Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201946
Laugardaginn 2. mars síðastliðinn
var frumsýning á Jeep Wrangler
Rubicon hjá Ísband í Mosfellsbæ.
Sýndir voru tvenns konar bílar,
annars vegar dísilbíll með
200 hestafla vél og hins vegar
bensínbíll með 273 hestafla vél.
Að loknum frumsýningardegi
fékk ég til prufuaksturs bensínbílinn
og skemmst er frá því að segja
að þessi prufuakstur var bara
skemmtilegur alveg frá fyrstu
metrunum og alla næstu 150 km
plús.
Eldsneytiseyðslan
í hærri kantinum
ef maður passar sig ekki
Strax og ég settist inn í bílinn byrjaði
ég á að skoða hvað þeir sem höfðu
prófað bílinn á undan mér höfðu
verið að eyða af bensíni miðað við
100 km akstur þessa 347 km sem
var búið að keyra bílinn áður en ég
fékk hann afhentan, en samkvæmt
aksturstölvunni var það 16,2 lítrar á
hundraðið. Ég núllaði aksturstölvuna
og ók af stað í borgarumferðina
og eftir um 50 km þar sem ég var
„þokkalega“ stilltur á gjöfinni var
mín eyðsla 13,9 lítrar á hundraðið.
Næst tók ég keyrslu sem jafnaðist
á við langkeyrslu á 80–90 km hraða
og þá var eyðslan ekki nema 6,5
lítrar á hundraðið, en uppgefin
meðaleyðsla í blönduðum akstri
er 10 lítrar á hundraðið. Miðað við
minn akstur og uppgefna eyðslu er
töluverður munur á innanbæjarakstri
og langkeyrslu enda vélin afar
kraftmikil og svarar vel þegar
maður ekur með þungan hægrifót.
Enda erfitt að vera ekki með þungan
bensínfót á svona kraftmiklum bíl.
Gerði tilraun á loftþrýstingi á
malarvegi sem breytti miklu
Að keyra bílinn á malbiki er mjög
gott og hávaðinn inni í bílnum á 90
km hraða er rétt yfir 70 desíbel (db).
Þó var svolítið hvimleiður söngur
sem kom frá grófum hjólbörðunum
á malbikinu, en þegar komið var á
malarveginn fann maður vel hvernig
gormafjöðrunin var að vinna sitt
verk vel og örugglega. Að mínu
mati mætti loftþrýstingurinn í
hjólbörðunum vera minni. Þegar
ég fékk bílinn var 39 psi í öllum
hjólbörðum svo að ég gerði tilraun
og hleypti úr dekkjunum niður í 30
psi allan hringinn. Það var allt annað
að keyra bílinn á malarveginum með
svona lítið í dekkjunum, mun mýkri
og maður fann lítið fyrir holunum.
Í dekkjunum eru skynjarar sem
vara við loftleysi í dekkjum og þeir
eru greinilega stilltir fyrir að fara
ekki svona neðarlega og 30 psi voru
greinilega of lág þannig að allar
tölur voru rauðar og ekkert annað í
stöðunni en að pumpa í aftur.
Mikið af góðum búnaði sem er
ómissandi
Í hvert sinn sem ég setti bílinn í gang
fór sætishitarinn í ökumannssætinu
í botn og stýrishitarinn fór líka
sjálfkrafa á sem er ekkert óþægilegt
og maður þarf ekki að leita að
þessum tökkum fyrr en að hendur
og óæðri endi eru orðin of heit til
að slökkva. Í bílnum er 220 volta
tengill, en ekki ætlaður fyrir mikla
rafmagnsnotkun og 150 wött er
hámarkið.
Blindhornsvarar eru á bílnum
eins og er að verða staðalbúnaður
í flestum nýjum bílum í dag.
Bakkmyndavélin er með þeim
stærri og skýrari sem ég hef séð í
bíl. Næstum því hægt að kalla þetta
sjónvarp, svo stór er skjárinn.
Fullbúið varadekk er í bílnum, en
það eina sem ég sá og fann neikvætt
við bílinn var ljósabúnaðurinn. Til
að fá afturljósin til að kvikna svo að
maður sé löglegur í umferðinni, þá
verður maður að muna að kveikja
full ljós. Ekki er hægt að skilja þau
eftir kveikt þegar drepið er á bílnum,
þar sem að þau fara ekki af sjálfkrafa
eins og í mörgum öðrum bílum.
Vél og búnaður
Bensínvélin er V6 2000 og skilar
273 hestöflum, 8 gíra sjálfskipting
er í bílnum, en uppgefin dráttargeta
er ekki nema 2,370 kg (frekar lítið
miðað við kraft í bílnum).
Hægt er að keyra bara í
afturhjóladrifinu og þannig stilltur og
þegar ég ók á 90 km hraða var eyðslan
hjá mér ekki nema 6,5 á hundraðið.
Svo er sjálfvirkt fjórhjóladrif sem
kemur sjálfvirkt inn þegar þess er
þörf, þ.e. „4H part time“. Þá er læst
milli fram- og afturöxuls. Síðan er
það 4L sem er lágt drif með læsingu
milli fram- og afturöxuls.
Hæð undir lægsta punkt er 25,2
cm, en án nokkurra breytinga er hægt
að setja bílinn á 35 tommu dekk og
mjög auðvelt er að breyta þessum
bíl og hækka.
Í boði er að taka húsið af í
nokkrum pörtum og hurðir líka á
heitum sumardögum og segir sagan
að amerískir drullumallarar sem fara
á sérstök aksturssvæði húslausir og
koma þaðan með allt drulluskítugt,
þá er bara notuð háþrýstidælan á
allt, sæti, mælaborð og annað sem
þarf að þrífa þar sem þetta á að þola
háþrýstiþvott. Persónulega myndi ég
ekki treysta því.
Þessi bíll er einn vinsælasti jeppi
sem fáanlegur er í Ameríku og þar
af leiðandi eru ótal vefsíður og
verslanir sem bjóða upp á alls konar
aukabúnað í þessa bíla.
Grunnverðið er frá 10.890.000 á
Jeep Wrangler Rubicon. Svo er bara
spurning um hvað maður vill mikið
af þægindum í breytingarpakka.
Allar nánari upplýsingar er hægt
að nálgast hjá sölumönnum Ísband
eða á vefsíðunni www.isband.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
með fullt af hestöflum
Jeep Wrangler Rubicon. Myndir / HLJ
Framstuðarinn er þetta fína sæti sem fínt er að nota t.d. við skóskipti.Nemarnir í dekkjunum ekki ánægðir með svona lítið loftmagn.
Bakkmyndavélin er með stórum skjá og eiginlega eins og sjónvarp.
Oft eru bílar illa varðir undir miðjunni, en hér er greinilega hugsað fyrir öllu
og frágangur góður.
Fullbúið varadekk, en það þarf að
muna eftir að kveikja og slökkva
ljósin svo að afturljósin séu á í
umferðinni.
Hugsað fyrir öllu. Þessi 20 göt eru
ætluð fyrir skrúfurnar sem festa
toppinn og hurðirnar á bílinn ef það
er tekið af, en á þessum vísa stað
týnast þær ekki.
USB tengill og 220v tengill fyrir
150w rafmagnstæki er ekki í boði í
mörgum bílum.
Þyngd 2.080 kg
Hæð 1.850 mm
Breidd 1.890 mm
Lengd 4.880 mm
Eldsneytistankur 81 lítri
Helstu mál og upplýsingar