að
úr heiminum höfðu verið skoðaðir,
lyktað af og bragðaðir af hópi
sérvalinna dómara.
Það var gouda ostur frá Krokeide
í Bergen, sem kallast Fanaost, sem
vann heimsmeistaratitilinn að þessu
sinni. Nálægt 3.500 ostar kepptu
um titilinn frá 41 landi, þar af voru
175 frá norskum framleiðendum. Í
undanúrslitum stóð valið á milli 16
osta og sigraði ostaframleiðandinn
Jørn Hafslund en hann fékk
bronsverðlaun í fyrra í London í
sömu keppni með sama ostinn.
Enginn ostur frá Íslandi keppti á
heimsmeistaramótinu.
Bresku samtökin Guild
of Fine Food standa fyrir
heimsmeistaramótinu í ostum ár hvert
og einnig matvælakeppninni Great
Taste. Samtökin styðja við og kynna
sérstaka matvælaframleiðendur,
sveitaverslanir og matarhallir sem
styðja við framleiðendur. Um
1.300 meðlimir eru í samtökunum
sem halda heimsmeistaramótið í
ostum árið 2019 í Bergamo á Ítalíu.
Glæsilega og fagmannlega var staðið
að heimsmeistaramótinu í Bergen
í ár sem fékk mikla athygli og
umfjöllun í erlendum fjölmiðlum.
/ehg
Heimsmeistaraostinum 2018 hampað, sem ostaframleiðandinn Jørn Hafslund frá Ostegården í Bergen vann.
Mynd / Odd Mehus - Aðrar myndir á síðunni / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Ostarnir á heimsmeistaramótinu
voru af öllum stærðum og gerðum,
hér er til dæmis breskur bjórostur.
Hin þekkti norski kokkur Bent Stiansen var í dómarasæti á ostamótinu ásamt
Sunday Times.
Norski landbúnaðarráðherrann, Bård Hoksrud, ásamt Bernt Bucher-
Johannessen, framkvæmdastjóra Hanen-samtakanna í Noregi, sem
skipulagði heimsmeistaramótið í samvinnu við Guild of Fine Food.
Það er mikilvægt áður en
osturinn er dæmdur að bora
inn í hann að miðju til að ná
breiðum bita til smökkunar.
Þetta var einn af sérkennilegustu
ostunum þegar kom að áferð og
lit en þessi ítalski ostur var með
lakkrís- og sítrónubragði.
UTAN ÚR HEIMI