Bændablaðið - 15.11.2018, Síða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 49
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
LESENDABÁS
Uppspretta lífsgildanna
Ég hef búið í blómlegri sveit
suðurlands „ Bláskógabyggð“
síðustu 14 árin, það er ekki fráleitt
að sú sveit minni mig á gömlu góðu
dagana úr æsku minni. Kannski
vegna þess að ég ólst sjálf upp
i fallegri sveit austur á héraði,
nánar tiltekið á prestsetrinu
Valþjófsstað í Fljótsdal. Þar ólst
ég upp við mikil samskipti og
samfélag sem vann saman og
félgslífið var blómlegt.
Aldrei minnist ég þess að hafa
leiðst sem barni, lék mér mikið með
gullabú, steina og bein, það var leikið
sér spilað, sungið og spjallað. Flestir
voru við einhverja iðju dagsdaglega
og ekki þekktist mikið þunglyndi í
þá daga. Alla vega var þá ekki talað
mikið um það, nema þá af virðingu.
Fólk lét sér nægja það sem það hafði
þá og sjaldan heyrði maður kvartað
þótt eitthvað skorti, frekar talað um
möguleika og tækifæri. Bændur
ræktuðu fleiri og stærri tún, náðu í
bestu hrútana, unnu vel fóðrið svo
mætti auka nyt kúnna og þess háttar.
Þá voru margir smábændur í sveitum
sem undu þokkalega vel við sitt og
margir ráku bú sín vel.
Hér má minna á að þeir sem vilja
rækta sér afurðir fyrir eigin neyslu
í smáum stíl, eru möguleikar fyrir
þá sem það vilja. Hænur, fáeinar
kindur og garðrækt, fá hagstæð
veiðileyfi, svo eitthvað sé nefnt. Já
og kannski tvinna við ferðaþjónustu
og upplifanir ýmsar tengdar sveita-
og atvinnulífi. Ég trúi að á næsta
leiti séu mörg óunnin tækifæri til
enn betri afkomu og farsældar þótt
í smærri stíl verði en nú hefur mest
tíðkast.
Gróðursæld, veðrátta og
aukin hlýindi þessarar sveitar eru
forréttindi fyrir núverandi kynslóð,
sem undirbýr þá næstu að taka
við. Í skjóli fjalla og dala er vert
að standa vörð um komu nýrra
kynslóða sem vilja munu starfa í
bændasamfélaginu. Það er margt
óspunnið til hvers konar búræktar
sem vill og alls konar starfa. Erum
við ekki lánsöm að kunna betur en
áður að yrkja og sá í þessa jörð, í
sátt og virðingu við móður náttúru?
Mikil viðbótarþekking liggur
fyrir, ef vel er að gáð. Má nefna
margt sem hefur þróast og er að
vaxa; trjárækt, hampur, kornrækt,
vistvæn ræktun til manneldis, nóg
er vatnið, jarðhiti, villtur gróður,
berjalönd og öll endurnýtanleg efni
sem falla til, ásamt hefðbundnum
búgreinum. Þetta allt og miklu fleira
má jafnvel margfalda í að gera okkar
þjóð sjálfbærari. Væri það ekki
fjölhæfara og blómlegra mannlíf,
en verið hefur? Að ógleymdri
ferðaþjónustunni sem er mjög
vaxandi starfsemi, með markmiðið
„Heilsulandið Ísland“ að upplifa
það, sem er okkar besta landkynning
og okkar mesta þjóðarstolt. Margar
góðar hugmyndasmiðjur í nýsköpun
eru að vakna um land allt í þessum
efnum. Mikið hefur verið talað
um útrás svokallaða ... hvað með
innspýtingu í að blása til sóknarfæra,
sem liggja okkur nær? Sveitarfélög
og einstaklingar geta unnið margt
saman, með breyttu skipulagi og
trú á möguleikana. Þjóðin er rík af
gæðum, hvert við stefnum er á okkar
ábyrgð.
Er ekki næst gott til þess að
hugsa, að settir verði á stofn smærri
einkareknir landbúnaðarskólar,
garðyrkjuskólar, ferðamálaskólar
og handverksiðnskólar eða
fleiri húsmæðraskólar, fyrir
hvern landshluta, að verði séð til
þess að aðgengi til menntunar
og endurmenntunar í þessum
grundvallar atvinnugreinum þjóðar
okkar verði til staðar? Verknám lærist
seint í gegnum netmiðlun og flestir
vilja vera í sínu nærumhverfi í námi.
Hvað getum við gert fyrir ungmennin
sem flosnað hafa úr námi? Er ráð
að minnka inntökukröfur til náms
til iðnaðar og framleiðslugreina?
