Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201848 Fátt mótar sterkar búsetulandslag dreifbýlis en tún og annað ræktað land. Í núverandi mynd voru flest túnin gerð um og upp úr miðri síðustu öld, þótt enn megi víða sjá dæmi um eldri ræktun. Túnin eru undirstaða þess kvikfjárhalds sem gefið hefur mestan hluta kjöt- og mjólkurafurða fyrir landsmenn. Mjög umræddir framræsluskurðir í mýrlendi setja líka víða sterkan svip á búsetulandslagið, skurðir sem tryggja virkni og rækt núverandi túna, hafa undirbúið ræktunarlönd framtíðarinnar, skapað verðmæt beitilönd, nú eða eru verk sem hefðu mátt bíða til óræðrar framtíðar. Á bak við öll þessi merki um ræktunarverk mannanna liggur sagan um það hvernig landið var ræktað eftir þekkingu, samfélagssýn og getu á hverjum tíma – og miðað við þær þarfir sem brýnastar töldust þá: Þúfur voru sléttaðar, vatni veitt á engjalönd, túngarðar hlaðnir, skurðir grafnir, girðingum komið upp, landið plægt og herfað, hagaskurðir gerðir, korni sáð, tað malað, mykja breidd eða felld niður... – Já, upptalningin verður ærið löng en dæmin duga til þess að sýna hversu fjölbreytt ræktunarverkin hafa verið. Ég hef um töluvert skeið, bæði vegna kennslu minnar á Hvanneyri og síðan starfa við Landbúnaðarsafnið þar, tínt saman efni tengt íslensku ræktunarsögunni, einkum hlut hennar á 20. öld, með það í huga að ná saman yfirliti um hana. Ýmsir hafa lagt mér lið með frásögnum, ljósmyndum og öðrum ábendingum. Sumt af því hefur birst í bókum mínum um vélvæðingu sveitanna á síðustu öld. Annað bíður frekari úrvinnslu. Með þessum pistli langar mig til þess að lýsa eftir ljósmyndum, frásögnum og/eða ábendingum um efni sem tengist hvers konar ræktun landsins til fóðuröflunar. Þar hef ég í huga athyglisverða ræktunarhætti, vinnuaðferðir, ræktunaraðstæður, ræktunarvélar- og verkfæri, ekki síst ef um hefur verið að ræða íslenskt hugvit eða verksvit, því margt datt mönnum og dettur enn í hug. Líka mundu vel þegnar ábendingar um merka ræktunarmenn og sögur af þeim. Ekki spillti heldur að fá ábendingar um athyglisverðar ræktunarminjar þótt margar slíkar séu þegar og sem betur fer formlega skráðar. Hvað tímann snertir er ég bæði með í huga hina eiginlegu vélaöld – eftir 1950 eða svo – og tímann þegar hand- og hestaaflið voru enn drífandi kraftar ræktunarverkanna. Með slíkri samlegð gæti fengist verðmætur auki við það efni sem þegar má finna í bókum, tímaritum, jarðræktarskýrslum, þjóðháttaskrám, ljósmyndum og öðrum þegar varðveittum heimildum. Um leið og ég þakka þeim mörgu, sem á síðari árum hafa sent mér efni og annan fróðleik, er varðar framvindu verkhátta og vinnubragða við bústörf hérlendis, langar mig til þess að hvetja þá, er þennan pistil lesa og luma á áhugaverðu efni, eða vita af slíku, að hafa samband. Það eru meiri líkur en minni á að slíkt efni eigi erindi inn í heildarsöguna! Það er auðvelt að ná í mig, eða að senda mér efni: Ég hef netfangið bjarnig@lbhi.is, símann 894 6368 og póstkassa við Túngötu 5, Hvanneyri, 311 Borgarnes. Með þökkum og góðri kveðju Bjarni Guðmundsson Hvanneyri LESENDABÁS Leitað fróðleiks um jarðrækt fyrri ára Í umræðum um vanda sauðfjárræktarinnar finnst mér stundum hinn félagslegi þáttur vanmetinn, einkum hvað varðar afréttanýtingu og fjallskil á haustin; göngur, réttir og eftirleitir. Þá taka allir höndum saman án tillits til fjáreignar. Bændur með stórbú standa ekki einir á meðan fjárfærri félagar þeirra og tómstundabændur, jafnvel með fáeinar kindur hver, taka þátt í lögbundnum skyldustörfum á haustin um land allt, við ýmiss konar aðstæður. Þá munar um hvern og einn. Þetta þarf að hafa í huga, ekki síst þegar bæði fé og fjárbændum fer fækkandi. Um þetta ræddum við Páll heitinn á Sandhóli í Ölfusi oft en hann lést um réttaleytið í haust. Nú, þegar fé er að koma á hús og verið er að fara í eftirleitir minnist ég sérstaklega Páls sem var einlægur dýravinur og gat ekki hugsað til þess að fé yrði úti uppi um fjöll