Bændablaðið - 15.11.2018, Page 55

Bændablaðið - 15.11.2018, Page 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 55 Síðastliðinn föstudag, þann 9. nóvember, var haldin fjölmenn umhverfisráðstefna þar sem farið var yfir ýmis mál. Eftir ráðstefnuna var fyrirferðarmest umræða í fjölmiðlum um þjóðgarð á miðhálendinu, en samkvæmt skoðanakönnun vilja 63% landsmanna gera hálendi Íslands að þjóðgarði. Eflaust ekki svo galin hugmynd, en fyrst að svona há prósenta landsmanna vill gera landinu vel er þá ekki sama prósenta til í að hugsa sér nær og skoða önnur aðkallandi vandamál sem sjaldan eru rædd? Sóðaskapur, rusl og mengun Þegar ekið er um þjóðvegi landsins eru fáir sem taka eftir óheyrilegu magni af alls konar drasli og rusli í vegköntunum. Nánast sama hvar er ekið á þjóðvegum úti á landsbyggðinni þarf varla að keyra lengra en 100 metra án þess að sjá rusl í vegkantinum. Í tveggja manna spjalli við vin sagði hann að þetta væri varla svona slæmt, en eftir eina ferð um Suðurland sagðist hann hafa hugsað til minnar staðhæfingar og horft eftir rusli. Eftir þann bíltúr vildi hann jafnvel meina að ástandið væri enn verra en ég sagði. Einstaka staðir skara fram úr vegna framtaks einstaklinga Á örfáum stöðum er hvergi sjáanlegt rusl, en það er vegna þess að einstaklingar gera það upp á sitt einsdæmi að þegar þeir fara út að labba eða hlaupa, samanber hlaupara sem tínir rusl þegar hann hleypur í nágrenni Egilsstaða og stundum má sjá mann í göngutúr í nágrenni við Bifröst tína upp rusl í vegkantinum. Þjóðþekktur lögfræðingur sem labbar með hundinn sinn tínir alltaf rusl í göngutúrum í Reykjavík. Neikvæðar fréttir um umhverfismál of áberandi og nánast aldrei talað um úrlausnir Þann 7. nóvember var nánast í öllum fjölmiðlum fréttir af því að Ísland væri það ríki innan EFTA sem væri með mesta losun koltvísýrings í hagkerfi á einstakling sem væri á milli 13 og 19 tonn á hvern einstakling. Af þeim fréttamiðlum sem ég heyrði í var hvergi bent á úrlausnir við þessari miklu losun. Föstudaginn 9. nóvember slógu flestir fjölmiðlar upp myndum úr myndbandi frá ferðamanni sem lék sér af því að spóla í hringi á smájeppa. Engum datt í hug að bæta við frétt sína úrlausnum til að þetta endurtaki sig ekki með einhvers konar forvörnum sem stórlega þarf að bæta. Hins vegar hafa margsinnis heyrst afsakanir ferðamanna á utanvegaakstri að þeir hafi ekki verið upplýstir um að bannað væri að aka utan vegslóða. Með litlum áherslum er auðvelt að breyta hugarfari og virkja vinnukraft í þágu náttúrunnar Góður vinur minn hefur síðastliðna 16 mánuði verið í hnattreisu á mótorhjólinu sínu og er búinn að heimsækja yfir 30 lönd og keyra nærri 90.000 km. Á þessari ferð sinni var hann í Ameríku þar sem hann sá víða í vegköntunum auglýst að hægt væri að taka vegkafla í fóstur gagnvart því að halda vegköntunum hreinum. Einnig sá hann snyrtilega vegkanta og á þeim stöðum voru gjarnan skilti sem sagði hverjir væru að halda vegköntunum hreinum „Hér hreinsar Jónas og fjölskylda vegkantinn.