Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 41
Í fyrstu er fátt að sjá sem er
sameiginlegt. En þó þarf ekki að
leita lengi til að sjá hvað það er.
Það sem er sameiginlegt er afsal
á lýðræðislegu valdi.
Brussel vill orkuna á markað
Orkupakki þrjú á sér langan
aðdraganda, allt aftur á miðjan
síðasta áratug liðinnar aldar.
Þá var birt í Brussel svokölluð
grænbók um orkumál en í henni
var kveðið á um að nú skyldi stefnt
að því að líta á orku sem hverja
aðra markaðsvöru. Þetta var alger
nýlunda en í samræmi við þessa
stefnu leit fyrsti orkupakkinn von
bráðar dagsins ljós og liðu aðeins
örfá ár þar til hann var kominn í
íslensk lög. Það var árið 2003. Þá
var orkupakki tvö löngu kominn á
vinnsluborðið og varð að lögum
hér árið 2008. Og sagan endurtók
sig með þriðja orkupakkann sem nú
bíður afgreiðslu á Alþingi, af eða á.
Vonandi verður honum hafnað og
helst undið ofan af því sem áður
er orðið.
Þessir pakkar hafa allir stefnt í þá
átt sem boðað var í grænbókinni, að
búa í haginn fyrir markaðsvæðingu
– og í framhaldinu einkavæðingu –
orkunnar, fyrst með því að greina
í sundur framleiðslu, dreifingu og
sölu í bókhaldi og nú síðast hvað
varðar sjálft eignarhaldið; frá og
með þriðja orkupakkanum skuli
það ekki vera á sömu hendi.
Beisli og mél frá ACER
Eignarhaldsákvæðið svo og
bann við samráði var að finna
í orkupökkum eitt og tvö, en í
þriðja pakkanum er hert á þessum
ákvæðum. Enda þótt Íslendingar
muni hafa fengið undanþágu hvað
eignarhaldið áhrærir er engu að
síður hafið ferlið hér á landi um
aðgreiningu sjálfs eignarhaldsins.
Þannig stefnir ríkið nú að því að
kaupa eignarhluta Landsvirkjunar,
Rarik, Orkuveitu Reykjavíkur og
Orkubús Vestfjarða í Landsneti. Öll
eru þessi fyrirtæki í eign almennings,
þannig að almenningi er ætlað að
kaupa Landsnet af almenningi.
Þetta er hins vegar bara
forsmekkurinn af því sem koma
skal.
Ef við förum undir ACER
má búast við kærum vegna
markaðsráðandi stöðu Lands
virkjunar. Það mál yrði síðan leyst
með því að búta þá stofnun niður
og selja síðan einstakar virkjanir í
partasölu!
Viljum við þetta? Eftir að við
fengjum upp í okkur beisli og mél
frá ACER fengjum við einfaldlega
engu um þetta ráðið!
„Ekkert annað en
markaðspakkar“
Þótt vissulega sé gott að tryggja
almannaeign á dreifikerfinu þá
er vegferðinni þar með engan
veginn lokið, sem áður segir,
og um það voru yfirlýsingar
Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur
iðnaðarráðherra á nýafstöðnum
ársfundi Landsvirkjunar upplýsandi.
Í fyrsta lagi sagði ráðherrann
réttilega um orkupakka eitt og tvö,
að þeir væru „ekkert annað en
markaðspakkar, og sá þriðji (væri)
það líka.“
Verra var þegar ráðherrann lýsti
afstöðu sinni til orkuauðlindar
þjóðarinnar. Samkvæmt mbl.is
sagðist Þórdís Kolbrún „hafa heyrt
af því að hópur fólks sem ætlaði
að berjast gegn samþykkt þriðja
orkupakkans á Alþingi ætlaði að
fara fram undir slagorðinu „Okkar
orka“ og sagðist hún túlka þau
skilaboð sem svo að þessi hópur
teldi orkuauðlindina af sama
meiði og fiskinn í sjónum, þ.e. í
sameign þjóðarinnar. Svo er ekki,
sagði ráðherra, og lagði áherslu
á að vatnsafl og jarðvarmi og
nýtingarréttur af þeirri auðlind
væri í hendi landeigenda.“
Tíðrætt um íslenska garðyrkju
Stjórnmálamaður með þessar
skoðanir mun ekki eiga erfitt með
að samþykkja orkupakka þrjú,
enda ekkert annað en enn einn
markaðspakkinn! Ég leyfi mér nú
samt að halda því fram að ýmsir
samflokksmenn ráðherrans líti ekki
alveg eins á málið, alla vega ekki
þeir sem ég hef setið fundi með undir
kjörorðinu „orkan okkar“. Þeim
hefur til dæmis orðið tíðrætt um
garðyrkjubændurna sem orkupakki
þrjú mun leggja bann við að fengju
niðurgreidda raforku. Og erum við
þá að nálgast fyrirsögn þessa pistils.