og firnindi. Í bréfi og fréttum frá honum sem birtust hér í Bændablaðinu fyrir fáeinum árum gerði hann að umtalsefni kindur sem verða úti eða er bjargað nær dauða en lífi, vegna þess að ekki hafði verið vandað til smalamennsku á þessu eða hinu svæðinu. Þá gat hvinið í Páli sem að jafnaði var dagfarsprúður maður sem vildi öllum gott gera og var bæði ósérhlífinn og hjálpsamur með afbrigðum. „Drottinn minn dýri, við verðum að standa saman og hjálpast að“, sagði Páll gjarnan við mig og gerði sjálfur allt sem hann gat til þess að fjárskil yrðu sem greiðust. Ekki var hann spar á hrós og þakklæti fyrir vel unnin verk. Hans var vissulega saknað í réttunum í haust en þar var Páll alltaf kátur og hress og setti svip á réttastemninguna, hvort sem hann var skilamaður Ölfusinga í Fossvallarétt við Lækjarbotna, í Húsmúlarétt neðan Kolviðarhóls eða í Ölfusrétt, í Reykjadal á seinni árum. Hann var höfðingi heim að sækja, sívökull, fróður og ákveðinn í skoðunum. Það var líka uppörvandi og ánægjulegt að hitta Pál í göngum og eftirleitum en þá sem endranær fylgdu honum tveir hundar, Lubbarnir. Mér er til dæmis minnisstætt þegar við hittumst um þetta leyti árs um aldamótin, löngu eftir lögboðnar leitir, við Húsmúlarétt, alveg af tilviljun en sömu erindagerða, að svipast eftir kindum. Það var nokkurt harðfenni, vægt frost, sæmilega bjart og gott göngufæri. Við skiptum með okkur svæðum, hann fór með hunda sína norður með Húsmúla í átt til Engidals en ég fór í norðurjaðar Svínahrauns, niður með Bolavöllum. Páll benti mér sérstaklega á að huga að sprungum og skútum í hrauninu þar sem kindur gætu leitað skjóls og orðið innlyksa. Enga fundum við kindina en samt vorum við ánægðir þegar við hittumst aftur við réttina eftir nokkurra tíma göngu. Því minnist ég gjarnan Páls þegar fé vantar á heimtur því að þá er hann mér ágæt fyrirmynd; hinn sanni, góði hirðir. Þótt þessi stutti pistill eigi fyrst og fremst að vera hugleiðing um nauðsyn þess að leggja alúð við smalamennskur og fjárskil á haustin, áður en vetur gengur í garð, í anda Páls á Sandhóli, get ég ekki látið hjá líða að bæta við fáeinum orðum í minningu hans. Páll lést 10. september sl. af völdum krabbameins á 83. aldursárinu og var jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju í kyrrþey 21. september. Hann var einyrki, bóndi af lífi og sál, sem stóð á meðan stætt var þrátt fyrir heilsubrest síðustu árin; sáði til grænfóðurs fyrir smæstu lömbin, flutti féð í afrétt á dráttarvélarvagni eins og venjulega og heyjaði vel í sumar þrátt fyrir afleitt tíðarfar. Páll, Vestur-Skaftfellingur í báðar ættir, fæddur og uppalinn á Sandhóli, hafði tekið við jörðinni af foreldrum sínum 1982 og þar rak hann vænt fjárbú með bjartsýni og dugnað í fyrirrúmi alla tíð. Byggði meira að segja ný fjárhús fyrir nokkrum árum. Trú hans á sauðfjárræktina og landbúnaðinn var alltaf söm og jöfn þótt á móti blési. Páll er mörgum minnisstæður. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson, Höfundur er örbóndi með sauðfé í Reykjavík og minnist Páls Auðars Þorlákssonar á Sandhóli með virðingu og þökk (oldyrm@gmail.com). „ Fé má ekki verða úti uppi um fjöll og firnindi” Minnisstæður fjárbóndi – Páll á Sandhóli í Ölfusi Páll Auðar Þorláksson á Sandhóli í Ölfusi með hundana sína í dráttarvélinni fyrir framan Landsbankann á Selfossi. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 10. september 2018. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Kílplógur á beltavél; hugmynd Þorsteins Stefánssonar á Ósi í Skilmannahreppi. Með plógnum voru gerð kílræsi svo spara mætti opna skurði við þurrkun ræktunarlanda. Greinarhöfundur stendur við Skerpiplóg, norskan risaplóg, er mikilla en skammra vinsælda naut við túnrækt hérlendis í kringum 1960. Árni G. Eylands, mikill ræktunar- frömuður á 20. öld, mundar pál, eitt helsta ræktuna rverkfæri fyrri tíma. Mynd / Úr safni Þórunnar Reykdal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.