Bændablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201842
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Þurrkar þýða milljarðatap
fyrir þýskan landbúnað
Þýsku landbúnaðarsamtökin
DBV hafa nú beðið stjórnvöld
þar í landi um eins milljarðs evra
stuðning til að mæta þeim skaða
sem hið langa þurrkatímabil
hefur valdið þar í landi.
Nyrsta fylki landsins, Schleswig-
Holstein, hefur orðið fyrir
rúmlega 400 milljóna evra tapi
vegna veðurfarsins sem yfirvöld
landbúnaðarmála hafa reiknað út.
Fylkið á landamæri að Danmörku
en þar hafa menn ekki upplifað
annan eins uppskerubrest og í ár í
yfir 100 ár. Þessa dagana eru haldnir
krísufundir daglega meðal yfirvalda
og fylkisstjóra í Þýskalandi til að
fara yfir stöðuna og mögulegar
úrbætur fyrir bændur sem margir
hverjir hafa miklar áhyggjur af
velferð dýra sinna og fjárhag búa
sinna. /ehg
Það þekkja allir hugtökin fastur
og breytilegur kostnaður en dulinn
kostnaður er líklega minna þekkt
hugtak. Ef til vill mætti kalla
þetta falinn kostnað eða leyndan
kostnað en um er að ræða þann
kostnað á kúabúum sem fellur
til samhliða ákvörðunum og/eða
gerðum kúabænda varðandi val
á ákveðnum rekstrarleiðum við
framleiðslu mjólkur.
Þessir duldu kostnaðarliðir
eru ótal margir og eiga þeir það
sameiginlegt að á bak við þá eru
hvorki greiddir reikningar eða bein
útgjöld, heldur hafa þessir duldu
kostnaðarliðir áhrif á kostnaðar-
og tekjuþætti við rekstur kúabúa. Í
þessari fyrri grein af tveimur verður
farið yfir nokkra af þessum þáttum.
Uppeldið
Uppeldi á kúm er afar kostnaðarsamt
og samkvæmt dönskum
útreikningum er kostnaðurinn við
það að ala upp kú í kringum 10.000
danskar krónur eða um 165 þúsund
íslenskar krónur. Það er því afar
brýnt að nýta kúna vel þegar hún
loks byrjar að skila af sér tekjum.
Ótal rannsóknir hafa sýnt fram
á það að fyrstu mánuðirnir í lífi
kvígunnar hafa áhrif á æviafurðir
hennar síðar meir og ef vöxtur
kvígunnar er góður á þessum fyrstu
mánuðum ævinnar þá stór-aukist
líkurnar á því að heildarafurðir
hennar verði meiri en þeirra
sem vaxa hægar eða veikjast á
mjólkurfóðrunartímanum.
Kanadísk rannsókn hefur einmitt
sýnt fram á það að veikindi á
kvígum á fyrstu 56 dögum æv-innar
hefur marktæk neikvæð áhrif á
framleiðslu þeirra þegar þær ná því
að verða kýr. Í þessari kanadísku
rannsókn voru áhrif lungnaveiki
skoðuð sérstaklega en ótal aðrar
rannsóknir hafa sýnt fram á
sambærileg langtímaáhrif af öðrum
sjúkdómum sem upp kunna að koma
á mjólkur-fóðrunartímabilinu.
Burðaraldur á kvígum
Annar þekktur dulinn þáttur, sem
hefur töluverð áhrif á rekstur er aldur
á kvígum þegar þær bera í fyrsta
skipti en flestar erlendar rannsóknir
benda til þess að
hagkvæmast sé að láta
þær bera þegar þær eru tveggja ára.
Á þetta hefur m.a. nýlega verið bent
á í Stóra-Bretlandi en í rannsókn
þar kom í ljós að við það að láta
kvígurnar bera 24 mánaða, í stað 26
mánaða, þá skilaði það kúa-bændum
verulegum ábata bæði vegna lægri
uppeldiskostnaðar og aukinnar
endingar. Þar í landi kostaði tveggja
mánaða aukinn uppeldistími um 300
pund eða um 41 þúsund krónur. Þá
kom einnig í ljós að á þeim búum
sem kvígurnar báru yngri entust þær
lengur sem mjólkurkýr og voru 62%
þeirra í framleiðslu við fimm ára
aldur miðað við ekki nema 41%
þeirra sem báru 26 mánaða. Að
sama skapi voru æviafurðir þeirra
sem báru yngri að jafnaði meiri og
munaði þar 23% á þeim sem voru
eldri við fyrsta burð.
