Bændablaðið - 14.03.2019, Qupperneq 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 47
Í þessum pistlum sem hafa verið
hér í blaðinu á sjöunda ár hefur
víða verið komið við. Við öflun á
efni til að fræða svo að gagn og
árangur náist í forvörnum, heilsu
og ásýnd hefur víða verið leitað
að efni. Mest hefur verið notast
við að „gúggla“ efni, en í einstaka
tilfellum hefur mér verið sent efni
til að vinna út frá og ómetanlegar
eru þær ábendingar sem ég
hef fengið frá ýmsum góðum
mönnum.
Persónulega hefði ég
viljað fá fleiri ábendingar frá
tryggingarfélögum um það sem
betur mætti fara að þeirra mati, en
tryggingarfélögin ættu að geta séð
óeðlilegt munstur óhappa og slysa
á undan mörgum öðrum.
Umhverfismál og ásýnd of
aftarlega í hugsun Íslendinga
Drasl og sóðaskapur er mjög
misjafnt túlkað af mörgum, en það
sem sumum finnst ryðgað drasl er
jafnvel gersemi í augum annarra,
samanber gömul vinnutæki, bílar
og gamlar rústir bæja og útihúsa
svo eitthvað sé nefnt. Vissulega
finnst mér gaman að skoða gamla
bílakirkjugarða og gamlar hleðslur
húsa og fleira.
Það eru örugglega flestir sem
taka undir það að þegar af gömlum
hleðslum stafar hrunhætta og
bílakirkjugarðurinn er hættulegur
fyrir þá sem þangað koma er full
þörf á að að taka til hendinni og
gera svæðin hættulaus. Það er og
verður alltaf álitamál hvað er drasl
og verðmæti, en stundum verður
að fórna verðmætum fyrir öryggi
og betri ásýnd. Hins vegar er alltaf
hægt að tína rusl og taka til drasl
sem virðist vera alls staðar og er
alltaf að verða meira og meira
vandamál.
Heilsa og heilsufar er eitthvað
sem hver og einn getur stjórnað
sjálfur
Nú stendur yfir sá mánuður sem
kallast Mottumars, sem er hvatning
til okkar strákanna að láta kíkja á
neðrihlutann á okkur. Eitthvað sem
margsinnis hefur sannað ágæti sitt
og bjargað mörgum karlinum frá
ótímabærum veikindum og jafnvel
dauða. Hjá mörgum er þetta mikið
feimnismál, en við erum ekkert
öðruvísi en bíll sem er orðinn gamall
og fer í skoðun, það er oftar en ekki
eitthvað að gamla bílnum sem kemur
í ljós við skoðun. Þetta er eins með
okkur sem viljum kalla okkur stráka,
en erum byrjaðir að lýjast og verkur
hér og þar. Það er hins vegar töluvert í
að við náum stelpunum í að hugsa um
heilsuna því almennt hugsar kvenfólk
mun betur um heilsuna og fara þær
mun oftar til lækna en við strákarnir
sem virðumst alltaf vera í sömu
keppninni að vera sem óþekkastir.
Öryggismál varðar alla og ólíkar
eru aðferðir forvarnanna
Kennsluaðferðir eru svo misjafnar
erlendis að bara það eitt gæti verið
vert að rannsaka, en í amerískri
greinargerð sem ég las fyrir nokkru
var lögð áhersla á að láta börn á
aldrinum 6–10 ára fræða fullorðna
fólkið og yngri systkini sín, verulega
áhugaverð lesning sem náði til mín.
Farið var í skóla og kenndar ýmsar
forvarnir í þessum aldurshópi með
það í huga að þau beri boðskapinn
heim í foreldrahús og jafnvel til afa
og ömmu. Þetta átti upptök sín á þeim
árum sem öryggisbelti voru að koma
fyrst í bíla og börnum var kennt að ef
þau myndu ekki spenna öryggisbeltin
gætu þau dáið. Þessi boðskapur
komst til skila í bíltúr með pabba,
mömmu, afa eða ömmu. Foreldrarnir,
afi og amma létu undan og spenntu
beltið og fljótlega voru allir keyrandi
með öryggisbeltið. Annað dæmi um
góðan árangur var að kenna yngri
systkinunum hvað eigi að varast og
í þessari greinargerð var sérstaklega
nefndur góður árangur eldri systkina
í að kenna litla bróður eða systur að
aldrei má nálgast bíla eða dráttarvélar
nema að hlið og aldrei framan frá eða
aftan frá vegna þess að þau séu svo
lítil að erfitt sé að sjá þau.
Grátlega lítið fjármagn sett í
forvarnir á Íslandi
Samkvæmt samantektum ýmissa
stofnana erlendis er það talið að
hver króna sem sett er í forvarnir
sé arðvænlegasta fjárfesting sem
hægt er að fjárfesta í fyrir samfélög.
Niðurstaðan er að króna geti allt að 30
sinnum margfaldað sig í forvörnum,
en algengast sé að verðmatið sé 10-
til 20-földun á hverja krónu.
