Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 47

Bændablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 47 Bókin Í Gullhreppum segir frá þjóðsagnapersónunni séra Þórði í Reykjadal og hinu mikla veldi Skálholtsstaðar á 18. öld. En um leið mannlífi þessarar aldar og harðindum en þráfaldlega varð þá mannfellir. Höfundur er Bjarni Harðarson. Blaðið grípur ofan í frásögn af Þórði þegar hann kemur í heimsókn til amtmannsins í Bræðratungu en ástand í sveitum er þá með versta móti. Á mánudagsmorgni á hörðu vori er Reykjadalsprestur kominn heim á höfuðbólið Bræðratungu. Amtmaðurinn Magnús, sem þessa dagana undirbýr flutning vestur að Faxaflóa, kemur sjálfur út að heilsa guðsmanninum. Hann lofar komumann fyrir alla hans miskunnsemi við fátæka enda sjálfur þekktur fyrir gjafmildi, að gefa þeim aumu en draga svo að sér frá þeim sömu þegar þeir hafa aðeins hjarnað við. Gefa og taka. Með því má gera þetta tvennt. Að tryggja jafnt velferð sína á jörðu og himni. Þeir Þórður hafa ekki heilsast fyrri, þessir grannar, enda staldraði amtmaður stutt við í þessari sveit. Reykjadalsprestur undrast með sér hve smár maðurinn er og grannur. Í uppvextinum skildist honum að alltaf væri eitthvað tortryggilegt við þá menn sem bæði voru grannir og ríkir. Gátu vitaskuld verið innanmein og óþrif í maga en litaraft amtmanns er gott og þá er eins víst að óþrifin nái aðeins til höfuðsins. Hann er að hugsa þessar vafasömu hugsanir þar sem amtmaður leiðir hann inn í blámálaða stofu í frambænum. – Harðindin hafa ekki náð svo mjög hingað vestur? spyr komumaður og reynir að losna undan þeirri synd að dæma hinn háttsetta embættismann. – Ooo, jæja. Þeir komu hingað frá yður flækingarnir og svo aðrir utan af Nesjum. Margir farið í garðinn hér í Bræðratungu og sumt enn ókasað. Það er hreint voðalegt um allt. – En lifir hér á kotunum? – Nei, það gerir það ekki allt. Ég er hræddur um að það hafi drepist eitthvað á öllum bæjum hér á torfunni í vetur og þar með einbúinn í Fjósakoti, svo nú er það laust. Svar mannsins er kalt og í því bæði harmur og óþol. Kornskeppur hinnar matarmiklu Bræðratungu eru að tæmast. Ævagamlir heystabbar hafa látið á sjá og amtmanni leiðast harðindi þegar kotabörnin hætta að skríkja hér á hlöðunum. Þau sem hjara standa nú starandi með þaninn kvið. Dauðamörk undir vatnsbláum augum. Á vori sem þessu saknar þessi drengur frá Mávahlíð námsáranna. – Þér hafið ekki farið að dæmi fógetans og látið opna hér skemmur kaupmanna að bjarga megi þeim fátækustu frá hungurmorði? – Guð sé oss næstur, síra Þórður. Það hef ég ekki gert. Hvar endar það þegar yfirvöld temja sér slíkt ráðslag? Við höfum gripið til okkar ráða. Sýslumaður var hér í gær og ég veit ekki nema að úti í Ytritungunni sé verið að rétta þá illræðismenn sem ógna fátæku fólki í vondu ári. Þar í er mikilvæg hjálp. – Jamm, segir Reykjadalsprestur og þakkar fyrir klarettvín og köku sem ráðskonan hefur borið hinum virðulegu embættismönnum. Samtalið er kalt og eftir nokkra þögn bætir amtmaður við: – Í verunni er fátt sem við megnum að gera, en trúin, Þórður, og þolgæðið er það dýrmætasta. Ef þú ferð þessa sömu leið til baka taktu þá hjá mér eilítinn bagga að það megi bjargast fram á vorið. Þér eruð búlaus, er ekki svo? Já, búlaus ... búlaus maðurinn. Reynið að fá betra brauð, góði maður, eða farið að ráðum mágs míns, hann vill yður í Skálholt. – Bagga já, þökk, þökk. Ég er einmitt á leið til mágs yðar, hans Finna míns, en hvort ég fer úr Reykjadal í Skálholt eða úr Skálholti í Reykjadal kemur kannski allt í einn stað. En af því að þér töluðuð um úrræðin og viljið ekki í skemmurnar. Ég man ekki betur en þér hafið líkt og við Sigurður heitinn sýslumanns rekið nefið ofan í nýjar kenningar og nýja tíma. Okkur Sigga skildist á forboðnum bókum að það muni hrein bábilja að einungis yfirvöld og aðall þiggi sitt beint og milliliðalaust af Guði almáttkum. Nú ku þeir vera farnir að skilja þetta aðeins, þeir háu í Danmörku, og svo smá kemur þetta. Maðurinn er guðleg vera og á sinn náttúrlega rétt. Þann rétt þiggjum vér öll frá Guði sem ríkir yfir náttúrunni og er í henni, allri heimsins náttúru og vélan. Að láta fátæklingana drepast fyrir það eitt að það kunni að kosta eilitla rekistefnu fyrir kóngi og kaupmanni þegar vorar, það er ekki bara aumt, það er óguðlegt. Þegar það smám saman upplýkst fyrir fátæklingum að þeirra réttur sé einnig Guðs gjöf þá verður á stundum ögn erfiðara og ekki alltaf i fuld sikkerhed að vera höfðingi á stóru búi með stritandi hjáleigukrans allt um kring. – Þér takið stærra upp í yður nú en þér ráðið við að kyngja enda vissara