Bændablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201820
Miklir hitar og þurrkar víða
um lönd í sumar hafa vakið
marga til umhugsunar um hvort
mannkynið sé jafnvel búið að
metta andrúmsloftið svo mjög af
koltvísýringi (CO2) með aðgerðum
sínum að vart verði aftur snúið úr
þessu. Víst er að brennsla á kolum,
olíu og gasi til raforkuframleiðslu
er mikill áhrifavaldur í losun
manna á gróðurhúsalofttegundum
en minna hefur þó farið fyrir
umræðu um mikil áhrif skógarelda
og eldgosa.
Áætlað hefur verið að skógareldar
losi allt að 30 tonn af koltvísýringi út
í andrúmsloftið af hverjum hektara
sem brennur. Þar við bætist að
þessi bruni er mjög ófullkominn
og losun á tjöru, sótögnum og
lífrænum efnum út í andrúmsloftið
er því óhemju mikil. Hlutfallsleg
mengun ýmissa efna eins og sóts af
völdum skógarelda er því mun meiri
en verður við tiltölulega hreinan
bruna með hátæknibúnaði eins og
t.d. í sprengihreyflum bíla.
Miklir skógareldar um allan heim
Í sumar hafa skógareldar verið mjög
tíðir um nær allan heim, meira að
segja í norðlægum löndum eins og
Svíþjóð. Tíðni slíkra skógarelda
fer vaxandi og tímabil skógarelda
lengist ár frá ári vegna hlýnunar
loftslags. Þá fer árlegt tjón af völdum
skógarelda stöðugt vaxandi. Var
tjónið í Bandaríkjunum einum árið
2017 talið nema 10 milljörðum
dollara. Þann 8. ágúst sl. var talið að
tjón vegna skógarelda í í Kaliforníu í
Bandaríkjunum á þessu ári væri orðið
meira en 11,5 milljarðar dollara. Þá
höfðu um 68.000 hektarar brunnið í
Norður- Kaliforníu og 1.000 heimili
eyðilagst.
Vaxandi þéttbýli skapar aukna
hættu á skógareldum í dreifbýli
Árið 2017 var versta skógareldaár
sögunnar í Evrópu fram að
þeim tíma, samkvæmt tölum
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins. Þá brunnu yfir
800.000 hektarar skóglendis í
Portúgal, á Spáni og á Ítalíu fyrir
utan fjölda skógarelda í öðrum
Evrópulöndum. Segir stjórnin að
aukin þéttbýlisvæðing Evrópu hafi
skapað aukna hættu á skógareldum
í dreifbýlinu, ekki síst á yfirgefnum
landbúnaðarsvæðum. Þar vaxi
gróður nú óhindrað sem verði síðan
kjörið eldsneyti fyrir skógarelda. Gaf
framkvæmdastjórnin m.a. út tillögur
í nóvember á síðasta ári um hvernig
taka ætti á vaxandi skógareldahættu
vegna þéttingar byggðar.
Í Evrópu loguðu líka miklir
skógareldar nú í sumar í Attica í
Grikklandi, í Svíþjóð og í Bretlandi.
Þó ekki hafi mikið verið fjallað um
eldana í Bretlandi, þá brunnu 1.813
hektarar í tveim stærstu eldunum.
Eldar brunnu líka í Finnlandi, Noregi
og Danmörku í þurrkunum í sumar.
Svíar þurftu að kalla eftir aðstoð
frá nágrannaríkjum og gerðu m.a.
tilraunir með að varpa sprengjum
úr JAS 39 Gripen orrustuþotum
á eldana til að eyða súrefni. Hafa
eldarnir í sumar verið bornir saman
við mestu skógarelda þar í landi árið
1888 þegar skógur brann á 2000
ferkílómetra svæði.
Eldar hafa logað glatt í Kanada
og Bandaríkjunum
Í lok júní 2018 hafði verið tilkynnt
um 560 mismikla skógarelda í
Bresku Kólumbíu á Vesturströnd
Kanada. Neyðarástandi var lýst
yfir um tíma í Norður-Kaliforníuríki
í Bandaríkjunum 4. ágúst sl.
