Bændablaðið - 14.03.2019, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201920
Samkvæmt gögnum Alþjóða
hei lbrigðismálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (World
Health Organization – WHO)
á síðasta ári, eiga 60%
sjúkdóma í mönnum uppruna
að rekja til dýra. Smit vegna
lyfjaónæmra baktería er talin
valda 700 þúsund dauðsföllum
á ári. Stofnunin leggur nú mikla
áherslu á að íbúar heimsins vakni
til meðvitundar um þá miklu
hættu sem stafar af aukinni
útbreiðslu lyfjaónæmra örvera.
Á íslenskum samfélagsmiðlum
hefur hins vegar mátt sjá látlaust
froðusnakk um að þetta sé bara
„HRÆÐSLUÁRÓÐUR“. Fólk lifi
bara fínu lífi úti í Evrópu þrátt fyrir
neyslu á matvælum sem sögð séu
menguð lyfjaónæmum bakteríum.
Karl G. Kristinsson, prófessor
við Háskóla Íslands og yfirlæknir
við sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans, sýndi hins vegar
fram á það í erindi sem hann hélt
á Hótel Sögu fyrir skömmu að ekki
er allt sem sýnist í þessum efnum.
Niðurstöður rannsóknar sem gerð
var á Landspítalanum sýndi sláandi
niðurstöður. Yfirgnæfandi meirihluti
sjúklinga á spítalanum sem smitast
höfðu af kamfílóbakteríu höfðu
einmitt smitast á ferðalögum í
útlöndum. Yfir 15 sinnum meiri líkur
eru á að smitast af slíkri bakteríu
við neyslu á fæðu í útlöndum
en á Íslandi. Þrátt fyrir þetta er
fullyrt að þetta sé hræðsluáróður
um leið og gerðar eru kröfur um
að heimila frjálsan innflutning
á hráum og ómeðhöndluðum
matvörum. Þar ganga fremstir
í flokki hagsmunagæslumenn
innflutningsverslana. Allt er það
sagt vera í þágu neytenda og til að
uppfylla viðskiptasamninga EES,
en um leið þvert á baráttu íslenskra
og erlendra vísindamanna og
alþjóðlegra stofnana.
Dagana 12.–18. nóvember
á síðasta ári var haldin sérstök
ráðstefna á vegum WHO í Evrópu
á fjórðu „World Antibiotic
Awareness“ viku undir kjörorðunum
„Ein heilsa“ eða „One Health“.
Þar sameinaði WHO í Evrópu
krafta sína með svæðisskrifstofu
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO)
í Evrópu og Mið-Asíu og
svæðisfulltrúa Mið-Asíudeildar
A l þ j ó ð a h e i l b r i g ð i s m á l a -
stofnunarinnar fyrir dýraheilbrigði
(OIE) til að hvetja stjórnvöld til
að samþykkja eða styrkja þátttöku
þeirra í One Health-nálguninni.
Ástæðan er margháttuð:
• Sýklalyf eru mikið notaðar í
búfjárframleiðslu, stundum til
að stuðla að vexti og stundum
til að koma í veg fyrir sýkingu,
frekar en að meðhöndla dýrið.
Þessi ofnotkun sýklalyfja getur
leitt til meira lyfjaónæmis
meðal örvera.
• Sömu flokkar sýklalyfja eru
oft notuð bæði hjá mönnum
og dýrum og til að framleiða
matvæli.
• Matvælakeðjan er öflug
dreifingarleið sjúkdóma
og krefst náins eftirlits og
samhæfingar til að koma í veg
fyrir útbreiðslu þeirra.
33.000 íbúar ESB- og EES-
ríkja deyja nú árlega vegna
sýklalyfjaónæmis
Um 33 þúsund Evrópubúar deyja
árlega í ríkjum Evrópusambandsins
og á Evrópska efnahagssvæðinu af
völdum lyfjaónæmra baktería og
hækkar sú tala stöðugt.
Margar af sömu örverunum
(eins og baktería, vírusa, sveppa
og sníkjudýra) hafa bæði áhrif á dýr
og menn. Í fólki er hlutfall sýkinga
sem líka er að finna í dýrum um
60%. Það þýðir (samkvæmt
grein á vefsíðu WHO) að örverur
hafa þróað með sér ónæmi fyrir
lyfjunum í dýrum.
„Þessar örverur geta síðan
auðveldlega borist í menn og valdið
sjúkdómum og sýkingum.“
Á sama tíma og Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin gefur
þetta út er höfð uppi hörð krafa
af Evrópusambandinu í gegnum
EES-samninginn að Íslendingar
aflétti hömlum á innflutning á
m.a. hráu kjöti og vinni þannig í
raun gegn þeim markmiðum sem
stofnunin er að berjast fyrir. Ein
helstu rökin fyrr kröfunni um aukið
viðskiptafrelsi eru svo að það sé
gert í þágu neytenda.
Skorar á allar ríkisstjórnir að
beita hámarks úrræðum
„Heilsu manna, dýra og umhverfis
eru öll jafn háð réttri notkun
sýklalyfja. Ábyrgðin liggur því jafnt
á öllum þessum þáttum og að varað
sé við ógninni af sýklaónæmum
örverum,“ sagði dr. Zsuzsanna
Jakab, svæðisstjóri WHO í Evrópu.
