Bændablaðið - 14.02.2019, Page 10

Bændablaðið - 14.02.2019, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201910 FRÉTTIR Logi Sigurðsson tók nýverið við bústjórn á Hesti, sem er tilrauna- og kennslubú Landbúnaðarháskóla Íslands í sauðfjárrækt í Andakíl í Borgarfirði. Hann er ættaður úr Reykjavík en fjölskylda hans fluttist í Borgarfjörðinn þegar hann var sex ára. Fyrst bjuggu þau að Hvítárbakka í Bæjarsveit, en fluttust síðan í Steinahlíð í Lundarreykjadal árið 2008 þar sem foreldrar hans byggðu sér hús. „Ég og kona mín, Lára Lárusdóttir, byggðum okkur síðan hús á jörðinni árið 2017 og búum við þar ásamt dóttur okkar. Í draumastarfinu Logi segir að starfið leggist vel í sig og hann er mjög spenntur að takast á við verkefnið. „Ég hef mjög mikinn áhuga á sauðfjárrækt og er þetta því draumastarf mitt. Ég tek við góðu búi af þeim Helga Elí og Snædísi sem ráku búið áður. Staðan var auglýst og ég sótti um, en alls bárust níu umsóknir um stöðuna. Gerð var krafa um búfræðipróf og voru allir sem það höfðu kallaðir í viðtöl. Mér lánaðist svo að vera valinn úr þeim hópi. Hestur er merkilegt sauðfjárbú. Þar hafa verið stundaðar afkvæma- rannsóknir síðan 1957. Gríðarlegu magni upplýsinga hefur því verið safnað í gegnum tíðina á þessu búi og eru þær upplýsingar gríðarlega verðmætar fyrir sauðfjárræktina og rannsóknir í tengslum við hana. Margir góðir hrútar hafa komið frá Hesti á sæðingarstöðvarnar, svo sem Raftur og Kveikur en þeir eiga enn þann dag í dag töluverða erfðahlutdeild í stofninum. Nemendur Landbúnaðarháskólans koma að Hesti í verklega kennslu svo sem í gegningar og umhirðu sauðfjár. Einnig eru stundaðar ýmsar rannsóknir að Hesti en það er mismunandi milli missera hve mikið er um slíkt,“ segir Logi en hann starfaði sem sumarstarfsmaður á Hesti á árunum 2010 til 2013. Stefnir að því að gera starfið sýnilegra Spurður um hvort hann sjái fyrir breytingar á búrekstrinum í nánustu framtíð segir Logi að hann sé enn þá að koma sér inn í starfið. „Þó er stefnt að því að efla búið enn frekar og gera starfið sem þar fer fram sýnilegra.“ Hestur er staðsettur í 5 mínútna fjarlægð frá Hvanneyri og er fjárfjöldi um 650 vetrarfóðraðar kindur. /smh Í desember síðastliðnum sögðum við hér í blaðinu frá lokaverkefni Evu Margrétar Jónudóttur, við auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands, um viðhorf íslenskra neytenda gagnvart hrossakjöti og kauphegðun þeirra á slíku kjöti. Þar kom fram að hrossakjöt virðist ekki vera nógu áberandi í verslunum og vegna tilfinningaraka virðast margir ekki vilja smakka slíkt kjöt. Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, segir að ákveðin vinna sé nú í gangi til að bæta stöðu hrossakjöts á mörkuðum. „Það hófst markaðsátak í Japan haustið 2016 þegar mjög illa gekk að afsetja hross og er átakið enn í gangi. Í upphafi var um valda vöðva að ræða sem fluttir voru ferskir til Japans en síðan hefur verkefnið undið upp á sig og má segja að nú séu nær allir hlutar hrossaskrokksins nýttir og mikill áhugi sé fyrir því að koma folaldakjöti einnig á Japansmarkað,“ segir Sveinn. Hollusta og gæði hrossakjöts Hann segir að félagið sé ekki með beinum hætti í markaðssetningu á hrossakjöti