Eitthvert aðgengilegasta efni um
forvarnir og fjármagn til forvarna,
niðurstöður og niðurskurð til forvarna
er hægt að nálgast hjá frændum okkar
á Írlandi. Þar hefur verið góðæri
og slæm ár í slysum, en nú virðist
eins og að Írar séu búnir að sanna
ágæti forvarna með góðum árangri
síðustu tvö ár eftir niðursveiflu vegna
fjársveltis í fjögur ár þar á undan.
Hér á Íslandi finnst mér
almennt forvarnir vera ósýnilegar
nema þá einna helst fræðsla frá
Samgöngustofu sem beinist mest að
bílaumferð. Hins vegar er sá árangur
sem Slysavarnaskóli sjómanna hefur
náð, sem allir Íslendingar ættu að
vera stoltir af.
Sveitarfélög og menntamála-
ráðuneyti ættu að taka sig saman
og nýta skólana betur til að koma
forvarnarfræðslu heim með
börnunum úr hverjum skóla samanber
að láta börnin fá heimaverkefni sem
væri brunaæfing og rýming vegna
elds heima hjá sér.
- - - - - - - - - - - - - - - -
Grásleppa! Grásleppa!
Kaupum grásleppu
Hafið samband í síma
866-7970 fyrir frekari
upplýsingar.
Sverrir Björnsson ehf
Siglufirði
- - - - - - - - - - - - - - - - - -
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
BLÆR STARTARI SITJANDI SKJÖN HRÓPA NEÐAN VIÐ GRIND
BURST
SNÍKILL
SPIL
HVIÐA
PRJÓNA-
VARNINGUR
FARFA
ATHAFNA-
SAMUR
BLUND
SKJÓÐA
TVEIR EINS
ÁLIT
VAFI
OF LÍTIÐ
BERIST
TILFÓTLAMA
TALÍA
RÝJA
BRAG-
SMIÐS
SÁLDRA
GRÆTUR
FJÖRLEYSI
ÁMÆLA
KJÁNI KLÓRREIÐUR
HELMINGUÐ
HEILDAR-
EIGN
VÆTU
ÁTT
ÆÐA-
SLÁTTUR
MANNA
FAT
SKEL
SKORDÝR
FYRIR
HÖND
BLÓM
ILLÆRI
JAPLA
KRAFS
SJÚKDÓMSTAKUR
TUNGUMÁL
EGGJA
GLUFA
SVAKA
SÍLL
SÆLINDÝR
TÁLKN-
BLAÐ
VÖRU-
MERKI
MJAKA
HINDRUN
ÓSLITINN
TVEIR EINS
KRINGUMFORLAGA
VELLÍÐAN
TVÍHLJÓÐI
RÍKI
Í MIÐ-
AMERÍKU
VEGNA
SMÁBÁRA
FUGL
h
ö
fu
n
d
u
r
B
h
•
k
r
o
ss
g
a
tu
r
.g
a
tu
r
.n
et
102
ÁFORM KRAUMA MJÖG GOGG ÁLÍTA RASK VITLAUST
GHERGANGA Æ S A G A N G U R
EBERJAST T J A LESTAKVEÐJA F E R M A
FSKORDÝR L Ó H A F U R N
U Ð S Æ R NÆGILEGTHÁRLEYSI N Ó G
P ÓHEILINDI TVÍHLJÓÐI BETLFYRIRBOÐI S N A P TVEIR EINS RÉTTSTAKUR S A T T
SAMTÖKHLOTNAST
AAUGLJÓS
BUKKUR
GEIR-
VARTA
E F A S T SAMKVÆMI
SÝRA
SÍ-
VINNANDI E D I K SUÐA LEYFI TVEIRVEFENGJA
R A U P
KVEN-
HJÖRTUR
GJAMMA H I N D
JURT
Í RÖÐ A R F IGORT
L L HAGNAÐURHRISTA Á G Ó Ð I HLEMMURHÁLFNAÐUR H L E R ITVEIR EINS
U S S VAFISJÚKDÓM E F I
MÆLI-
EINING
EIGNIR M I L L Í ÞRÁ-STAGASTSUSS
H
FROST-
SKEMMD
DVÖL K A L NEITUN N E I
RÓMVERSK
TALA
BARDAGI I L ELDUR H
Æ S A S T NUDDAÞJÓFNAÐUR N I Ð A TEMJAFUGL A G AESPAST
N E K T A R GLUNDURSKÓLI G U T L Í RÖÐTVEIR EINS L MKLÆÐ-LEYSIS
S
N
T
A
A
ÖRÐU
M
A
TUNNUR
G
Á
N
M
A
U
R
R
GRAFA
ÓKYRR
J
Ó
A
R
R
Ó
Ð
R
A
MÁLHELTI
ÁTT
101
h
ö
fu
n
d
u
r
B
h
•
k
r
o
ss
g
a
tu
r
.g
a
tu
r
.n
et
Hvað ungur nemur, gamall temur, í forvörnum er þetta stundum öfugt
Drasl og sóðaskapur er mjög misjafnt túlkað af mörgum, en það sem sumum
finnst ryðgað drasl er jafnvel gersemi í augum annarra, samanber gömul
vinnutæki, bílar og gamlar rústir bæja og útihúsa svo eitthvað sé nefnt.