Bændablaðið - 14.03.2019, Page 16

Bændablaðið - 14.03.2019, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201916 Þótt Grænland sé næsti nágranni Íslands í vestri og höfuðatvinnuvegur beggja landanna hafi verið hinn sami um langt skeið var lengst af lítið samband milli ríkjanna á sjávarútvegssviðinu. Á því hefur orðið breyting á síðustu árum, bæði með þátttöku Íslendinga í grænlenskum sjávarútvegi og eins auknu samráði og samvinnu ríkjanna vegna nýtingar sameiginlegra fiskistofna. Íslendingar eru reyndar engir nýgræðingar á Grænlandsmiðum. Um miðja síðustu öld sóttu íslenskir togarar stíft í bæði þorsk og karfa undan ströndum Grænlands enda var sókn á þessi mið öllum frjáls á þeim tíma og eftir miklu að slægjast. Síðan dró úr fiskgengd á þessum miðum og seinna kom að því að strandríki fóru að færa fiskveiðilögsögu sína út og reka útlensk fiskiskip af höndum sér. Hér á eftir verður leitast við að gefa nasasjón af snertiflötum grænlensks og íslensks sjávarútvegs og við það sótti höfundur þessa pistils upplýsingar til Hilmars Ögmundssonar, sem starfað hefur síðustu árin sem sérfræðingur um fiskveiðimál í grænlenska fjármálaráðuneytinu. Eigendur Brims hasla sér völl Færeyingar hafa lengi komið töluvert við sögu í fiskveiðum og fiskvinnslu á Grænlandi, en það var ekki fyrr en árið 2014 að Íslendingar fóru að láta til sín taka þar í verulegum mæli þegar eigendur Brims hf. keyptu grænlenska fyrirtækið Arctic Prime Productions af færeyskum útgerðarmanni. Fyrirtækið rekur fiskvinnslur á þremur stöðum á Grænlandi, í Quaqortoq (flökun á þorski), í Nanortaliq (saltfiskvinnsla) og í Kummiut á Austur-Grænlandi en á síðastnefnda staðnum er lítil vinnsla þar sem staðurinn frýs inni mestan hluta ársins. Enn fremur keyptu eigendur Brims þriðjungs hlut í útgerðarfyrirtækinu Arctic Prime Fisheries sem sér um hráefnisöflun fyrir vinnslurnar auk þess sem keyptur er fiskur af heimamönnum. Um tíma átti fyrirtækið stóran og fullkominn frystitogara, Ilivileq (áður Skálaberg), sem nú hefur verið seldur. Fleiri þátttakendur frá Íslandi Fleiri íslenskir aðilar hafa komið við sögu um lengri eða skemmri tíma í grænlenskum sjávarútvegi á undanförnum árum. Þannig á Ísfélag Vestmannaeyja til dæmis hlut í útgerðinni Pelagic Greenland á móti stórfyrirtækinu Royal Greenland. Þetta félag gerir út tvö uppsjávarskip, Tuneq og Tasilaq, sem áður voru íslensk. Síðast en ekki síst er svo að nefna útgerðina Polar Pelagic sem Síldarvinnslan í Neskaupstað á að þriðjungi á móti Grænlendingum. Félagið gerir út Polar Amaroq, sem er eina grænlenska uppsjávarskipið sem er að veiðum að heita má allt árið undir venjulegum kringumstæðum. Skipið landar á Íslandi eins og önnur grænlensk uppsjávarskip, enda engin aðstaða á Grænlandi til þess að taka á móti uppsjávarfiski til bræðslu. Makríllinn birtist Mikið líf hljóp í grænlands veið ar Íslend inga fyrir nokkrum árum þegar makríll fór að ganga á miðin milli Íslands og Grænlands. Græn- lendingar áttu sjálfir fá skip til þess að sinna þessum veiðum og því var gripið til þess ráðs að fá erlend skip til veiðanna. Þannig stunduðu til að byrja með á annan tug íslenskra leiguskipa þessar veiðar auk skipa frá öðrum þjóðum. Makríllinn hefur verið Grænlendingum k æ r k o m i n búbót rétt eins og Íslendingum þótt aflinn hafi verið sveiflukenndur frá ári til árs. Á síðasta ári veiddu skip á þeirra vegum 53.000 tonn af makríl í grænlenskri lögsögu og 10.000 tonn að auki á alþjóðlega hafsvæðinu austan Íslands. Loðnan mikilvægasta sameignin Loðnan hefur fram til þessa