Bændablaðið - 14.02.2019, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 7
LÍF&STARF
Fyrir fám dægrum átti ég tal við Jóhannes bónda á Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Svona í leiðinni innti ég hann eftir
brúklegum kveðskap í blaðið. Ekkert
sagði hann til sem hann myndi, en sagði
að Ágúst Marinó Ágústsson, bóndi í
Sauðanesi, væri hjá sér við tamningar,
og sá ætti örugglega eitthvað, og rétti
Gústa símtækið. Gústi tók mér bærilega
vel, en sagðist sár og óánægður með hve
lítið birtist eftir sig í vísnaþættinum.
Ekkert myndi hann þó af sínum vísum,
en auðvitað mætti hrófa einhverju saman
í snatri. Þess sést staður hér eftir. Það er
hins vegar satt hjá Gústa bónda, að hér
hafa fáar stökur hans verið birtar sem
skýrist af því að flestar hans vísna eru svo
níðskældar og blautlegar að flest sómakært
fólk beygir af. Margar landfleygar vísur
hefur Gústi ort, enda fara þær flestar
betur í muna en í kvæðasöfnum. Vísur
Ágústar sem hér fara eftir, og ortar voru
strax eftir símafund okkar, eru með þeim
snyrtilegustu sem ég hef eftir hann séð,
enda ortar allar til mín:
Ei skyldi enda á blaði
andans hrip er lekur,
en Geirhjörtur hinn graði
getur verið frekur.
Ef skal ort með hraði,
ekkert vandað fagið,
þá Geirhjörturinn graði
gengur strax á lagið.
Þó að villur vaði,
vísur slakar detta,
Geirhjörturinn graði
gamnar sér við þetta.
Leirs í ljótu baði
leiðist orði snjöllu,
en Geirhjörturinn graði
gleypir þó við öllu.
Þegar þetta andans verk Ágústar hafði
skilað sér í símann, þá sendi ég honum
staðfestingu ásamt ríkulegum þakkarorðum.
Gústi veðraðist þá allur upp, og sendi ábót:
Árni G. á undan fer,
á eftir hinir teymast.
Skíturinn mun skila sér,
-en skáldin kynnu að gleymast.
Það styttist í Þorra, og Góa gengur í garð.
Ingólfur Ómar orti þessa vísu af því
tilefni:
Herðir kló og hnyklar brá,
hleður snjónum niður.
Þræsin Góa þeytir snjá,
þekur mó og skriður.
Símon Dalaskáld kvað svo um Einar á
Sauðá í formannavísum:
Þó að gráðug hrönnin há
hreki náðir beinar,
sækir fjáður sjóinn á
Sauðár ráður Einar.
Stýrir gnoð af brögnum best
brims um hroða völlinn,
engan voða óttast sést
eða boðaföllin.
Litlu fyrir andlát sitt orti Jósef Schram
þessar stökur:
Undarleg er ævin manns
angurbárum þvegin.
Skal nú vera langt til lands?
lending yrði ég feginn.
Veit ég muni leiðarljós
loga á heljarskeri.
Feginn inn á feigðarós
fleyti völtum kneri.
Er að lokum upp við sand
ýtir kyljan stranga,
vona ég mér á lífsins land
leyfist þó að ganga.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
912MÆLT AF
MUNNI FRAM
Ritstjórn LífsKrafts við útkomu bókarinnar Fokk – ég er með krabbamein! Myndir / Jón Þorgeir Kristjánsson
Fokk – ég er með krabbamein!
– Ný og endurbætt bók til að auðvelda sjúklingum og aðstandendum að takast á við erfitt ferli
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk
sem greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur, hélt útgáfuhóf á Kaffi Flóru í
gær, mánudaginn 4. febrúar, á Alþjóðlegum
degi gegn krabbameinum. Haldið var
upp á að búið er að endurútgefa bókina
LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd.
Fjölmargir kíktu í hófið og þar á meðal
frú Vigdís Finnbogadóttir, sem er verndari
Krabbameinsfélags Íslands, en Kraftur er
einmitt eitt af aðildarfélögum þess. Skiptir
bókin miklu máli og auðveldar fólki að fóta
sig í hvað gera þurfi þegar fólk greinist með
krabbamein.
