Bændablaðið - 14.02.2019, Page 28

Bændablaðið - 14.02.2019, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201928 Skaftárhreppur varð til árið 1990 við sameiningu fimm hreppa; Hörgslands-, Kirkjubæjar-, Leiðvalla-, Skaftártungu- og Álftavershrepps. Hann er austurhluti Vestur-Skaftafellssýslu og afmarkast af Blautukvísl á Mýrdalssandi í vestri og Sandgígjukvísl á Skeiðarársandi í austri. Hreppurinn dregur nafn sitt af ánni Skaftá, sem á aðalupptök sín undir Skaftárjökli í vestanverðum Vatnajökli og rennur til sjávar í Veiðiósi og Kúðaósi, en lengd árinnar frá upptökum til ósa er um 115 km. Aðalatvinnuvegir svæðisins eru landbúnaður og ferðaþjónusta, en fiskeldi skipar einnig stóran sess. Eini þéttbýliskjarninn í sveitarfélaginu er Kirkjubæjarklaustur, eða „Klaustur“ eins og staðurinn er gjarnan nefndur í daglegu tali. Á Klaustri er stunduð verslun, margvísleg þjónusta og iðnaður. Sandra Brá Jóhannsdóttir er sveitarstjóri Skaftárhrepps. Það var gott hljóðið í henni þegar slegið var á þráðinn til hennar og hún fengin til að fara yfir helstu málefni sveitarfélagsins. Þorrablótsandinn svífur yfir vötnum „Það er allt gott að frétta úr Skaftárhreppi. Við erum full bjartsýni og jákvæðni svo árið fer vel af stað. Þorrablótsandinn svífur yfir vötnum þessa dagana með tilheyrandi glensi og gríni,“ sagði Sandra þegar hún var spurð hvað væri að frétta. Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað mikið síðustu ár en núna um 590 talsins og hefur fjölgað um ríflega 20% síðustu ár. „Ástæðan er fyrst og fremst náttúrufegurðin, kyrrðin og einstakt samfélag, hér líður fólki vel og vill eiga heima,“ segir Sandra. Ferðaþjónustan skapar mörg störf Ferðaþjónusta er áberandi í Skaftárhreppi enda margir fallegir staðir í sveitarfélaginu og margir í ferðaþjónustu. Sandra segir ferðaþjónustuna mjög mikilvæga. „Já, ferðaþjónustan er önnur af tveimur undirstöðuatvinnugreinum sveitarfélagsins og hefur því mikið vogarafl þegar kemur að öllum sveiflum. Mikill fjöldi ferðamanna á leið um sveitarfélagið okkar þar sem þjóðvegur 1 liggur í gegnum mitt svæðið. Ferðaþjónustan hefur því skapað mörg tækifæri og heilsársstörf undanfarin ár. Við finnum ekki fyrir neinni fækkun ferðamanna. Yfir vetrartímann er fólk mikið að koma til að skoða Eldhraunið og Fjaðrárgljúfur en yfir sumartímann bætist svo hálendið við.“ Vegirnir í skötulíki Íbúar í Skaftárhreppi og ferðamenn sem eiga þar leið um komast ekki hjá því að aka um lélega vegi, það þekkir Sandra. „Já, viðhald vega í sveitarfélaginu öllu er mjög ábótavant. Mikið vantar upp á að vegkantar á þjóðveginum séu í lagi og enn eru nokkrar einbreiðar brýr á leiðinni. Þetta þyrfti að laga ásamt því að huga þyrfti betur að mokstri og hálkuvörnum að vetri til.“ 100% fjölgun í leikskólanum Samhliða mikilli íbúafjölgun í Skaftárhreppi hefur börnum á leikskólanum á Kirkjubæjarklaustri fjölgað mikið enda nýbúið að byggja við skólann. „Það er rétt, börnum á leikskólanum hefur fjölgað í takt við stækkunina sem var tekin í notkun í nóvember á síðasta ári. Fjöldi barna er orðinn 25 sem er mjög ánægjulegt en það er um 100% fjölgun frá 2013. Í grunnskólanum á Klaustri eru 43 börn á aldrinum LÍF&STARF Íbúum Skaftárhrepps hefur fjölgað um 20% á síðustu tveimur árum – Mikið byggt á Kirkjubæjarklaustri og 100% fjölgun í leikskólanum Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, á skrifstofunni sinni á Kirkjubæjarklaustri. Hún segir uppáhaldsmáltækið sitt þessa dagana vera „Dropinn holar steininn“. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson Margar nýjar íbúðir hafa verið byggðar á Kirkjubæjarklaustri á síðustu árum, hér er eitt af nýju parhúsunum á staðnum. Börnum á leikskólanum Kærabæ á Klaustri fjölgar og fjölgar samhliða íbúafjölguninni í sveitarfélaginu. Hér er verið í söngstund. Skaftárhreppur er sveitarfélag sem að Mýrdalshreppi undanskildum. Flatarmál sveitarfélagsins er 6.946 km². Kirkjubæjarklaustur stendur markverða staði eins og Systrafoss, Systrastapa og Stjórnarfoss. Börnum í leikskólanum á Kirkjubæjarklaustri hefur fjölgað um 100% frá árinu 2013

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.