verið mikilvægasti sameiginlegi fiskistofn Íslendinga og Grænlendinga. Loðnustofninn heldur sig í grænlenskri lögsögu stóran hluta ársins. Lengi vel var veiðum úr loðnustofninum skipt þannig að í hlut Íslendinga komu 80% leyfilegs afla, Grænlend ing ar fengu 11% í sinn hlut og Norð menn 8%. Eftir að sjórinn fór að hlýna á norðurslóðum fyrir síðustu aldamót hefur loðnan, sem er kaldsjávartegund, hopað meira inn í grænlenska lögsögu og stofninn jafnframt skroppið saman, auk þess sem áratugir eru liðnir síðan loðna hætti að ganga inn í norska lögsögu við Jan Mayen. Af þessum sökum gerðu Grænlendingar kröfu um að hlutfalli ríkjanna þriggja í loðnuaflanum yrði breytt. Niðurstaðan varð sú að hlutur Grænlendinga var aukinn úr 11% í 15%. Hlutur Noregs var minnkaður úr 8% í 5% og hlutur Íslendinga minnkaði úr 81% í 80%. Samvinna báðum í hag Segja má að Íslendingar hafi mátt vel við una að þurfa aðeins að sjá af einu prósentustigi í þessum samningum í ljósi þess að G r æ n l e n d i n g a r gerðu kröfu um 50–60% hlut á þeirri forsendu að allt upp í 70% af stofninum hefði mælst í þeirra lögsögu tímabundið. S a m n i n g s s t a ð a Grænlendinga var hins vegar fremur veik því þegar loðnan heldur sig í lögsögu Grænlands er hún of feit til þess að hægt sé að frysta hana til manneldis um borð í frystiskipum og engar loðnuverksmiðjur eru á Grænlands til þess að vinna úr henni mjöl og lýsi. Að auki hafa Grænlendingar heimild til þess að veiða allan sinn loðnukvóta í íslenskri lögsögu og mega landa loðnu, makríl og síld á Íslandi. Samvinna landanna á þessu sviði er því báðum í hag. Fleiri sameiginlegir stofnar Íslendingar og Grænlendingar eiga fleiri fiskistofna sameiginlega. Þannig er talið að grálúðan sem heldur sig við Austur-Grænland, Ísland og Færeyjar sé einn og sami stofninn. Heildarkvóti hefur verið um 24.000 tonn síðustu árin. Samkvæmt samningi koma 56% í hlut Íslands, 38% í hlut Grænlendinga og afgangurinn er ætlaður Færeyingum. Karfinn flakkar einnig á milli lögsagna ríkjanna. Af 44.000 tonna kvóta í gullkarfa koma 90% í hlut Íslands en 10% í hlut Grænlands. Bæði löndin eiga svo hlutdeild í úthafskarfanum ásamt fleiri þjóðum en úthlutaður kvóti í honum hefur verið hverfandi lítill á liðnum árum vegna dapurs ástands stofnsins. Loks er að nefna að hafrannsóknastofnun Grænlands hefur unnið að þorskmerkingum til að kanna ferðir þorsks yfir lögsögumörkin milli Íslands og Grænlands og komast þannig að raun um hvort stofninn sé að einhverju leyti sameiginlegur, en litlar sem engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu af Íslands hálfu enn sem komið er. Ólíkir meginþættir í sjávarútvegi Sjávarútvegur á Grænlandi er að því leyti frábrugðinn íslenskum sjávarútvegi að rækja er mikilvægasta fisktegundin þar í landi. Á síðasta ári nam rækjuaflinn 89.000 tonnum sem að megninu til veiddist við Vestur- Grænland en að litlu leyti við austurströndina. Til samanburðar má nefna að rækjuaflinn við Ísland á árinu 2018 var aðeins 4.500 tonn. Grálúða er næstverðmætasta fisktegundin og nam aflinn í fyrra 41.000 tonnum sem að mestu veiddist við Vestur-Grænland. Þorskur er svo þriðja mikilvægasta fisktegundin en af honum veiddust hátt í 50.000 tonn við Grænland, sem reyndar var langt umfram veiðiráðgjöf vísindamanna. Sjávarafurðir 95% af heild Grænlendingar eru miklu háðari sjávarútvegi en Íslendingar, sem sést m.a. af því að 95% af Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com Talsverðar umræður sköpuðust fyrir skömmu við hádegis­ verðar borðið á B2 um heim­ ilda