Sveigjanleg úrræði sem hentar
fleirum til náms og fækkun ungs
fólks á örorku sem ekki hefur lokið
starfsnámi. Nota viskubrunn eldri
kynslóða, jafnvel að fá þá til kennslu
með lærdóm með þeirra reynslu og
þekkingu, t.d. hlutastörf. Ég vil
kalla til kynslóðirnar frá 1940–
1965 af báðum kynjum, sem hafa
hvað breiðustu þekkinguna og að
skapist störf fyrir fleira vinnufært
eldra fólk. Að kennsla og miðlun
reynslu verði eins áreynslulítil sem
mögulegt er, fái að búa um sig og
dafna á nýjum tímum í takt við
þarfirnar. Er ég þar að tala um að
beina starfsemi á milli skóla og
framleiðslufyrirtækja til sveita sem
og sjávar, starfsmenntun á launum
á námstíma er heillavænlegt. Eru
ekki hálftómir bæir og fáir að taka
við rekstri bændabýla í dag? Það datt
úr tísku að búa í sveit, hvernig væra
að upphefja aftur sveitirnar?
Styrkur frá náttúrunni okkar og
mannauður er til staðar. Gefum
okkur að vera lítillát og mannleg, við
megum og getum lært þetta allt betur
og gert breytingar til vaxtarskilyrða
fyrir alla aldurshópa. Af litlu vex
„ ein fjóla“ en getur orðið breiða
af fjólum. Hver og einn á eitthvað
að leggja til á vogarskálarnar
með að reisa við atvinnu- og
afkomuskilyrði sem fram undan eru.
Hugmyndaauðgi með miklu meiri
menntun en forfeður okkar höfðu
til að dreifa, er ríkidæmi okkar
í dag. Með velvilja og virðingu
fyrir hverjum einum þessa lands,
á einstaklingurinn og fjölskyldan
saman mikinn auð. Með opnu hjarta
og ástríðu heilbrigðra samskipta
komumst við langt í að nálgast góð
markmið. Allt hefst með skýrum
skilaboðum og samtakamætti
manna, framkvæmdavilja, trú og
ákefð, í krafti heildarinnar.
Ef að ráðamenn þessa lands
eru þrotnir allra lausna, hvernig
eigum við kæru samlandar að
bregðast við? Þjóðin er nauðug
viljug gerð að fórnarlambi þessa
ríkjandi ástands, hvert sem litið er.
Hvað er til ráða? Myrkrið á sinn
tilgang að vekja til ljóssins, þess
sem raunverulega skiptir máli. Nýtt
upphaf rís og þá kemur til ábyrgðar
að heilindum okkar sjálfra. Náum í
okkar bestu fyrirmyndir, þá sem áttu
sér hugsjónir og framkvæmdu þær.
Við eigum þær margar í sögunni,
getum tekið þær upp og fengið
trú á góða útkomu á ný, ekki satt?
Bestur er einfaldleikinn sem virkar
og virkaði.
Leggjum okkur fram um
að sleppa takinu sem fyrst af
vonbrigðum og reiði, þó það sé eitt
ferlið til að ná breytingum fram og
réttlæti náist til jafnari kjara. Allt
þetta sem er, hefur tilhneigingu til
að fyrnast og græðast. „Það vex nýtt
fræ af hinu gamla“ segir máltækið
og er í raun. Þegar valið er að eiga
með sér bjarta, raunsæja og nálæga
mynd með umburðarlyndi og
þolinmæði, er uppskeran vís. Eftir
árið er kornið tilbúið til þreskingar!
Getur sáningin hafist núna? Verum
saman að undirbúningi þess sem
koma skal. Samvinna og virðing
skilar árangrinum.
Gleymum aldrei að samhjálpin
sem þú eða ég gætum þurft á að
halda og geti orðið þörf einn daginn,
verum forsjóninni þakklát fyrir það,
„við erum aldrei alveg ein á ferð“.
Og nú langar mig að beina orðum
mínum til þín, lesandi þessarar
greinar, svo ljósið megi fylgja þér
götuna áfram. Við lifum í dag ekki
gærdaginn né morgundaginn, allt
skapast það sem kemur „í nútíðinni“.
Gerum okkur það fyrst ljóst, frá
stundu til stundar. Lífsþrótturinn
er einn mikilvægasti orkuþáttur
hvers manns, starf og heilsa.
Hugarástand og athygli skiptir hvað
mestu máli, það sem bærist með
hið innra meðvitað og ómeðvitað.
Mig langar að gefa smá innlegg
til nærveru sálar, að hlusta eftir
og hafa góða samlíðan með þér og
öðrum inn í daginn. Hvar og hver
sem þú ert; viðurkenndu sjálfan þig
og aðra. „Auktu næmi þitt og farðu
eftir góðum hugboðum“. Hlustaðu
og sýndu ástúð, umhyggja styrkir
og virðir. „Hugarró krefst þess að
engar neikvæðar tilfinningar séu til
staðar“. Taktu eftir tilfinningu þinni
núna. Mættu öðrum þar sem þeir eru
og leiddu á betri veg. Fyrirgefðu og
elskaðu tilveruna „ÞÚ“ kortleggur
daginn og framtíðina. Sáðu fræjum
jákvæðni og bjartsýni!