„Þegar við leitumst við að
tryggja að sýklalyf séu rétt notuð í
samfélaginu og í heilsugæslu, mun
ein grein ekki leysa vandamálið.
Með „One Health“-nálgun koma
sérfræðingar á sviði manna, dýra,
matar og umhverfis og heilsu saman
sem eitt afl og er það eina leiðin til
að við getum haldið sýklalyfjum
virkum. Ég hvet öll evrópsk ríki til að
tryggja að ýtrustu úrræðum sé beitt
við þessa nálgun frá öllu samfélaginu
og öllum ríkisstjórnum.“
„Með 33.000 dauðsföll á
hverju ári sem afleiðingu af
sýkingu vegna baktería sem eru
ónæmar fyrir sýklalyfjum og 1
milljarði evra í auknum árlegum
heilsugæsluútgjöldum, þurfum við
að tryggja að sýklalyf séu notuð
varlega og að fyrirbyggjandi
aðgerðir gegn sýkingum séu fyrir
hendi alls staðar í Evrópu,“ sagði
Andrea Ammon, framkvæmdastjóri
Evrópumiðstöðvarinnar um
sjúkdómsvarnir og eftirlit (ECDC).
Hún bætti við:
„Þar sem vöxtur sýklalyfja-
meðferðar og hlutfall sýklalyfja-
meðferðar og sýkingarvarnaraðferða
eru breytileg frá landi til lands, er
nauðsynlegt að aðlaga aðferðir til að
takast á við tilteknar þarfir. ECDC
kallar á áframhaldandi aðgerðir á
öllum stigum.“
Allt þetta bendir til þess að enginn
einstakur geiri hafi getu til að leysa
vaxandi vandamálið varðandi
myndun sýklalyfjaónæmis einn og
sér, en sameiginleg aðgerð getur
hjálpað heiminum að ná árangri,
segir í útlistun WHO.
Ein heilsufarsaðferðin sem nefnd
hefur verið felur í sér samræmingu
aðgerða þeirra sem annast lýðheilsu
fólks, heilbrigði dýra og þeirra sem
koma að umhverfismálum. Það þýðir
að viðurkenna verður þá staðreynd að
örverur virða ekki landamæri – þær
geta auðveldlega farið frá mönnum
til dýra og breiðst út frá einum
landfræðilegum stað til annars.
Vinna gegn myndun
sýklalyfjaónæmis í dýrum er
áhrifaríkasta leiðin
Ein áhrifaríkasta leiðin til að vernda
heilsu manna er að draga úr líkum á
að mótefni þróist meðal örvera hjá
dýrum.
Alþjóðaheilbrigðismála stofnunin
segir að margar ríkisstjórnir séu
að fella úr notkun sýklalyf sem
vaxtarhvata og í fyrirbyggjandi
aðgerðir í búfé. Þau mælist til að
aðeins séu notuð örverueyðandi lyf
(sýklalyf) til að lækna dýr við mjög
sérstakar aðstæður.
Lönd sem ekki hafa þegar gert
þetta eru hvött til að gera ráðstafanir
til að tryggja að lyfin á tilgreindum
lista yfir nauðsynleg sýklalyf, þ.e.
þau sem eru mikilvægust til að
tryggja heilbrigði manna og dýra,
séu aðeins notuð þegar nauðsynlegt
er. Þetta hjálpi til við að koma í
veg fyrir að mótefni myndist gegn
sýklalyfjum og gerir okkur kleift að
nota sýklalyf áfram til lækninga bæði
hjá mönnum og dýrum.
Á síðasta ári gaf Alþjóða-
heilbrigði smálastofnunin út
staðreyndalista um sýklalyfja-
ónæmið. Þar segir m.a.:
• Sýklalyfjaónæmi er eitt af
stærstu ógnum heims heilsu,
matvælaöryggi og þróun í dag.
• Sýklalyfjaónæmi getur haft
áhrif á alla, á hvaða aldri sem
er, í hvaða landi sem er.
• Sýklalyfjaónæmi myndast
af náttúrulegum ástæðum,
en misnotkun sýklalyfja hjá
mönnum og dýrum er að hraða
ferlinu.
• Sýklalyfjaónæmar bakteríur
eru vaxandi og alvarleg ógn
við almannaheilbrigði og krefst
aðgerða frá öllum opinberum
geirum hvers samfélags.
• Vaxandi fjöldi sýkinga – svo
sem vegna lungnabólgu, berkla,
kynsjúkdóma og salmonellu
verður erfiðara að meðhöndla
þar sem sýklalyf sem notuð eru
til að meðhöndla þau hætta að
virka.
• Sýklalyfjaónæmar bakteríur
(AMR) ógna árangursríkum
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
V eldu einungis matvæli sem eru framleidd án sýklalyfja og vaxtarhvata og þar sem sjúkdómavarnir heilbrigðra dýra eru í lagi.
Ef ekki tekst að stöðva útbreiðslu nýmyndunar sýklalyfjaónæmra baktería munu þær vera farnar að drepa eina
manneskju á þriggja sekúndna fresti í heiminum eftir 30 ár.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, skorar á allar ríkisstjórnir að bregðast við hraðri útbreiðslu ofursýkla:
HRÆÐSLUÁRÓÐUR ...?
– Sameiginlegt átak „Ein heilsa“ eða „One Health“ sögð eina leiðin til að sýklalyfin haldi áfram að virka