“ Eitthvað sem mætti taka upp hér á landi af ýmsum félögum, fjölskyldum eða starfsmannafélögum. Ekki alveg óþekkt hér á landi, en í öðrum tilgangi Að taka land í fóstur er ekki alveg óþekkt, en sem dæmi þá eru mörg félagasamtök, stofnanir og einstaklingar að vinna með Hekluskógum á Suðurlandi í að endurheimta skóglendi í nágrenni við eldfjallið Heklu. Allir þessir hópar vinna gott verk og einstaklingarnir sem vinna þar við landgræðslu eru að kolefnisjafna sjálfan sig, fyrirtækin sem gefa áburðinn gera mikið góðverk, en með því að skaffa áburðinn eru þau í raun að kolefnisjafna fyrirtækin í leiðinni. Einn af þessum hópum þekki ég vel þar sem ég hef farið með þeim í landgræðsluferðir síðustu níu ár og verður bara skemmtilegra og skemmtilegra í hvert sinn sem ég fer. Þessi hópur eru fimm mótorhjólafélög og eru að gróðursetja á nyrsta svæðinu í Hekluskógum sunnan við Sultartangalón. Félögin fimm kalla þetta „Mótorhjólaskóginn“ og hafa rétt eins og í Ameríku komið upp skilti stutt frá veginum sem segir frá verkefninu. Þarna eru komnar ansi myndarlegar hríslur þar sem fyrir 10 árum var auðnin ein. Svona verkefni gætu fleiri gert og þó að ég segi sjálfur frá þá er þetta bara skemmtilegt. MARGVERÐLAUNAÐIR RAFGEYMAR ER KOMINN TÍMI Á AÐ SKIPTA UM RAFGEYMI? Automatic ehf | Smiðjuvegi 11 | 200 Kópavogi | S: 512 3030 www.automatic.is | pantanir@automatic.is VELDU ÞÁ HÁGÆÐA RAFGEYMANA FRÁ INTACT ÞÝSKALANDI INTACT STARTGEYMARNIR VORU VALDIR BESTIR Í KÖNNUN BÍLATÍMARITSINS AUTO ZEITUNG ÞÝSKALANDI NÚ GETUR ÞÚ FYLGST MEÐ STÖÐUNNI Á RAFGEYMINUM Í SÍMANUM ÞÍNUM MEÐ BATTERY-GUARD FRÁ INTACT ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is ÁRSTÍÐ SPILLA HVIÐA KVK NAFN HAPP-DRÆTTI STEFNUR SÁLDRA KSVISS V E I K J U L Á S VFANGA E I Ð A BRÚKA ÁNÆGJU- BLOSSI N O T A ASIGAÐ T T S K A T T L U R S T I AÐNIÐRA T I L STEFNA FRÁ BRESTIR FROST- SKEMMD B R A K KRAFSA SAMTÖK K L Ó R A SPRIKLKVARTA BKÚSTUR TÍUND ASKJA S L A K A ÓHREINKA VÆTUSTAÐNA R A K A GÓLA BLÁSA TVEIR EINSGEFA EFTIR V E F A AUSTUR- ÁLFA FRAMVEGIS A S Í A SAKLAUS HEIÐUR S Ý K NFLÉTTA E I MESSINGÞÍÐA L Á T Ú N ÁFORMGOSEFNI Æ T L U NEKKI I Ð A SPOR SÖNG- LEIKUR F A R RUSL ÖFGA- FULLUR H R A F L GÖSLASVELGUR F YFIRGAFSKOTT F Ó R LÍFFÆRI N Ý R A ÓÐAGOTSJÓ R A S G R Í P A KEYRAANGAN A K A HVAÐ H A SKELFING UGÓMA R Ó S E M I NÖLDRATVÍHLJÓÐI T U Ð A BELTIKRINGUM Ó LHÆGLÆTI A S F A A VESÆLL R A HÝRA U L M A U U R N SKÁN SPJÁTRUNG- UR H F I U M G N L A MJÖG ÁTT 95 Umhverfismál ættu að vera ofar í huga flestra KASTALI EFTIRSJÁ SPILASORT GOGG KYNJA-SKEPNA YFIRRÁÐ AFLAGA ÍSTÖÐU- LAUS MÝKJA Á FLÍK DRYKKUR REIÐI- HLJÓÐ MATJURT TÓNVERK TÆTA MUNNI MÁLMHÚÐA FLÍK TEYMA FORFAÐIR LISTA- MAÐURHLERA HRÚÐUR HRINGUR ÓNÁÐA KÆTTIST SÁTTAR- GERÐ SLÍMDÝR FÉLAGI SKÍTUR SAMTÖKÓSLITINN KRÓKUR HYLLI ROTNUN BERGMÁLA FJALLS- TINDUR HINDRA BEITI- SIGLING UNDIREINS ÓLJÓS ÓGRYNNI EYÐA ÚÐA ÞURFA- LINGUR ANGAN AND- STÆÐINGAHALD DÝRAHLJÓÐ SLITRÓTT TAL BAKSA KÖTTUR HLÓÐIR LEYSIR STEIN- TEGUND LÍK EKKI RÁNÉTANDI FIMI Í RÖÐ Í RÖÐ DRYKKUR FUGL GOSEFNI KÆRLEIKS ÞRÁTTA GASÞAKBRÚN Í RÖÐ 96

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.