Bændablaðið - 14.02.2019, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 33
Bændagleði var haldin að
Breiðumýri í Reykjadal fyrir
nokkru en þar voru veitt verðlaun
í nautgripa- og sauðfjárrækt auk
hvatningarverðlauna Búnaðar-
sambands Suður-Þingeyjar sýslu
og viðurkenningar innar Þingeyski
bóndinn.
Í nautgriparæktinni hefur
myndast sú hefð að veita verðlaun
fyrir bestu kýrnar í hverjum árgangi.
Að þessu sinni voru þau veitt fyrir
kýr sem fæddar eru árið 2014.
Til grundvallar verðlaununum
eru að kýrnar séu lifandi í árslok
2018, fyrir liggi að minnsta kosti
6 efnamælinganiðurstöður á heilu
mjaltaskeiði. Kýrnar mega ekki
hafa verið eldri en 3 ára við burð
og burðartilfærsla sé ekki óeðlilega
mikil.
Fyrstu verðlaun í nautgripa-
ræktinni hlutu Sveinbjörn Þór
Sigurðsson og Hulda Kristjánsdóttir
á Búvöllum fyrir kúna Töru 789 með
296,6 heildarstig, faðir hennar er Tari
12006. Annað sætið hlutu Geir Árdal
og Margrét í Dæli fyrir kúna Eyju
497 með 290,6 heildarstig, faðir
hennar er Bakkus 12001. Í þriðja
sæti voru Kolbeinn Kjartansson og
Tora Katinka Bergeng, Hraunkoti
fyrir kúna Kampölu 481 en hún var
með 288,2 heildarstig, faðir hennar
er Peli 12008.
Heiðurshornið
Tvenn verðlaun voru
veitt í sauðfjárrækt,
Heiðurshornið og
Hvatningarverðlaun
BSSÞ í sauðfjárrækt.
H e i ð u r s h o r n i ð
sem veitt er í
minningu Eysteins
Sigurðssonar frá
Arnarvatni, var
veitt í 13. sinn.
Samkvæmt gildandi
úthlutunarreglum
komu 29 bú
t i l endanlegs
útreiknings en
megináhersla er
lögð á lömb til nytja
og vöðvaflokkun en
hlutfall vöðva og
fituflokkunar vegur
fimmtung.
Fyrsta sætið og Heiðurshornið
hreppti að þessu sinni annað árið
í röð Benedikt Arnbjörnsson á
Bergsstöðum en hann hlaut 18,94
stig. Í öðru sæti voru Sveinbjörn Þór
Sigurðsson og Hulda Kristjánsdóttir,
Búvöllum með 18.73 stig og í þriðja
sæti voru Egill Freysteinsson og
Dagbjört Bjarnadóttir, Vagnbrekku
með 18.70 stig.
Hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaun BSSÞ í
sauðfjárrækt voru veitt í ellefta sinn.
Til útreiknings koma öll bú sem
hafa 50 ær eða meira. Gerðarmat,
hlutfall vöðva og fitu ásamt fjölda
lamba til nytja leggja grunninn að
útreikningi einkunnar. Búið sem
fær lægsta tölugildið ber sigur úr
býtum. Að þessu sinni hlutu þau
Flosi og Unnur á Hrafnsstöðum
hvatningarverðlaunin með 10 stig.
Sigurður Atlason á Ingjaldsstöðum
var í öðru sæti með 12.8 stig og í
því þriðja Benedikt Arnbjörnsson á
Bergsstöðum með 13.3 stig.
Þingeyski bóndinn
Viðurkenningin Þingeyski bóndinn
er nú veitt í fimmta sinn. Við
val hans hafa þrjú eftirfarandi
stef verið höfð að leiðarljósi:
Hógværð, snyrtimennska og sátt við
umhverfið, í víðustu skilgreiningu
þeirra orða. Að þessu sinni hlutu
viðurkenninguna Sigurlaug
Svavarsdóttir og Erlingur Teitsson á
Brún sem hafa um áratuga skeið rekið
afurðamikinn myndarbúskap.
Brún er fallegt býli og þangað
er til fyrirmyndar heim að
horfa. Þau hjónin hafa auk
þess verið virkir þátttakendur
í félagsmálum í samfélaginu.
Hvatningarverðlaun á
Kvíaból
Hvatningarverðlaun Búnaðar-
sambands Suður-Þingeyinga
eru veitt þeim aðila/aðilum
sem á einn eða annan hátt
vekja eftirtekt fyrir framtak
sitt í tengslum við landbúnað
í héraði. Að þessu sinni hlutu
viðurkenninguna ábúendur
á Kvíabóli en þeir hafa sýnt
með verkum sínum – áræðni
og dugnað, þar er sannarlega
rekinn búskapur af miklum
áhuga og myndarbrag öðrum
til fyrirmyndar. Vefurinn 641.
is segir frá samkomunni. /MÞÞ
100% PALLBÍLL. 100% KRAFTUR.
V6 3.0L TDI
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Volkswagen Amarok.
Glæsilegur pallbíll með 3.0 lítra, 258
Hann er með fullkomnu 4Motion
Búnaður Amarok er einstaklega
ríkulegur en Amarok sameinar kosti
lúxusjeppa og pallbíls.
VW Amarok Highline Plus V6 3.0 TDI AT
Vetrarwerð 8.650.000án vsk. 6.975.000
Aukabúnaður að verðmæti 460.000 kr fylgir:• Leður/Alcantara sætisáklæði
•
• Dráttarkrókur
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
LÍF&STARF
Verðlaun og viðurkenningar
á Bændagleði BSSÞ
Guðrún Tryggvadóttir, formaður BSSÞ, Benedikt, Flosi og Unnur.
Mynd / Ragnar Þorsteinsson
Erlingur og Sigurlaug á Brún ásamt Guðrúnu Tryggvadóttur.
Mynd / Ragnar Þorsteinsson
Hlöðver og Guðrún frá BSSÞ með þá Kvíabólsfeðga, Hauk
og Martein, á milli sín. Mynd / Viðar Hákonarson