Samkvæmt orkupakka þrjú er slitið
á öll tengsl stjórnmálamanna við
orkugeirann sem hér eftir skuli
rekinn á markaðsforsendum og öll
lýðræðisleg inngrip bönnuð.
Komið er á fót yfirþjóðlegri
stofnun, ACER, sem á að fylgjast
með því að þessu verði framfylgt.
Hún mun hafa úrskurðarvald í
deilumálum sem kunna að verða
í viðskiptum yfir landamæri og
gefur hún auk þess út fyrirmæli um
hvernig viðskiptum verði háttað á
öllu svæðinu.
Og þá að kjötinu
Nákvæmlega hið sama gerist með
lagabreytingum um innflutning á
hráu kjöti. Þeir vísindamenn sem
mest mark er á takandi sökum
þekkingar sinnar og rannsókna vara
við innflutningnum. Brussel kemur
þetta hins vegar ekkert við né
dómstólum sem dæma samkvæmt
reglum þaðan. Markaðurinn einn
eigi að ráða.
Varnaðarorð vísindamanna
og hrikaleg reynsla okkar af
innfluttum sjúkdómum hlýtur hins
vegar að kalla á viðbrögð þeirra
sem ætlað er að standa vörð um
almannahag.
Hvort sem um er að ræða
orkuauðlindirnar eða heilsu manna
og dýra þá er komið að því að reisa
rönd við yfirgangi markaðsaflanna.
Sóttvarnarlæknir, mislingar
og frelsið til að grilla
Fyrir fáeinum dögum kom upp
mislingatilfelli í íslenskri flugvél.
Gripið var til bráðaaðgerða af
hálfu sóttvarnarlæknis. Embættið
vissi að voðinn var vís. Og þau
sem spyrja hve vitlegt sé að hefja
innflutning á hráu kjöti ættu að fara
að dæmi sóttvarnarlæknis og leyfa
varfærninni að njóta vafans.
Ekki eru þó allir á þeirri skoðun.
Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, skrifar í
Fréttablaðið í vikunni sem leið
undir fyrirsögninni Frelsi til að
grilla. Þar segir m.a.: „Með bættum
lífskjörum verða Íslendingar
veraldarvanari. Algengt er að fólk
ferðist víða um heim, verji tíma
í stórborgum og jafnvel afli sér
menntunar eða starfi erlendis. Það
er vant fjölbreyttu borgarlífi sem
og úrvali vöru og þjónustu … Það
vill velja um jarðarber frá Spáni
eða Íslandi og það hvort ferska
steikin komi frá Hollandi eða
Íslandi. Takmarkanir á innflutningi
ferskvöru eru óheimilar samkvæmt
EES-samningnum auk þess sem það
er neytendum alltaf til hagsbóta að
hafa val … Fyrst og fremst eigum
við að treysta fólki. Við eigum að
treysta íslenskum landbúnaði til
að standast erlendum snúning,
eftirlitsstofnunum til að sinna sínu
eftirliti af myndugleika og ekki síst
að treysta neytendum til að kjósa
hvað þeir láta ofan í sig.“
Þegar frelsi eins skaðar aðra
Þessi einföldun af hálfu
stjórnmálamanns vekur hroll.
Mislingarnir í flugvélinni ættu að
minna á hve mikilvægt það er að
hlustað sé á ábyrga vísindamenn
og að stjórnmálamenn átti sig á
því að smitsjúkdómar koma okkur
öllum við og eiga ekki að snúast
um frelsi einstaklinga til að flytja í
kjötborðin okkar vöru sem valdið
getur samfélaginu öllu ómældu
tjóni. Þar með snýst frelsið upp í
andhverfu sína.