mynd á Netflix um fólk sem trúir eða segist trúa því að jörðin sé flöt. Önnur hugmynd ekki ólík eðlis segir að jörðin sé hnöttótt en hol að innan og stangast því algerlega á við hugmyndina um að hún sé flöt. Í norrænni goðafræði er talað um Niflheim þar sem hinir dauðu ráfa um í eilífum kulda og myrkri. Dýpstu rætur Asks Yggdrasils ná þangað niður og drekinn Níðhöggur nagar ræturnar í von um að drepa tré lífsins. Slavneskar þjóðsögur segja frá heimi undir fótum okkar þar sem íbúarnir lifa í eilífum glaumi og vellystingum. Í þann heim er einungis hægt að komast eftir hellum sem liggja djúpt ofan í jörðina og í fylgd anda sem þekkja leiðina. Breski stjörnufræðingurinn Edmond Halley, sem var uppi á 17. öld og halastjarnan Halley er kennd við, trúði því staðfastlega að jörðin væri hol að innan og að þar byggi fólk. Hann ályktaði sem svo að fyrst Guð hefði komið fyrir fólki á yfirborði jarðar þá hefði hann líka gert það inni í jörðinni. Halley hélt því fram að andrúmsloftið inni í jörðinni væri sjálflýsandi og að norðurljósin væru ljós innan úr jörðinni sem læki í gegnum þunna jarð- skorpuna á norðurpólnum. Snemma á nítjándu öld setti Bandaríkjamaðurinn John Cleves Symmes fram þá fullyrðingu að jörðin væri íhvolf kúla og að það væri hægt að komast inn í hana um göt á pólunum. Samkvæmt hugmyndum Symmes var hægt að ganga inn í jörðina eftir ávölum brúnum gatanna og fyrir innan var fallegt og skjólsælt land sem nyti birtu frá sólu í gegnum götin á pólunum. William Reed hélt því fram árið 1906 að ástæðan fyrir því að menn hafi ekki náð á pólana væri einfaldlega sú að þeir væru ekki til. Í stað þeirra áttu að vera risastór göt inn í jörðina. Marshall B. Gardner tók í sama streng árið 1913, hann afneitaði aftur á móti kenningunni um að himinninn inni í jörðinni væri sjálflýsandi. Hann taldi að þar væri lítil sól, níu hundruð og sextíu kílómetrar að þvermáli, sem lýsti upp innri heiminn. Hörðustu áhangendur kenn- ingar innar trúa því að inni í jörðinni sé háþróað menningar- og tæknisamfélag. Banda- ríkjamaðurinn Richard Shaver taldi sig hafa fengið vitrun í kringum 1940 þar sem hann komst í samband við háþróaða veru innan úr jörðinni. Shaver hélt því fram allt til dauðadags, um 1975, að fljúgandi diskar væru farartæki innrijarðarbúa og stofnaði samtök sem höfðu það að markmiði að komast í samband við slíkar verur. Samkvæmt einni kenningunni heitir heimurinn inni í jörðinni Agharta. Íbúarnir búa í um eitt hundrað misstórum samfélögum en höfuðborgin heitir Shamballa og er staðsett nokkurn veginn undir Kentucky í Bandaríkjunum. Tungumál íbúanna er frumtunga jarðarinnar, tunga sem öll önnur mál eru komin af. Agharta er stjórnað af tólf manna ráði, sex karlmönnum og sex konum, Ra og Rana Mu eru æðstuprestar ráðsins. Íbúar Agharta geta orðið mörg þúsund ára gamlir en flestir þeirra kjósa að líta út eins og þeir séu „thirty something“. /VH STEKKUR NYTJAR HAFSINS Ísland – Grænland Frá höfninni í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Alls sautján frystitogarar af stærri gerðinni eru í grænlenska flotanum og að auki um tugur annarra skipa yfir 30 metra löng. Þilskip undir þeim mörkum eru um 260 talsins og því til viðbótar er svo aragrúi opinna báta. Grænlendingar eru ötulir veiðimenn. Talið er að opnir bátar upp að sex metrum að lengd séu um 1.900 talsins. H inn 1. janúar 2018 tók gildi nýtt veiðigjaldakerfi á Grænlandi sem gerir það að verkum að tekjur ríkisins af veiðigjöldum hafa stóraukist. Er jörðin hol?

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.