Samkvæmt tölum skógareldavarna-
deildar Kaliforníuríkis og alríkis-
eldvarna stofnunar Bandaríkjanna
höfðu þann 14. ágúst síðastliðinn
5.283 eldar logað á 3.659
ferkílómetra svæði og eldar loguðu
víðar.
Mengun frá skógareldum í
Síberíu barst til Ameríku
Í Síberíu brunnu yfir 320 hektarar í
skógareldum í júlí og barst reykurinn
yfir Norður-Ameríku. Var talað um
að fólk á jörðu niðri í Prince George
í bresku Kólumbíu fyndi kannski
ekki fyrir reyknum, en reykur í
háloftunum gæti skapað fallegt
sólarlag.
Mikil hætta í Ástralíu í kjölfar
hlýjasta vetrar í sögunni
Í Ástralíu hefur verið meira um
skógarelda á þessu ári en venja er
til í kjölfar hlýjasta vetrar í sögunni
sem var jafnframt sá níundi þurrasti.
Mesti hættutími bruna í Ástralíu er
þó ekki runninn upp, enda er aðal
sumartíminn fram undan.
Skógareldar taldir skila 30
tonnum af CO2 á hektara
Áætlað var eftir það sem kallað
var „Black Saturday bushfires“
í Victoríuríki í Ástralíu 2009, að
koltvísýringsmengun frá skógarbruna
næmi 30 tonnum af CO2 á hektara.
Bruni á 130.000 hekturum skiluðu
því nærri 4 milljónum tonna af CO2
út í andrúmsloftið. Skógareldar
í Ástralíu brenna yfir 500.000
ferkílómetra skóglendis á hverju
ári. Voru þeir taldir standa fyrir um
3% af losun gróðurhúsalofttegunda
skógareldar í Ástralíu taldir nema um
6–8% af skógareldum á heimsvísu.
Í Ástralíu er brennsla kola til
raforkuframleiðslu samt langstærsti
mengunarvaldurinn og skilar um
200 milljónum tonna af CO2 út í
andrúmsloftið á ári. Brennsla kola
til raforkuframleiðslu er einnig
gríðarleg víðar um heim, eins og í
Evrópu. Á sama tíma hafa ríki heims
uppi háleit markmið með að draga
úr loftmengun með því að skipta
hefðbundnum ökutækjum sem nota
jarðefnaeldsneyti út fyrir rafknúna
bíla. Vandinn er hvernig menn ætla
að framleiða alla þá raforku sem til
þarf ef á sama tíma á að loka kola-,
olíu-, gas- og kjarnorkuverum.
Eftir mikla þurrka víða um
heim í sumar eru uppistöðulón
vatnsaflsvirkjana víða hálftóm.
Þar horfir því fram á orkuskort
næsta vetur. Vegna þessa eru
menn í alvöru farnir að ræða um
endurskoðun á áformum um að
loka kjarnorkuverum. Jafnvel
að huga þurfi að byggingu nýrra
kjarnorkuvera ef búast megi við
framhaldi á slíku þurrkaástandi í
framtíðinni.
Ýmislegt utan sviga í
loftslagsumræðunni
Í öllu tali um losun CO2 skýtur
líka skökku við að iðnaður og
raforkuframleiðsla er yfirleitt fyrir
utan sviga í samningaviðræðum um
að draga úr mengun. Það þarf því
ekki heldur að búast við að menn
hafi á slíkum samkomum mikinn
áhuga á að tala um óútreiknanleg
fyrirbæri eins og skógarelda sem
erfitt er að setja í seljanlega kvóta.
„Stýrðir“ skógareldar
Ekki kvikna allir skógareldar af
eldingum eða vegna óhappa þegar
fólk er í sakleysi sínu að grilla
helgarsteikina. Stórir eldar eru
nefnilega kveiktir af ásetningi á ári
hverju beinlínis til að eyða skógum.
Á fínu máli heita það „stýrðir“
skógareldar. Það hefur m.a. verið
gert í stórum stíl í Indónesíu til
að rýmka fyrir ræktun pálmatrjáa
fyrir pálmaolíuiðnaðinn. Einnig
á Amason-svæðinu m.a. vegna
nautgriparæktar.
Í Indónesíu var vitað um 17.399
skógarelda af ýmsum stærðum sem
logað höfðu á tímabilinu 7. til 14.
