Bændablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 2018 13
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
HEYSÝNATAKA, EFNAMÆLINGAR
OG FÓÐURRÁÐGJÖF
Í BOÐI BÚSTÓLPA
Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fría
þjónustu við heysýnatöku, efnamælingar á
sýnunum og fóðurráðgjöf. Sérfræðingar
RML annast verkefnið fyrir okkar hönd.
Pantanir berist fyrir 6. september
á netfangið elvar@bustolpi.is
Eymundur í Vallanesi heiðraður á Ítalíu fyrir búskap sinn:
Til fyrirmyndar varðandi umhverfisvernd
og varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika
Eymundur Magnússon, bóndi í
Vallanesi á Fljótsdalshéraði, var
heiðraður á dögunum þegar Háskóli
matarvísindanna (University of
Gastronomic Sciences) í Pollenzo á
Ítalíu veitti honum viðurkenningu
fyrir það framtak að hafa plantað
skógi og skjólbeltum og þannig
skapað skilyrði til lífrænnar
ræktunar í sínu heima landi.
Eymundur var einn þriggja sem
fengu viðurkenningu við hátíðlega
athöfn í Pollenzo og er sérstaklega
horft til einstaklinga sem miða að
sjálfbærni í störfum sínum og eru
öðrum til fyrirmyndar varðandi
umhverfisvernd og varðveislu
líffræðilegs fjölbreytileika. Nicola
del Vecchio er ungur bóndi í Molise
á Ítalíu sem er sérstaklega heiðraður
fyrir að endurvekja ræktun á sínu
svæði og fyrir þátttöku í að efla
staðbundna matvælaframleiðslu.
Sómalinn Mohamid Abdikadir
var heiðraður fyrir að leggja sitt af
mörkum til verkefnis Slow Food sem
heitir „10 þúsund garðar í Afríku“, en
hann hefur sjálfur komið að því að
koma á fót um 100 matjurtagörðum.
Það verkefni hefur þann tilgang að
gera almenningi kleift að rækta eigin
mat og sporna gegn hungri.
Slow Food-verkefni
Háskóli matarvísindanna er
runninn undan rifjum Slow Food-
hreyfingarinnar. Hann var stofnaður
árið 2004 að frumkvæði Carlo Petrini,
stofnanda og forseta Slow Food, en
hann er nú stjórnarformaður skólans.
Hann afhenti verðlaunin, sem heita
„Premio Langhe Cerretto“, ásamt
Bruno Cerretto, eiganda Cerretto-
víngerðarinnar í Alba, en verðlaunin
er samstarfsverkefni háskólans og
víngerðarinnar.
Áður voru rithöfundar heiðraðir
sem skrifuðu um matarmenningu
en nú hefur sjónum verið beint
að einstaklingum sem starfa í
landbúnaði.
Aukið aðgengi almennings að
matjurtaræktun
Að sögn Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur,
sem rekur Móður Jörð í Vallanesi
með manni sínum Eymundi, var
veiting viðurkenninganna hluti
dagskrár á viðburði sem heitir Ræktað
og varðveitt, sem stóð yfir í tvo daga.
„Það var efnt til hringborðsumræðu
með yfirskriftinni Byltingin í
matjurtagarðinum, þar sem rætt var
um mikilvægi þess að auka aðgengi
almennings að matjurtaræktun og
auka þátttöku fólks í framleiðslu
matvælanna sem það neytir. Alice
Waters var sæmd doktorsnafnbót við
háskólann en hún hefur unnið ötullega
að stofnun matjurtagarða víðs vegar
um Bandaríkin og talað fyrir hollu
mataræði barna og unglinga þar í
landi. Hún á og rekur veitingastaðinn
Chez Panisse í Berkeley og hefur gefið
út fjölda bóka,“ segir Eygló.
„Á Vesturlöndum þjóna
slík garðaverkefni einnig
samfélagslegum tilgangi, sem er að
auka skilning á því hvernig matur
verður til, auka matvælaöryggi,
draga úr flutningi á matvælum og
tengja fólk betur við upprunann.
Ekki síst sálræn jákvæð áhrif af því
að vera úti í náttúrunni, í garðyrkju,“
bætir Eygló við.
Hún játar því að viðurkenningin
hafi mikla þýðingu fyrir þau og
mikið gildi. „Sem dæmi greindu
ítalskir fjölmiðlar frá verðlaununum
og helgina sem viðburðurinn var
haldinn var birt grein um þau
í La Stampa-blaðinu í Tórínó.
Það voru um 300 gestir við
verðlaunaafhendinguna sem fram
fór í Cerretto-víngerðinni og var öll
hin glæsilegasta. Við höfum fengið
mjög sterk og jákvæð viðbrögð frá
ferðamönnum sem og Íslendingum
í kjölfarið og svona viðurkenning
hjálpar vissulega til að undirstrika
gildi þess starfs sem hér hefur verið
unnið og er ánægjulegt í alla staði.“
Ætlaði fyrst bara
að framleiða mjólk
Eymundur hóf búskap í Vallanesi
1979 sem kúabóndi og í upphafi
ætlaði hann bara að framleiða
mjólk. Vallanes var þá nánast
óræktað og við það að rækta jörðina
fann Eymundur að akuryrkjan
höfðaði mjög sterkt til hans.
Grænmetisræktun bættist þannig
fljótt við og svo kornræktin. Áhugi
hans á því að koma eigin vörum á
markað varð þannig til þess að hann
stofnaði vörumerkið Móður Jörð og
fyrstu vörurnar undir þeim merkjum
komu í verslanir 1987. Skógræktin
hefur verið hluti af ræktunaráhuga
og byrjaði hann strax árið 1983
að rækta skjólbelti, en eiginleg
skógrækt hófst 1989 í Vallanesi.
Vallanes hefur verið lífrænt
vottað land frá 1994 og vörurnar
þaðan merktar sem slíkar. Nýverið
var opnuð verslun og veitingastofa
í Vallanesi í húsi sem byggt var úr
ösp af staðnum og þar er boðið upp
á mat úr afurðum staðarins í takt
við árstíðirnar. Undanfarin ár hefur
Móðir Jörð aukið áherslu á fullvinnslu
og má finna vörur þeirra í flestum
matvöruverslunum. /smh
Eymundur með félögum sínum tveimur sem einnig hlutu viðurkenningu;
Mohamid Abdikadir (annar frá vinstri) og Nicola del Vecchio (þriðji frá
vinstri) – auk þeirra Bruno Cerretto, eiganda Cerretto-víngerðarinnar (lengst
til vinstri), og Carlo Petrini, forseta Slow Food (lengst til hægri).
Eygló og Eymundur við athöfnina í
Cerretto-víngerðinni.
Myndir / Hanna Friðriksdóttir