fyrir yður, karl minn, að þetta sé þó ekki nema tveggja manna tal. – Æ, herra amtmaður, þér eruð hreint ágætur. Og hvað skjattann þann arna snertir þá sendið hann fyrir mig, ég kemst víst varla hér efri leiðina austur aftur, sendið hann bara hér upp í Fjósakotið og það verður vitjað um hann þar og verið þér sælir. Amtmaður stendur höggdofa á hlaðinu og horfir eftir þessum ófyrirleitna bónbjargaklerki. Hélt maðurinn virkilega að amtmaður sunnan og vestan færi að leggja matarbagga ofan í hústóft fyrir farandi lýð? Nei, hann skyldi muna eftir að láta ráðsmanninn taka niður húsin í Fjósakoti. Öll. Þórður Jónsson er kominn fram á túnhalann í Bræðratungu þegar öldurmenni bandar honum til sín. – Hún er ónýt. – Hver er ónýt, góði maður? – Nú, ferjan, stólsferjan frammi í sporði. Skálholtshyskið hirti ekki um að koma henni af eyrinni og vorísarnir náðu að brjóta hana. Þú verður að fara á Króki. Því fer svo að ferðalag Þórðar lengist um nokkra tíma og það er liðið að nóni þegar hann kemst yfir Tungufljót. Spölkorn sunnan v i ð f e r j u b æ i n a gengur hann fram á aðgjörðir valdsmanna við harðindunum. Í Gálgaklettum í landi Stóra-Fljóts eru sex hangar sem teknir voru af um morguninn. Vinnumenn eru í óðaönn að taka grafir í valllendi rétt upp af fljótsbakkanum. Prestur gengur nær og þekkir þar sinn kæra vin, Þorbrand þann sem kallaður var þjófur. Hina hafði hann og séð heima í Reykjadal en þekkir ekki nöfnin. Guðsmaðurinn staldrar stutta stund, fer með bænir fyrir sálum hinna dauðu og talar við sinn Guð. Sumt er enn ókasað! MENNING&BÆKUR LESENDABÁS Allt land er auðlind og þarf að vera í eigu landsmanna Allt land er auðlind, landið sjálft, jarðvegurinn og gróðurinn sem þar þrífst. Sumt land nýtist til matvælaframleiðslu, annað til útivistar og auk þess geta fylgt landi önnur gæði sem enn auka verðmæti þess, t.d. veiði og vatnsréttindi. Meðferð og notkun alls landsins skiptir alla landsmenn máli bæði nú og til framtíðar. Það felast miklir almannahagsmunir í ráðstöfun og meðferð lands, því geta ekki gilt sömu reglur um kaup og sölu á landi eins og hverri annarri fastegin. Eignarhald, ráðstöfunarréttur og ábyrgð á landi þarf að vera í höndum landsmanna. Stjórnvöld og almenningur geta haft áhrif á landnýtingu í gegnum skipulagsáætlanir þar sem sveitarfélög geta sett landnýtingu mismunandi skorður eftir náttúrufari, eðli ræktunar og manngerðs umhverfis. Stjórnvöld geta beitt ýmsum tækjum til að hafa áhrif á ráðstöfun lands. Án tafar þarf ríkisvaldið að setja skilyrði um að sá sem vill eignast land eða jörð hafi búsetu á Íslandi eða hafi áður haft hér fasta búsetu í a.m.k. 5 ár. Þessa reglu þarf að aðlaga EES samningnum á málefnalegan hátt og það er einfalt að gera. Einnig þarf að fylgja eftir áliti starfshóps um endurskoðun eignarhalds á bújörðum frá því í september 2018, um aðrar mögulegar breytingar á jarðalögum og ábúðarlögum til að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Þessum tillögum voru gerð ítarleg skil í Bændablaðinu þann 1. nóvember s.l. og þegar hefur verið boðað að forsætisráðuneytið mun leiða áframhaldandi vinnu með tillögurnar. Sveitarfélög geta notað skipulagsáætlanir betur en nú er gert til að setja kvaðir um landnýtingu. Sveitarfélög geta skilgreint landbúnaðarland sem halda skal í ræktanlegu ástandi í skipulagi. Einnig væri athugandi að skilgreina í skipulagi, jarðir þar sem heilsársbúseta er æskileg og geta þar komið inn fleiri sjónarmið en nýting til landbúnaðar, s.s. öryggissjónarmið, eftirlit lands og náttúruvernd. Í Landsskipulagsstefnu er nú þegar gert ráð fyrir að sett verði fram leiðarljós um landnotkun í dreifbýli til leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga. Þá geta stjórnvöld beitt skattlagningu til að hafa áhrif á nýtingu fasteigna eins og jarða og húsa sem á þeim standa. Þannig mætti beita fasteignaskatti sem hvata til nýtingar eigna í strjálbýli með því að leggja hærri skatt á eignir sem ekki eru í notkun. Bætt skráning landeigna er forsenda þess að hægt verði að beita stjórntækjum markvisst við ráðstöfun lands. Til þess þarf að byggja upp miðlæga landeignaskrár sem inniheldur hnitsetta afmörkun allra landeigna; þjóðlenda, jarða og lóða. Tæknin fyrir Landeignaskrá er til staðar, aðeins þarf að setja reglur um skráningu og ganga skipulega til verks. Landeignaskrá Íslands yrði gunnur að skynsamlegri og sjálfbærri nýtingu á auðlindum jarðar með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi. Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Framsóknarflokki Líneik Anna Sævarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.