ágúst 2018.
Íslendingar eru svo sem ekkert
alsaklausir af slíkri iðju í gegnum
tíðina frekar en aðrar þjóðir, m.a. við
að eyða sinu á beitarlöndum. Slíkt
má þó heita aflagt á Íslandi í dag
samhliða aukinni umhverfisvitund.
Fylgjast má með stöðu
skógarelda frá degi til dags á vefsíðu
Global Forest Wats Fire (https://
fires.globalforestwatch.org).
Ófullkominn bruni
og brúnt kolefni
Samkvæmt rannsóknum Um hverfis -
verndarstofnunar Banda ríkjanna
og Tæknistofnunar Georgíuríkis
sem birtar voru í tímaritinu Nature
Geoscience þann 22. maí 2017 er
skógarbruni meiri mengunarvaldur
og hættulegri en áður var talið. Bent
er á að hlutfallslega meira sé af
brúnu kolefni (brown carbon) í reyk
frá skógareldum en svörtu kolefni.
Slíkar agnir eigi greiðari leið upp í
efri hluta lofthjúpsins og valdi þar
með meiri loftslagsáhrifum. Voru
þessar niðurstöður sagðar studdar
gögnum NASA Radiation Sciences
Program og NASA Tropospheric
Composition Program.
Gervihnettir NASA og NOAA
fylgjast vel með skógarbruna um
allan heim og af myndum frá þeim
má kortleggja þessa bruna. Ekki
bara í Bandaríkjunum, heldur um
allan heim. Þannig sást m.a. vel
á myndum þessara gervihnatta
reykurinn frá Mýraeldunum í
Hraunahreppi í Borgarbyggð sem
loguðu í þrjá daga vorið 2006.
Hættulegt heilsu manna
Hefur háskólinn í Huntsville
Alabama UAH sýnt fram á
mikil tengsl skógarbruna við
heilsufarsleg vandamál. Telja
vísindamenn háskólans að um 20%
af heilsuvanda vegna loftgæða stafi
af reyk frá „stýrðum“ skógareldum í
andrúmsloftinu. Það er skógareldum
sem kveiktir eru til að eyða skógi
til ræktunar nytjajurta eða vegna
dýraeldis.
Bent er á að agnir sem eru minni en
2,5 micron eða minna en fjórðungur
af þvermáli mannshárs, séu nógu
smáar til að smjúga auðveldlega
niður í lungu fólks og valda þar
skaða. Umhverfisverndarstofnun
Bandaríkjanna, EPA, áætlar að
brennsla á lífmassa standi fyrir
yfir 25% af reyk- eða rykögnum
af þessari stærð í Bandaríkjunum
á ári. Yfir sumartímann, þegar
skógar- og gresjueldar eru mestir,
getur hlutfallið verið allt að 52%.
Í sumum strjálbýlum héruðum í
norðvesturhluta Bandaríkjanna
hafa jafnvel yfir 80% sumardaga
verið mettaðir af reykmengun sem
inniheldur þessar örsmáu agnir.
Þá eru að minnsta kosti 20,1%
hlutfall örsmárra rykagna frá
bruna lífmassa úr trjám og grasi
að meðaltali í andrúmsloftinu alla
daga ársins, samkvæmt niðurstöðum
UAH háskóla sem birtar voru í
tímaritinu Environmental Science
and Technology 2017.
Helstu svæðin í Bandaríkjunum
sem verða fyrir áhrifum, bæði stýrðra
og óskipulagðra skógarbruna, eru
í Norður-Dakota Minnesota og
Iowa sem og í ríkjunum Kansas
og Nebraska í austri og austari
hluta Suður-Dakota. Reykurinn
berst þó líka til annarra ríkja.
Dæmi eru einnig um að reykagnir
frá skógarbruna í Kanada, Alaska
og Síberíu hafi borist inn yfir
Bandaríkin, að sögn stjórnenda
rannsóknar UAH háskóla.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Skógareldar taldir vanmetinn
áhrifavaldur í loftslagshlýnun
– Skapa ófullkominn bruna og skila örsmáum sótögnum upp í efstu lög lofthjúpsins og losa út hættuleg efni fyrir heilsu manna