Samkvæmt sömu rannsókn var
mikilvægasta atriðið, til þess að ná
þessum árangri, að ala kvígurnar
vel þannig að þegar þær bera þá
væru þær þegar orðnar um 85%
af þunga fullorðinna kúa. Bretar
ráðleggja kúabændum að þekkja
lífþunga kúnna sinna, svo hægt sé
að meta hvort nægilega vel sé staðið
að eldinu á kvígunum. Þegar þetta
er vitað er hægt að reikna út hve
þungar kvígurnar eiga að vera við
12 mánaða aldur, en þeir miða við
að kvígurnar eigi að vera 50% af líf-
þunga kúnna og 55-60% þunga ættu
kvígurnar að ná við 14 mánaða aldur.
Viðbótarkostur
við að fylgjast náið m e ð
þunganum er að á hverjum tíma má
gera breytingar á fóðruninni, hvort
heldur sem kvígurnar eru of léttar
eða of þungar.
Léleg frjósemi
Slök eða léleg frjósemi kúa hefur
auðvitað mikil áhrif á afkomuna
og þó svo að reikna megi beinan
kostnað við hverja sæðingu, þá
getur verið erfitt að reikna út hve
mikið það kostar í raun að kýr færi
til burðina. Bændur geta notað ótal
mismunandi staðla til þess að meta
ástand hjarðarinnar og má nota til
þess einfaldar mælistikur eins og að
allar kýr hafi verið sæddar í fyrsta
skipti að minnsta kosti 65 dögum
eftir burð, að tómir daga kúnna séu
ekki fleiri en 84 og eins og áður
segir að kvígurnar beri ekki eldri
en 24 mánaða gamlar. Allir þessir
þættir hafa bein áhrif á afkomu
bú-anna og því lengra frá þessum
stöðlum sem búin eru, því verri
afkoma er á þeim í samanburði við
þau sem ná góðum árangri.
Ending kúa
Það felst mikill beinn kostnaður í
því að ala upp kvígur og þegar þær
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Dulinn kostnaður hefur mikil
áhrif á rekstur kúabúa – Fyrri hluti
Oft getur verið um að ræða mikinn falinn eða leyndan kostnað á kúabúum sem fellur til samhliða ákvörðunum og/
eða gerðum kúabænda varðandi val á ákveðnum rekstrarleiðum.
Undur erfðatækninnar:
Epli með jarðarberja-
eða ananasbragði
Hugmyndafluginu eru engin
takmörk sett og með hjálp
erfðatækninnar verður í nánustu
framtíð hægt að hanna alls kyns
nýjar útgáfur af ávöxtum og
aldinum.
Ekkert verður því til fyrirstöðu
að framleiða epli með jarðarberja-
eða ananasbragði eða epli með
aldinkjöt í öllum regnbogans
litum, appelsínur með chilikeim
eða agúrkur með bananabragði.
Auk þess sem erfðatæknin mun
gera kleift að framleiða steinlaus
aldin og aldin með fallegum lit
og áferð.
Tæknin sem mun gera þetta
mögulegt kallast Crisp og er ný
uppgötvun í erfðatækni. Genafitl
af þessu tagi er þegar notuð í
matvælaiðnaði til að breyta útliti og
eiginleikum matvæla. Crisp-tæknin
getur til dæmis breytt eiginleikum
sveppa til að lengja endingartíma
þeirra og koma í veg fyrir að þeir
dökkni við geymslu. Á Spáni hefur
tekist að erfðabreyta hveiti þannig
að fólk með glútenofnæmi getur
borðað það og í Japan er búið að
hanna afbrigði tómataplöntu með
stutta stilka þannig að hver planta
getur gefið af sér fleiri aldin. /VH
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
LESTUR PRENTMIÐLA Á LANDSBYGGÐINNI HEIM
ILD
: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt.-des. 2017.
BÆNDAHÖLLIN VIÐ HAGATORG
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
0%
10%
20%
30%
40%
50%
DV STUNDIN MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ BÆNDABLAÐIÐ
8,0%
11,2% 9,4%
22%
27,3%
43,1%
Kívíjarðarber.