Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201912
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps
hefur sent stjórn Íslandspósts
áskorun þess efnis að opna hið
allra fyrsta pósthús með föstum
afgreiðslutíma í Vík. Ekkert
pósthús hefur verið starfandi í
þorpinu frá 2015.
„Í dag er hér póstdreifing sem er
ekki með auglýstan afgreiðslutíma
og þess vegna verða íbúar hreppsins
að sæta lagi að hitta á starfsmenn
Íslandspósts, sem gjarnan eru að
keyra út sendingar. Mjög mikil
aukning hefur orðið í sendingum
til og frá staðnum og algjörlega
ótækt að íbúar þurfi að koma oft
á dag til að athuga hvort einhver
er í húsnæði Íslandspósts ef þeir
þurfa á þjónustu að halda. Það er
rétt að halda því til haga að árið
2015 voru íbúar í hreppnum 480
en í dag eru þeir um 700,“ segir
Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps. ./MHH
FRÉTTIR
Sveitarstjórn Skagastrandar
hefur markað sér stefnu í
úrgangsmálum og mun hún beita
sér fyrir aukinni fræðslu um
úrgangsmál og leggja áherslu á
aukna flokkun og bætta meðferð
úrgangs. Markmiðið er að nýta
öll aðföng með eins sjálfbærum
hætti og kostur er.
Til að ná fram þeim markmiðum
sem sett eru þurfa einstaklingar,
heimili, fyrirtæki og opinberir
aðilar að standa saman að
breyttum aðferðum og leiðum
við meðhöndlun úrgangs. Nýja
stefnan í úrgangsmálum hefur verið
samþykkt í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn styður þá
meginstefnu sem mótuð hefur verið
síðustu árin, að líta beri á allt efni
sem auðlindir sem nauðsynlegt sé
að nýta sem best. Í samræmi við
það hefur verið litið á úrgangsmál
sem málaflokk sem væri að þróast
frá því að snúast um lausnir á
úrgangsvanda yfir í umræðu um
bætta auðlindanýtingu í anda
hringrásarhagkerfisins. /MÞÞ
Núverandi útbreiðsla ávaxtaflugutegundarinnar Bactrocera dorsalis.
Skaðvaldar í landbúnaði:
Ágengum og skaðlegum tegundum
flugna fjölgar í Evrópu
Ávaxtaflugur sem upprunnar eru
í Asíu og sagðar vera ágengustu
tegundir ávaxtaflugna í heiminum
greindust í fyrsta sinn lifandi
í Evrópu á síðasta ári. Lifandi
flugur voru greindar á ræktarlandi
á tveimur stöðum á Ítalíu.
Þrátt fyrir að ekki hafi greinst
nema átta lifandi eintök af
tegundinni, sem gengur undir
heitinu Bactrocera dorsalis á latínu,
er talið áhyggjuefni og hætta sögð
á að flugurnar geti fjölgað sér hratt.
Viðkoma flugnanna er hröð og allt
að tíu kynslóðir á ári við góð skilyrði
og getunnar til að lifa við fjölbreytt
umhverfisskilyrði.
Alvarlegur skaðvaldur
Dauðar flugur af tegundinni finnast
iðulega í ávaxtasendingum frá Asíu.
Flugurnar eru upprunnar og algengar
í Asíu og í Afríku þar sem þær hafa
dreift hratt úr sér. Þær hafa einnig
fundist í ávaxtarækt í suðurríkjum
Bandaríkjanna.
Á hverju ári veldur lirfa
tegundarinnar miklum skaða
í ávaxta- og matjurtarækt og í
sumum tilvellum eyðileggur hún
100% uppskerunnar sé ekki gripið
til skordýraeiturs og efnavarna til
að halda henni í skefjum. Flugurnar
leggjast meðal annars á banana,
mangó og avakadó auk þess sem
lirfur þeirra hafa fundist í innfluttum
tómötum, eplum og perum til
Evrópu.
Taldar hafa borist með ávöxtum
Ekki er vitað með vissu hvernig
flugurnar sem greindust lifandi á
Ítalíu bárust út á akrana en talið er
að lirfur þeirra hafi borist til landsins
með ávöxtum og eins og lirfum er
tamt umbreyst í fullvaxnar flugur
og flogið á akurinn þar sem þær
veiddust í flugnagildru. /VH
Góð mæting var á stofnfund um rekstur verslunar í Árneshreppi og ríkti bjartsýni á fundinum. Mynd / Skúli Gautason
Árneshreppur á Ströndum:
Félag stofnað um verslunarrekstur
Stofnfundur félags um verslun í
Árneshreppi var haldinn í byrjun
febrúar. Verslun lagðist af í
hreppnum haustið 2018 og hafa
íbúar hreppsins þurft að panta
vörur og fá þær sendar með flugi,
þar sem ekki er mokað að jafnaði
í Árneshreppi frá áramótum til
20. mars.
Það er því afar áríðandi að koma
á verslun fyrir þá íbúa sem hafa
vetursetu í Árneshreppi.
Fjöldi fólks lýsti yfir stuðningi
við verkefnið og áhuga á því að
eignast hlutafé í versluninni. Um
4.000.000 kr. söfnuðust í hlutafé og
eru hluthafar tæplega 70. Sett var
100.000 kr. hámark á hlutafjárkaup
til að tryggja dreifða eignaraðild.
Stofnfundurinn var haldinn í
húsnæði verslunarinnar í Norðurfirði.
Það var góð mæting og ríkti bjartsýni
á fundinum, segir í frétt á vefsíðu
Byggðastofnunar. Félagið fékk
nafnið Verzlunarfjelag Árneshrepps
og er stefnt að því að opna með
takmarkaðan afgreiðslutíma strax á
vormánuðum og síðan með fullum
afgreiðslutíma í sumarbyrjun.
/MÞÞ
Íbúar í Vík í Mýrdal:
Vilja alvöru pósthús með
föstum afgreiðslutíma
Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps, sem leggur mikla
áherslu á, eins og sveitarstjórnin öll,
að Íslandspóstur opni sem allra fyrst
pósthús með föstum afgreiðslutíma
í Vík. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
„Sveitarstjórn Mýrdalshrepps skorar á stjórn Íslandspósts að opna hið allra fyrsta
pósthús með föstum opnunartíma í Vík.
Íbúum Mýrdalshrepps hefur fjölgað mjög ört síðustu ár. Fjölgunin var
hlutfallslega sú mesta á landinu á síðasta ári og ef fram heldur sem horfir verður
slegið met í fjölda íbúa í sveitarfélaginu á næstu árum. Mjög hátt hlutfall íbúa sem
hér búa eru af erlendu bergi brotnir og sá hópur reiðir sig mjög á pakkasendingar
erlendis frá. Eins verður að horfa til þess að netverslun eykst mjög hratt. Það er
því óásættanlegt að ekki sé fastur afgreiðslutími og að íbúar þurfi að sæta lagi
til að póstleggja eða sækja sendingar.“
Áskorun til stjórnar Íslandspósts
Skagaströnd:
Stefna mörkuð í
úrgangsmálum
Frá Skagaströnd. Mynd / Hörður Kristjánsson