á Íslandi en alveg sé ljóst að mikið meira megi gera og betur í markaðsmálum og í framsetningu á hrossa- og folaldakjöti. „Það liggja fyrir upplýsingar sem staðfesta hollustu og gæði hrossakjöts en mér finnst vanta upp á vöruþróun og síðan stöðugt framboð. Við ætlum afurðastöðvum, kjötvinnslum og verslunum að gera betur, það eru klárlega heilmikil tækifæri hérlendis með hrossakjötið. Auðvitað vitum við að mörgum reynist erfitt að borða hrossakjöt vegna tenginga við hestinn sem vin og félaga en það breytir því ekki að hross þarf að fella ýmissa hluta vegna og það verður ekki gert með öðrum hætti en gegnum afsetningu og úrvinnslu,“ segir Sveinn. Nýting á frampartinum vandamál Sendar voru fyrirspurnir til Sláturfélags Suðurlands og Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skag- firðinga varðandi hlutfall hrossa og fjölda í heildarsláturfjölda og hvað verði um það kjöt sem kemur inn til þeirra. Í svari Benedikts Benediktssonar, framleiðslustjóra Sláturfélags Suðurlands, kemur fram að hlutfall hrossa hjá þeim sé um átta prósent og folalda um fjögur prósent í heildarsláturmagni (þyngd). „Hrossin eru um 320 tonn (2.061 gripir) og folöld (1.709 gripir) um 163 tonn. Hrossin fara í þurrpylsuframleiðslu, saltkjöt og bjúgu. Mikið er selt af lærvöðvum í kjötborð. Þá flytjum við í hverri viku ferskt hrossakjöt til Sviss, um 20 hross á viku. Nýtingin á frampartinum hefur verið vandamál, en hann er fluttur út í dýrafóður á mjög lágu verði. En með honum náum við einnig að selja mikið af „aukafurðum“; lifur, þindar, hálsæðar, fitu, bein, lungu og hjörtu,“ segir Benedikt. Vöðvar af folöldum á innlendan markað en vinnsluefni út Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, segir að á síðasta ári hafi hlutur hrossa verið rúm 101 tonn (572 gripir) og folalda rúm 52 tonn (646 gripir), samtals rúm 16,3 prósent í heildarsláturmagni (þyngd) Kjötafurðastöðvarinnar. „Við kaupum svo til viðbótar frá kjötvinnslum B. Jensen og Esju og sláturhúsinu á Hellu. Vöðvar af folöldum fara á innlendan markað, en vinnsluefni á erlendan markað.“ Vöruþróunarverkefni í Japan „Við erum í vöruþróunarverkefni með folaldakjöt til Japans, með framparta og síður í samstarfi við þarlenda kaupendur, Erlend Garðarsson og hrossabændur. Varðandi kjöt af fullorðnu, þá fara lundir, hryggvöðvar og innralæri á innlendan markað. Blandaðir vöðvar á Ítalíu. Fitusprengdir vöðvar og fleiri bitar, til dæmis úr síðu og innmat, fara á Japansmarkað. Það er vöruþróun í gangi sem lýtur að framleiðslu hráfóðurs fyrir hunda. Þá erum við að skoða kaup á pökkunarvél til pökkunar á skammtaskornum steikum,“ segir Ágúst. /smh Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda og Erlendur Á. Garðarsson, sem hefur unnið að markaðssetningu á hrossakjöti í Japan með íslenskum hrossabændum. Mynd / HKr. Ragnheiður Þórarinsdóttir, sem er nýr rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, skoðar fjárhúsin á Hesti með Loga á dögunum. Mynd / LbhÍ Logi Sigurðsson er nýr bústjóri á Hesti – Segist vera kominn í draumastarfið Uppbyggingarsjóður Austurlands: 60 milljónir í ríflega 60 verkefni Ríflega 60 milljónum króna hefur verið úthlutað úr Upp- byggingarsjóði Austurlands