Nú vaknar vor í brjósti,
villtur fugl situr á grein.
Lifnar hitt ungviðið í holti,
já, gott er að koma heim. KK
Óska þér og þjóðinni heilla.
Góðar stundir.
Katrín Erla Kjartansdóttir
Greinarhöfundur er fjölskyldu-
og samskiptaráðgjafi í nútíma
sálfræði, heilsunuddari, móðir
og amma.
Nú liggur frammi frumvarp
á Alþingi um breytingar á
búvörulögum sem undirrituð
er fyrsti flutningsmaður
að. Frumvarpið felur í sér
breytingar á þann hátt að þrátt
fyrir ákvæði samkeppnislaga
er afurðastöðvum í kjötiðnaði
heimilt að sameinast og gera
með sér samkomulag um
verkaskiptingu og hafa með
sér annars konar samstarf til
þess að halda niðri kostnaði
við framleiðslu, geymslu og
dreifingu kjötvara. Það gæti m.a.
falist ísamvinnu um flutning
sláturgripa, dreifingu afurða
og sölu á erlendamarkaði.
Eins og segir í greinargerð
með frumvarpinu er þetta gert
í því skyni að undanþiggja
afurðastöðvar í kjötiðnaði
ákvæðum samkeppnislaga. Þá er
allt kjöt undir. Með frumvarpinu
er tilgangurinn er að veita
innlendum kjötiðnaði tækifæri
til að hagræða og til að bregðast
við ört vaxandi samkeppni við
afurðir frá erlendum mörkuðum.
Afurðarstöðvar í kjötiðnaði hafa
nú takmarkaða möguleika til
samstarfs og sameiningar þar
sem það er í andstöðu við ákvæði
samkeppnislaga. Það skilar sér í of
háum rekstrarkostnaði, háu verði
til neytenda og lágu afurðaverði til
bænda. Þá dregur það úr tækifærum
til sóknar á erlenda markaði.
Frumvarpinu er líka ætlað að
bregðast við auknum innflutningi
á landbúnaðarafurðum, en í dag
eru um 20% af heildarneyslu
innflutt kjöt. Litlar afurðastöðvar
um landið hafa ekki einar og
sér burði til að keppa á þessum
markaði. Veruleikinn er að
íslenskur landbúnaðar á nú þegar
í alþjóðlegri samkeppni.
Hagur neytenda og bænda
Vandi sauðfjárbænda hefur mikið
verið í umræðunni og var á sett á
stað nefnd til að skoða hvaða úrræði
væru í sjónmáli til að laga stöðu
sauðfjárbænda. Í þeim viðræðum
hefur verið nefnt að það þurfi
að fara ofan í rekstrarumhverfi
afurðastöðva. Í landinu eru níu
afurðustöðvar sem hafa leyfi til
að sinna sauðfjárslátrun. Þessar
afurðastöðvar eru í eigu bænda
að mestu leiti og því má segja
að það sé alltaf hagur bænda að
það sé grundvöllur til að hagræða
í rekstri. Verði frumvarpið
samþykkt verður afurðastöðvum
gert kleift að vinna saman og
eða sameinast til að vinna t.d. að
markaðstarfi erlendis eða hagræða
í rekstri, það ætti að skila lægra
verði til neytenda og hærri verði
til bænda.
Í skýrslu KPMG um úttekt á
afurðastöðvum er m.a. sagt að
margt bendi til þess að fjöldi
sláturhúsa sé of mikill og þeim
þurfi að fækka til að auka hagræði í
greininni. Þar segir líka að fækkun
afurðastöðva gæti aukið arðsemi,
sláturhúsin sem eftir verða hefðu
svigrúm til að sjálfvirknivæðingar
til að bregðast við erfileikum við
að manna afurðastöðvarnar yfir
háannatímann.
Hagsmunir bænda og
neytenda fara saman og því er
það sameiginlegt baráttumál
að standa vörð um íslenska
matvælaframleiðslu.
Halla Signý Kristjánsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins.
Efling afurðastöðva
í kjötiðnaði
Halla Signý Kristjánsdóttir,
Með áhrifamestu útbreiðslu
prentmiðla á landsbyggðinni
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
LESTUR PRENTMIÐLA Á LANDSBYGGÐINNI HEIM
ILD
: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt.-des. 2017.
BÆNDAHÖLLIN VIÐ HAGATORG
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
0%
10%
20%
30%
40%
50%
DV STUNDIN MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ BÆNDABLAÐIÐ
8,0%
11,2% 9,4%
22%
27,3%
43,1%