Bændablaðið - 14.02.2019, Page 39

Bændablaðið - 14.02.2019, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 39 LESENDABÁS Brátt styttist í að Ísland verði ljóstengt að fullu. Ljósleiðara- væðingin er eitt mesta byggða- verkefni seinni ára í sam- starfi við sveitarfélögin og býr samfélagið enn betur undir þá upplýsinga tækniöld sem hefur hafið innreið sína. Verkefnið hefur verið farsælt en næstsíðasta úthlutun styrkja til sveitarfélaga á grundvelli landsátaksins Ísland ljóstengt er í undirbúningi. Með úthlutuninni verður stigið stórt skref að því lokatakmarki að gefa öllum lögheimilum og fyrirtækjum í dreifbýli kost á ljósleiðaratengingu sem er árangur á heimsmælikvarða. Aðdragandinn Ísland ljóstengt á sér oft nokkurn aðdraganda en gott fjarskiptanet er og hefur verið áherslumál Framsóknarflokksins. Segja má að kveikjan að alvöru umræðu og undirbúningi þessa mesta byggðaverkefnis seinni ára, sé grein sem ég skrifaði í mars 2013 og bar yfirskriftina ,,Ljós í fjós“. Þá var mér og öðrum þegar orðið ljóst að ljósleiðaratæknin væri framtíðarlausn fyrir landið allt og ekki síst fyrir dreifbýlið þar sem erfiðara eða jafnvel ógjörningur er að beita annarri þráðbundinni aðgangsnetstækni. Málið var sett á dagskrá í stjórnarsáttmálanum 2013 og landsátak sem ber heitið „Ísland ljóstengt“ var sett af stað til að ýta undir þann möguleika að fólk geti valið sér störf óháð staðsetningu. Fimm árum seinna var farið að hilla undir lok verkefnisins en ennþá vantaði töluvert upp á að strjálbýlar byggðir væru með gott fjarskiptasamband. „Ísland ljóstengt“ var því sett aftur inn í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og er eitt af brýnum verkefnum ríkisstjórnarinnar að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins til að byggja upp gott og samkeppnishæft samfélag. Síðasta úthlutun úr Fjarskiptasjóði vegna átaksins verður því árið 2020. Samfélagslegar breytingar Fram undan er tæknibylting sem breytir því hvernig við lifum og störfum. Störfin munu breytast og þau munu færast til. Tæknin tengir saman byggðir og Ísland við umheiminn. Ljósleiðarinn og verkefnið „Ísland ljóstengt“ er gott dæmi um framsækna stefnu okkar framsóknarmanna. Gott og skilvirkt fjarskiptasamband við umheiminn er lykillinn að því að taka þátt í þeim samfélagslegum breytingum sem eru að eiga sér stað. Áður réðst búsetan af því hvar viðkomandi fékk starf. Nú er hægt að sjá fram á að þessu verði öfugt farið og að fólk geti í auknum mæli valið sér búsetu óháð störfum. Þannig höfum við náð að skapa hvata til að ungt vel menntað fólk geti sest að á landsbyggðinni og jafnað aðgang landsmanna að atvinnu og menntun. Hvað var gert? Fyrir fjórum árum síðan höfðu einungis fáein fjársterk sveitarfélög þegar ljósleiðaravætt allt sitt dreifbýli án aðkomu ríkisins eða milligöngu fjarskiptafyrirtækja. Fyrsta úthlutun Fjarskiptasjóðs vorið 2016 grundvallaðist einfaldlega á að ríkið legði sveitarfélögum um allt land til fjármagn við eigin uppbyggingu ljósleiðarakerfa. Fjarskiptasjóður hefur nú í þrjú ár sett styrktum verkefnum sveitarfélaga einfaldar skorður og lagt til fjármuni á grundvelli samkeppnisfyrirkomulags. Það hefur þýtt að sveitarfélög með sterkari efnahag og eða ódýrari verkefni hafa mörg hver komist lengra í sínum framkvæmdum en ella. Með 400 m.kr. stuðningi úr byggðaáætlun hefur tekist að aðstoða þau sveitarfélög sem staðið hafa höllum fæti í því samhengi. Fyrirséð var þó að snúið yrði að ljúka þessu landsátaki á skynsamlegan hátt með óbreyttu fyrirkomulagi. Samvinnuleiðin til að klára Forsvarsmenn verkefnisins hafa séð við þessu og hyggjast nú bjóða svokallaða samvinnuleið og verður því ekki viðhöfð samkeppni um styrki líkt og áður. Samvinnuleiðin býr til fyrirsjáanleika um fjárveitingar bæði frá fjarskiptasjóði og úr byggðaáætlun þannig að áhugasöm sveitarfélög sem eiga eftir styrkhæf verkefni, geti hagað undirbúningi sínum og framkvæmdum á hnitmiðaðri og hagkvæmari hátt en ella. Samstaða Lykill að þessu öllu hefur verið einstök samstaða og samvinna allra hlutaðeigandi í þessari vegferð þar sem áræðni og kraftur heimamanna í sveitum landsins hefur gert gæfumun. Ég er stoltur yfir því að hafa opnað umræðuna um þetta viðfangsefni og geta nú stuðlað að verklokum þessa mikilvæga landsátaks sem er ,,Ísland ljóstengt“. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Ísland ljóstengt Sigurður Ingi Jóhannsson. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 28. febrúar ER ÞITT BÚ ÖRUGGUR OG GÓÐUR VINNUSTAÐUR? ER BRUNAHÆTTA Á ÞÍNUM BÆ? Á hverju ári verða því miður alvarlegir brunar á sveitabæjum. Bæði fólk og búfénaður er í mikilli hættu þegar eldur blossar upp. Með réttum viðbrögðum og undirbúningi má koma í veg fyrir tjón og slys af völdum bruna. PO RT h ön nu n Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is Umferðin á Hringvegi: Met slegið í janúar Umferð um Hringveg var mun meiri nú í nýliðnum janúarmánuði en í sama mánuði í fyrra. Umferð á þessari leið hefur aldrei verið meiri í janúar en nú. Aukning milli janúar 2019 og 2018 nemur 5,4%. Umferð nú í janúar fór vel yfir 60 þúsund bíla múrinn og mældist rúmlega 62 þúsund ökutæki á sólarhring samtals fyrir alla staðina. Þetta er nýtt janúarmet. Mest jókst umferðin um Vesturland, eða um 9,9%, en minnst um Austurland, eða um 2,8%. Hvað einstaka talningastaði varðar þá jókst umferðin mest á talningastað undir Hafnarfjalli, eða um 12,0%, en minnst varð aukningin um Hringveg á Mýrdalssandi, eða 0,3%. /MÞÞ Veðurspámaðurinn kominn í ullarsundskýlu Einhver góðviljaður Blöndu- ósingur hefur tekið sig til og klætt Veðurspámanninn, styttu eftir Ásmund Sveinsson sem stendur við Blönduóstorg, í ullarskýlu. Greinilegt er að í hinum mikla prjónabæ sem Blönduós er standa menn ekki lengur allsnaktir við þá iðju að gá til veðurs. Vera má að heitar umræður um ákvörðun yfirstjórnar Seðlabanka Íslands um að fjarlægja málverk sem sýndu berbrjósta konu hafi eitthvað haft með það að gera að spámaðurinn hefur nú klæðst prjónaðri skýlu með þekktu vörumerki. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.