til verkefna sem efla atvinnuþróun og menningu í landshlutanum. Athöfnin fór fram fyrir nokkru í Valaskjálf á Egilsstöðum. Til úthlutunar að þessu sinni voru 60.316.000 kr. og veittur 61 styrkur: 30 til menningarmála upp á 27,9 milljónir og 25 styrkir til atvinnuþróunar upp á alls 24 milljónir. Að auki voru veittar 8,2 milljónir til stofn- og rekstrarstyrkja á sviði menningar. Alls bárust 116 umsóknir sem er svipaður fjöldi og á síðasta ári. Kallað eftir verkefnum sem tengdust mat Mikill fjölbreytileiki er í verkefnunum eins og áður. Í ár var sérstaklega kallað eftir verkefnum sem tengdust mataruppbyggingu og matarmenningu og hlutu 13 verkefni sem lúta að nýsköpun í matvælaframleiðslu styrki. Má þar nefna hæsta styrk til einstaklings sem ætlaður er til þróunar á vörum úr sauðamjólk, matarleikhús Óbyggðaseturs og matarupplifunarferðamennsku Adventura. Skaftfell, sjálfseignarstofnun fékk hæsta styrkinn, 3,2 milljónir króna, Sinfóníuhljómsveit Austurlands fékk 3 milljónir, Lunga, listahátíð unga fólksins, fékk einnig 3 milljónir. Uppbyggingarsjóður Austurlands hefur það hlutverk að styrkja menningar-, nýsköpunar- og atvinnuþróunarverkefni í samræmi við sóknaráætlun landshlutans. /MÞÞ Gera þarf mikið meira og betur í markaðssetningu á hrossakjöti á Íslandi: Upplýsingar liggja fyrir um hollustu og gæði kjötsins Styrkir úr Uppbyggingasjóði Austurlands voru afhentir við athöfn í Valaskjálf nýverið. Mynd / Austurbrú Bæjarstjórn Akureyrar: Möguleg jarðgöng undir Tröllaskaga Bæjarstjórn Akureyrar hefur skorað á stjórnvöld að tryggja í nýrri samgönguáætlun fjár- mögnun grunnrannsókna og samanburð á bestu kostum á legu mögulegra jarðganga undir Tröllaskaga, auk rannsóknar á samfélags- og efnahagslegum áhrifum sem leiða af nýjum Trölla skagagöngum. Tröllaskagagöng munu ótvírætt hafa mikinn ávinning í för með sér í formi styttingar vegalengda á milli allra stærstu þéttbýlisstaða á Norðurlandi, aukins öryggis vegfarenda þar sem ný leið sem sneiðir fram hjá hæstu fjallvegum yrði til, stækkunar vinnusóknarsvæða, styrkingar almennrar þjónustu og eflingar ferðaþjónustu auk bættrar samkeppnisstöðu landshlutans, segir í bókun með áskorun bæjarstjórnar. Slík jarðgöng myndu breyta það miklu á stóru svæði að örðugt er að sjá áhrifin fyrir án ítarlegrar og faglegrar athugunar. Bæjarstjórn Akureyrar leggur þunga áherslu á að nauðsynlegur undirbúningur og frumrannsóknir vegna nýrra Tröllaskagaganga hljóti fjármögnun innan nýrrar samgönguáætlunar. /MÞÞ Skagafjörður: Vilja reisa fjölskyldugarð Kiwanisklúbburinn Freyja í Skagafirði hefur óskað eftir samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð um að koma upp Freyju-fjölskyldugarði Skagafjarðar. Óskað er eftir samstarfi við að finna góða staðsetningu fyrir fjölskyldugarðinn fyrir sumarið 2019. Klúbburinn mun sjá um fjárfestingu í leiktækjum en viðhald svæðisins verði í höndum sveitarfélagsins. Markmiðið með því að reisa garð af þessu tagi er að hlúa að fjölskyldum, efla útiveru og hreyfingu og stuðla um leið að ánægjulegri samveru foreldra og barna. Bæjarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tók jákvætt í erindið. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.