Bændablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201822
FRUMKVÖÐLAR&NÝSKÖPUN
Inniræktun er skynsamleg, bæði efnahags- og umhverfislega:
„Hydroponics” í hænsnakofa
Ástralski hugvitsmaðurinn Chris
Wilkins hefur komið upp aðstöðu
til að rækta matjurtir og fiska í
gömlu hænsnahúsi á Valþjófsstað
í Fljótsdal. Hann segir inniræktun
áhugaverðan valkost fyrir
Íslendinga sem búi við langa
dimma vetur og flytji inn mikið
af matvælum en framleiði ódýrt
rafmagn úr endurnýjanlegum
orkugjöfum.
Wilkins segir ræktunina byggja
á hringrás vatns í lokuðu kerfi,
hydroponics á ensku, þar sem við
sögu koma fiskar, bakteríur og
plöntur og hvert styrkir annað.
Fiskurinn framleiðir úrgang sem
bakteríurnar éta til að framleiða
áburð fyrir plönturnar sem hreinsa
vatnið áður en það fer aftur til
fiskanna. Með þessu þarf ekki að
kaupa neinn áburð og nær enginn
úrgangur fellur til.“
Stefnan er að koma bæði
plöntunum og fiskunum í sölu,
hvort heldur sem er til neytenda
sem sækist eftir ferskvöru eða
veitingahúsa. Í ræktuninni má finna
myntu, basilíku, spínat og fleiri
salatjurtir en í eldinu urriða, bleikju,
krabbadýr og gullfiska.
Ísland kjörið fyrir inniræktun
Wilkins er menntaður pípulagninga-
maður og með háskólagráðu í
umhverfisfræðum og hefur sett upp
áveitukerfi fyrir ræktun í Ástralíu og
Finnlandi. Þar fékkst hann einkum
við skrautplöntur en hefur í sumar
prófað sig áfram með matjurtir.
Hann telur Ísland kjörið fyrir slíka
framleiðslu.
„Ég hef ekki fundið annað
land þar sem inniræktun er jafn
skynsamleg. Aðstæður hér eru
öfgakenndar og ekki hægt að rækta
utanhúss á veturna því þeir eru langir
og dimmir og jafnvel á sumrin er
ræktunartíminn stuttur.“
Plássið til ræktunar hugsað í
rúmmetrum en ekki fermetrum
Plönturnar fá bæði ljós og hita frá
LED lýsingu sem komið hefur verið
upp í húsinu.
„Ljósin framleiða þá lýsingu
sem plönturnar þurfa og hliðarafurð
ljósanna, hitinn, nýtist til að hita
húsið þannig að rafmagnið nýtist
mjög vel. Í Ástralíu kostar rafmagnið
fimm sinnum meira en á Íslandi en
þar er hægt að rækta utandyra allt
árið þannig þar er engin skynsemi
í inniræktun.“
Wilkins segir að Íslendingar
flytji inn mikið af matvælum og að
erlendis hafi matvælaframleiðsla
mikil áhrif á umhverfið og þar
sem tæknin sé fyrir hendi sé bæði
efnahagslega og umhverfislega
skynsamt að rækta inni í landi þar
sem rafmagn er ódýrt og fengið úr
endurnýjanlegum orkugjöfum
Tækifæri fyrir unga frumkvöðla
Bjarni Halldórsson, 13 ára
heimamaður á Valþjófsstað, hefur
aðstoðað Wilkins við uppsetningu
ræktunarinnar og kalla þeir
verkefnið Microfarm Iceland. is.
Wilkins segir áhuga sinn byggja
á að setja upp kerfið og spreyta
sig á matjurtunum en vonast til
að hönnunin geti nýst ungum
frumkvöðlum og orðið til þess að
efla íslenskar sveitir.
„Bjarni er frumkvöðull og
mögulega yngsti bóndi landsins.
Saman langar okkur að skapa
vettvang fyrir unga frumkvöðla
og leyfa þeim að spreyta sig á
næstu mánuðum við að byggja
upp rekstur þar sem vinna þarf við
framleiðsluna, finna viðskiptavini,
selja vöruna og læra um allt það sem
viðkemur rekstri sprotafyrirtækja.
Það er auðveldlega hægt að setja
upp fleiri örbýli í gámum. Að sinna
slíkri ræktun tekur tíu tíma á viku en
á móti fær eigandinn mat og afurð til
að selja. Slíkt getur til dæmis orðið
aukabúgrein með sauðfjárrækt.“
Styrkur frá Fljótsdalshreppi
Fljótsdalshreppur veitti verkefninu
á Valþjófsstöðum álitlegan fjárstyrk
til að koma því á laggirnar.
„Þetta hefði ekki verið mögulegt
án styrksins. Það er frábært að
sveitarstjórnin haf sýnt möguleikum
þess skilning og brugðist skjótt við
þannig að hægt væri að kaupa tækin
sem þurfti til ræktunarinnar,“ segir
Wilkins að lokum. /VH
Tækniþróunar-
sjóður
Styrkir til nýsköpunar
Umsóknarfrestur til 17. september 2018
Tækniþróunarsjóður styrkir
nýsköpunarverkefni sem geta aukið
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Nánari upplýsingar eru á tths.is
Bjarni Halldórsson og Chris Wilkins í ræktunarrýminu.