Bændablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201832
HROSS&HESTAMENNSKA
Íslenskir hestamenn gerðu það gott
á Norðurlandamótinu í Svíþjóð
Íslensku liðsmennirnir létu ekki á
sér standa síðasta úrslitadaginn
á Norðurlandamóti íslenskra
hesta í Margaretehof í Svíþjóð í
byrjun ágúst. Lönduðu þeir fimm
gullverðlaunum þann daginn.
Ekki hefði það getað verið mikið
tæpara að ná sjötta og sjöunda gullinu
í hús en þar munaði aðeins 0,03 á
fyrsta og öðru sæti. Það voru úrslitin
í B-flokki þar sem Sigurður Óli
Kristinsson hlaut silfrið og A-flokki
þar sem Sigurður V. Matthíasson
hlaut silfrið.
Í lokaathöfninni fengu síðan
tveir knapar svokölluð „feather
price“ reiðmennskuverðlaun fyrir
framúrskarandi og áferðarfallega
reiðmennsku. Báðir knaparnir
voru íslenskir liðsmenn, þau Védís
Huld Sigurðardóttir og Haukur
Tryggvason. Haukur hafði einnig
fyrr um daginn náð gulli í fjórgangi
fullorðinna og silfri í tölti með sömu
einkunn og sigurvegarinn en tapaði
á sætaröðun dómara.
Liðið sendi 30 knapa
með 34 hesta
Mótið var haldið á Margaretehof sem
er staðsett sunnarlega í Svíþjóð en þar
er glæsileg aðstaða, tveir hringvellir,
gott upphitunarsvæði, reiðhöll og
dýralæknaaðstaða til fyrirmyndar.
Það fór því einkar vel um hrossin
okkar á meðan á mótinu stóð og
gott samstarf var milli liðanna og
starfsmanna mótsins. Margaretehof
er í eigu Montan-fjölskyldunnar sem
einnig heldur úti búgarði á Íslandi –
Margrétarhof að Króki í Ásahreppi.
Árangur knapa á mótinu – Gull
•
• Védís Huld Sigurðardóttir og
Krapi frá Fremri-Gufudal –
fimmgangur unglinga, 250 m
skeið unglinga, gæðingaskeið
unglinga, 100 m skeið og
samanlagðar fimmgangsgreinar
unglinga
• Arnór Dan Kristinsson og Roði
frá Garði – Tölt ungmenna og
samanlagðar fjórgangsgreinar
ungmenna
• Haukur Tryggvason og Orka frá
Feti – Fjórgangur fullorðinna.
Silfur
• Haukur Tryggvason og Orka
frá Feti - Tölt fullorðinna,
Samanlagðar fimmgangsgreinar
fullorðinna
• Egill Már Þórsson og Dofri
frá Steinnesi - Samanlagðar
fimmgangsgreinar ungmenna,
fimmgangur ungmenna
• Arnór Dan Kristinsson og Roði
frá Garði - fjórgangur unmenna
• Hákon Dan Ólafsson og Snarpur
frá Nýjabæ - 250 m skeið
ungmenna
• Sigurður V. Matthíasson og
Fengur från Backome - A flokkur
• Sigurður Óli Kristinsson og
Feykir frá Háholti - B flokkur.
Brons
• Viktoría Eik Elvarsdóttir
og Framsýn frá Oddhóli -
Slaktaumatölt ungmenna
• Sigurður Sigurðarson og List frá
Langstöðum - B flokkur
• Sigursteinn Sumarliðason
og Snör frá Oddgeirshólum -
Gæðingaskeið fullorðinna.
Önnur verðlaunasæti
• Finnur Bessi Svavarsson og
Kristall frá Búlandi - Fjórða
sæti í A flokki
• Selma Leifsdóttir og Darri
frá Hjarðartúni - Fjórða sæti í
unglingaflokki gæðingakeppni
• Glódís Rún Sigurðardóttir og
Úlfur frá Hólshúsum - Fjórða
sæti í fjórgangi ungmenna
• Askja Ísabel og Sjór frá Ármóti
- Fjórða sæti í fimmgangi
unglinga og fimmta sæti í
gæðingaskeiði unglinga
• Viðar Ingólfsson og Agnar
frá Ulbæk - Sjöunda sæti í
B-úrslitum fimmgangs og
Fjórða sæti í samanlögðum
fimmgangsgreinum fullorðinna
• Arnar Máni Sigurjónsson
og Hlekkur frá Bjarnarnesi -
Fimmta sæti í unglingaflokki
gæðingakeppni
• Hákon Dan Ólafsson og Snarpur
frá Nýjabæ - Fimmta sæti í 100
m skeiði ungmenna
• Reynir Örn Pálmason og Spói
frá Litlu-Brekku - Fimmta sæti
í T2 slaktaumatölti fullorðinna
• Valdís Björk Guðmundsdóttir
og Skorri frän Fjalarstorp
- Fimmta sæti í fimmgangi
ungmenna
• Katla Sif Snorradóttir og Eiður
frá Ármóti - Fimmta sæti í
fjórgangi ungmenna
• Ylfa Guðrún Svavarsdóttir og
Sálmur frá Ytra-Skörðugili -
Fimmta sæti í ungmennaflokki
gæðingakeppni
• Guðlaug Marín Guðnadóttir og
Hekla frá Akureyri - Fimmta
sæti í 100 m skeiði fullorðinna
• Þórður Þorgeirsson og Baldur
frá Skúfslæk - Tíunda sæti
í B-úrslitum fimmgangs og
fimmta sæti í gæðingaskeiði
fullorðinna og samanlögðum
fimmgangsgreinum fullorðinna
• Teitur Árnason og Frami frá
Hrafnsholti – Sjöunda sæti í
B-úrslitum fimmgangs
• Sölvi Sigurðarson og Leggur
frá Flögu - Sjötta sæti í B-flokki
gæðinga.
Íslenska liðið sem þátt tók í Norðurlandamótinu í Margaretehof í Svíþjóð. Myndir / Arnar Bjarki Sigurðsson
adnæB
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420 dreifingarstaði og öll lögbýli á Íslandi
Arnór Dan Kristinsson og Roði frá Garði hlutu gullverðlaun fyrir Tölt
ungmenna og fyrir samanlagðar fjórgangsgreinar ungmenna.
Védís Huld Sigurðardóttir og Krapi frá Fremri-Gufudal hlutu gullverðlaun
Sigurður V. Matthíasson þjálfari.
Haukur Tryggvason og Orka frá Feti hlutu gullverðlaun fyrir fjórgang
fullorðinna.