„LífsKraftur hefur fengið þvílíka
andlitslyftingu,“ sagði
Hulda Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Krafts, í útgáfuteitinu.
Bókin á erindi til
allra
Hulda sagði í samtali
við Bændablaðið að
í bókinni megi finna
hagnýt ráð til allra, bæði
sjúklinga og aðstandenda,
og leiðbeiningar um hvert
skref. Þetta varði í raun
alla Íslendinga, því þriðji hver landsmaður
greinist einhvern tíma á lífsleiðinni með
krabbamein.
„Bókin kom fyrst út árið 2003 en þar
sem Kraftur er 20 ára í ár ákváðum við að
endurskrifa hana með það í huga að hún höfðaði
betur til ungs fólks, gera hana myndrænni og
láta hana svara auðveldlega spurningum sem
koma upp í huga fólks þegar það greinist
með krabbamein eða þegar ástvinur greinist.
Undirtitill bókarinnar hittir beint í mark þó
hann sé vissulega ögrandi líka en hann er Fokk
ég er með krabbamein!, sem er jú kannski
fyrsta hugsunin sem kemur upp þegar maður
fær svona fréttir,“ sagði Hulda enn fremur.
LífsKraftur inniheldur hagnýtar upplýsingar
fyrir einstaklinga sem greinst hafa með
krabbamein, aðstandendur þeirra og vini.
Tilgangur þessarar útgáfu er að safna saman
á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og
bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk
með krabbamein og aðstandendur. Allir sem
greinast með krabbamein á aldrinum 18–45
ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að
kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á
öllum spítölum landsins. Einnig er bókin inni
á vefsíðu Krafts, www.kraftur.org.
Heilbrigðisstofnanir og aðrir geta sett sig í
samband við Kraft til að fá bókina senda til sín.
Allar nánari upplýsingar veitir Hulda
Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, í
síma 866-9600 eða í tölvupósti hulda@kraftur.
org og hún hvetur fólk til að hafa samband ef
það vill fá bókina senda.
Enginn fastur opinber stuðningur
Hulda segir Kraft vera rekið á velvilja
fyrirtækja, stofnana og einstaklinga en fái
ekki föst opinber framlög. Þeir sem óska
þess er hins vegar gefinn kostur á að styrkja
félagið með mánaðarlegum greiðslum.
Varðandi útgáfu LífsKrafts-bókarinnar þá
fékkst um tveggja milljóna króna styrkur
frá velferðarráðuneytinu til þess verkefnis.
Njótum mikils velvilja
„Við njótum mikils velvilja og gætum
ekki haldið uppi okkar starfsemi án þess.
Armböndin hafa verið okkar helsta söluvara
til að styrkja starfsemina. Fólk hefur þá
verið að koma saman og perla armbönd
undir yfirskriftinni „Lífið er núna“. Það
er ánægjulegt hvað þetta hefur gengið
vel og hefur gert það að verkum að við
höfum getað bætt þjónustuna við okkar
félagsmenn.“
Margvíslegur stuðningur við sjúklinga
Hulda segir að félagsmenn Krafts séu um
750 talsins. Þeim sé veittur bæði andlegur og
fjárhagslegur stuðningur eftir því sem hægt
er. Þar sé til taks neyðarsjóður sem veiti
fólki stuðning til að takast á við fjárhagslega
erfiðleika sem geti komið upp þegar það
veikist. Þá sé félagsmönnum boðið upp
á sálfræðiþjónustu og þeir geti sótt um
styrk til lyfjakaupa sem Apótekarinn ber
kostnað af. – „Þannig getur fólk sótt lyf í
útibú Apótekarans sér að kostnaðarlausu,“
segir Hulda.
„Við erum líka að veita fólki
jafningjastuðning og erum með starfandi
stuðningshópa. Einnig erum við með
endurhæfingarhóp sem heitir Fítonskraftur
þar sem fólk getur komið saman og æft sig
eftir meðferð. Í haust vorum við svo að
byrja með markþjálfa sem gefur þjónustu
sína til okkar félagsmanna. Þá vorum við
líka að byrja með jóganámskeið fyrir okkar
félagsmenn og þannig er alltaf eitthvað á
döfinni,“ segir Hulda. /HKr.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélags Íslands, mætti í