Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 33 Bændagleði var haldin að Breiðumýri í Reykjadal fyrir nokkru en þar voru veitt verðlaun í nautgripa- og sauðfjárrækt auk hvatningarverðlauna Búnaðar- sambands Suður-Þingeyjar sýslu og viðurkenningar innar Þingeyski bóndinn. Í nautgriparæktinni hefur myndast sú hefð að veita verðlaun fyrir bestu kýrnar í hverjum árgangi. Að þessu sinni voru þau veitt fyrir kýr sem fæddar eru árið 2014. Til grundvallar verðlaununum eru að kýrnar séu lifandi í árslok 2018, fyrir liggi að minnsta kosti 6 efnamælinganiðurstöður á heilu mjaltaskeiði. Kýrnar mega ekki hafa verið eldri en 3 ára við burð og burðartilfærsla sé ekki óeðlilega mikil. Fyrstu verðlaun í nautgripa- ræktinni hlutu Sveinbjörn Þór Sigurðsson og Hulda Kristjánsdóttir á Búvöllum fyrir kúna Töru 789 með 296,6 heildarstig, faðir hennar er Tari 12006. Annað sætið hlutu Geir Árdal og Margrét í Dæli fyrir kúna Eyju 497 með 290,6 heildarstig, faðir hennar er Bakkus 12001. Í þriðja sæti voru Kolbeinn Kjartansson og Tora Katinka Bergeng, Hraunkoti fyrir kúna Kampölu 481 en hún var með 288,2 heildarstig, faðir hennar er Peli 12008. Heiðurshornið Tvenn verðlaun voru veitt í sauðfjárrækt, Heiðurshornið og Hvatningarverðlaun BSSÞ í sauðfjárrækt. H e i ð u r s h o r n i ð sem veitt er í minningu Eysteins Sigurðssonar frá Arnarvatni, var veitt í 13. sinn. Samkvæmt gildandi úthlutunarreglum komu 29 bú t i l endanlegs útreiknings en megináhersla er lögð á lömb til nytja og vöðvaflokkun en hlutfall vöðva og fituflokkunar vegur fimmtung. Fyrsta sætið og Heiðurshornið hreppti að þessu sinni annað árið í röð Benedikt Arnbjörnsson á Bergsstöðum en hann hlaut 18,94 stig. Í öðru sæti voru Sveinbjörn Þór Sigurðsson og Hulda Kristjánsdóttir, Búvöllum með 18.73 stig og í þriðja sæti voru Egill Freysteinsson og Dagbjört Bjarnadóttir, Vagnbrekku með 18.70 stig. Hvatningarverðlaun Hvatningarverðlaun BSSÞ í sauðfjárrækt voru veitt í ellefta sinn. Til útreiknings koma öll bú sem hafa 50 ær eða meira. Gerðarmat, hlutfall vöðva og fitu ásamt fjölda lamba til nytja leggja grunninn að útreikningi einkunnar. Búið sem fær lægsta tölugildið ber sigur úr býtum. Að þessu sinni hlutu þau Flosi og Unnur á Hrafnsstöðum hvatningarverðlaunin með 10 stig. Sigurður Atlason á Ingjaldsstöðum var í öðru sæti með 12.8 stig og í því þriðja Benedikt Arnbjörnsson á Bergsstöðum með 13.3 stig. Þingeyski bóndinn Viðurkenningin Þingeyski bóndinn er nú veitt í fimmta sinn. Við val hans hafa þrjú eftirfarandi stef verið höfð að leiðarljósi: Hógværð, snyrtimennska og sátt við umhverfið, í víðustu skilgreiningu þeirra orða. Að þessu sinni hlutu viðurkenninguna Sigurlaug Svavarsdóttir og Erlingur Teitsson á Brún sem hafa um áratuga skeið rekið afurðamikinn myndarbúskap. Brún er fallegt býli og þangað er til fyrirmyndar heim að horfa. Þau hjónin hafa auk þess verið virkir þátttakendur í félagsmálum í samfélaginu. Hvatningarverðlaun á Kvíaból Hvatningarverðlaun Búnaðar- sambands Suður-Þingeyinga eru veitt þeim aðila/aðilum sem á einn eða annan hátt vekja eftirtekt fyrir framtak sitt í tengslum við landbúnað í héraði. Að þessu sinni hlutu viðurkenninguna ábúendur á Kvíabóli en þeir hafa sýnt með verkum sínum – áræðni og dugnað, þar er sannarlega rekinn búskapur af miklum áhuga og myndarbrag öðrum til fyrirmyndar. Vefurinn 641. is segir frá samkomunni. /MÞÞ 100% PALLBÍLL. 100% KRAFTUR. V6 3.0L TDI www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Volkswagen Amarok. Glæsilegur pallbíll með 3.0 lítra, 258 Hann er með fullkomnu 4Motion Búnaður Amarok er einstaklega ríkulegur en Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og pallbíls. VW Amarok Highline Plus V6 3.0 TDI AT Vetrarwerð 8.650.000án vsk. 6.975.000 Aukabúnaður að verðmæti 460.000 kr fylgir:• Leður/Alcantara sætisáklæði • • Dráttarkrókur Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta LÍF&STARF Verðlaun og viðurkenningar á Bændagleði BSSÞ Guðrún Tryggvadóttir, formaður BSSÞ, Benedikt, Flosi og Unnur. Mynd / Ragnar Þorsteinsson Erlingur og Sigurlaug á Brún ásamt Guðrúnu Tryggvadóttur. Mynd / Ragnar Þorsteinsson Hlöðver og Guðrún frá BSSÞ með þá Kvíabólsfeðga, Hauk og Martein, á milli sín. Mynd / Viðar Hákonarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.