Hér er fjallað um hvernig
bregðast eigi við aðkallandi
vanda. Mínar áhyggjur eru ekki
um það hvernig brugðist er við
hverju sinni, heldur hitt hvort við
yfirleitt megum bregðast við. Það
á nefnilega við bæði um raforkuna
og innflutninginn á matvælum, að
þegar markaðslögmálin hafa verið
leidd til öndvegis fylgir það með
að vilja okkar er úthýst.
Ögmundur Jónasson
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
LESENDABÁS
Hvað er sameiginlegt með orkupakka
þrjú og innflutningi á hráu kjöti?
Ögmundur Jónasson.
eða svo kölluðum „skúrhalla“. Var
þar vísað til þakhalla á sögufrægri
byggingu er stóð í hlaði á æskuheimili
þáverandi landbúnaðarráðherra, sem
hagræðingin skyldi miðast við. Þó 1%
hagræðing á ári hafi ekki vegið þungt
við upphaf samningsins, þá vinnur
tímans niður þar sem annarstaðar.
Hefði verið byggt við þennan
merka skúr með sama þakhalla og
sem nemur komandi framtíð, hefði
glögglega mátt sjá hvert þakbrúnin
stefndi áður en yfir lyki. Því fordæmi
sem þarna var komið á, hefur því
miður reynst erfitt hnekkja.
Í núverandi samningum náðist
þó nokkur árangur til mótvægis
þeim skerðingum sem orðið hafa á
starfsskilyrðum landbúnaðarins árin
þar á undan. Hvað nautgriparæktina
varðaði, fengust nýir fjármunir til
stuðnings við nautakjötsframleiðslu
og í Rammasamning um landbúnað
kom m.a. nýr flokkur landgreiðslna,
sem nýtast kúabændum ekki hvað
síst. Í þessu efni þarf að horfa vítt
yfir sviðið. Sterk rök hníga með því
að auka þróunarfé nautgriparæktar
í rammasamningi, t.d. með því að
greinin hækki sitt tillag úr 1315
milljónum kr á ári í 50 milljónir, gegn
því að ríkið komi með sömu upphæð
á móti þannig að heildar potturinn
verði 100 milljónir árlega. Knýjandi
er að auka rannsóknir í greininni, ekki
síst á sviði fóðrunar og fóðurverkunar,
enda er fóðurverkunin mikilvægasti
drifkraftur nautgriparæktarinnar
til framtíðar litið. Þá verði horft
til þess að fjármunum til átaks í
kolefnisbindingu verði fundinn
farvegur í Rammasamningi land
búnaðarins.
Stigið fram á við
„Það vel skal vanda, sem lengi
skal standa“ er stundum sagt.
Það er erfitt að sjá fyrir sér að
landbúnaður verði stundaður
hér á landi næstu áratugi án
atbeina hins opinbera. Því er afar
mikilvægt að vilji almennings á
Íslandi til að styðja við landbúnað
sé varðveittur og forsvarsmenn
landbúnaðarins umgangist hann
af virðingu. Það er bjargföst
sannfæring okkar að verslun og
viðskipti með stuðningsgreiðslur
ríkisins séu vísasta leiðin til að
eyðileggja þann vilja. Framsal
stuðningsgreiðslna verður því
að stöðva. Sama gildir um
vatnshallann, haldi hann áfram
verður samningurinn á endanum
lítils virði.
Starfsskilyrði þessarar
langstærstu greinar íslensks
landbúnaðar verður að þróa og
útfæra þannig að nautgriparæktin
geti mætt fjölbreyttum
áskorunum í nútíð og framtíð.
Næsta endurskoðun skal fara
fram árið 2023 og þá skulu
jafnframt lögð drög að næsta
samningi, sem vonandi tekur
gildi 1. janúar 2027. Þangað til
eru sjö ár og sex mánuðir, sem
verða liðin áður en við vitum
af. Því er mikilvægt að með
endurskoðuninni nú verði tekin
stór og ákveðin skref til móts við
nýja tíma.
Baldur Helgi Benjamínsson
Jóhann Nikulásson
Sigurður Loftsson