Bændablaðið - 14.02.2019, Side 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 17
www.lbhi.is/namskeid • endurmenntun@lbhi.is • 433 5000
Á námskeiðinu læra nemendur að
setja saman koll og bekk úr því sem
til fellur við grisjun skóga.
!
"!
#
Námskeið um pottaplöntur, ræktun,
umhirðu og umhverfiskröfur.
$
%
&
'(&
!
)$
*&+
$##
Bóklegt og verklegt námskeið þar
sem nemendur kynnast helstu
vélum og verkfærum sem notuð
eru til trjá- og runnaklippinga.
$
%
&
'(&
!
)$
,
- Námskeiðið er ætlað þeim sem bæði
vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntu-
verndarvörur vegna notkunar í land-
búnaði og garðyrkju og notkun
efna við eyðingu meindýra.
.
&
!
'(& -!
/-
+
0
(
Bóklegt námskeið sem veitir réttindi
til að taka verklegt vinnuvélapróf
á m.a. dráttarvélar í réttindaflokki "I"
og lyfturum í flokki "J"
%1
!
2
$
%1
&
- " (&
+
( $
+
0
- 3
Tenging byggingarreglugerðar við
garðyrkju þegar kemur að skipulagi
og framkvæmdum á lóðum.
$
%4
&
!
'(& -!
*$
+
- (&
Allt um það hvernig skal umbreyta
mismunandi viðarbútum í nytjahluti.
%%
&
'(&
!
)$
56#
Nemendur teikna einfaldar lóða-
teikningar í SketchUp forritinu.
%7
!
'(& -!
Útbreiðsla og magn makríls á Íslandsmiðum hefur aukist verulega.
Makríll hrygnir
við Ísland
Hafrannsóknastofnun, í samvinnu
við Háskóla Íslands, hefur á
undanförnum árum unnið
að rannsóknum á útbreiðslu
hrygningar makríls og uppruna
makrílseiða á íslensku hafsvæði.
Rannsóknin sýnir í fyrsta skipti
fram á að makríll klekst út, vex
og dafnar á íslensku hafsvæði þó
vissulega sé aðeins um lítið brot af
heildarhrygningu makríls að ræða.
Samkvæmt skýrslunni, Recent
occurrence and origin of juvenile
Atlantic mackerel (Scomber
scombrus L.) in Icelandic waters,
hefur makríll á undanförnum
árum gengið bæði norðar og
vestar en áður. Samfara því hefur
útbreiðsla og magn makríls á
Íslandsmiðum aukist verulega og
er það talið tengjast hlýnun sjávar
og þéttleikaháðum áhrifum samfara
stækkun stofnsins. Beinar veiðar á
makríl hófust hér við land árið 2007.
Makríllinn byrjar að hrygna
í febrúar við strendur Spánar og
Portúgals og síðan flyst hrygningin
smám saman norður með Evrópu
fram á vor með hækkandi hitastigi.
Hrygningin nær venjulega hámarki
í apríl eða maí úti fyrir vesturströnd
Írlands og suðvesturströnd
Englands, en á sama tíma er
töluverð en dreifðari hrygning allt
frá Biscayaflóa og norður fyrir
Færeyjar. Á nyrstu svæðunum hefst
hrygningin seinna og stendur fram
í júlí. Frá árinu 2004 hefur orðið
vart við makrílungviði við Suður- og
Vesturströnd Íslands.
Í rannsókninni var stuðst við
niðurstöður úr fjölþjóðlegum
rannsóknarleiðöngrum á vegum
Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES)
á hrygningu makríls í Norðaustur-
Atlantshafi árin 2010 og 2013.
Hafstraumar við suðurströnd
landsins voru kortlagðir með
aðstoð hafstraumalíkansins CODE
sem þróað hefur verið við Háskóla
Íslands. Makrílseiði af Íslandsmiðum
voru aldursgreind og líkt var eftir
reki ungviðis frá veiðisvæði að
klak- og hrygningarsvæði með því
að reikna út rek með straumum
aftur á bak í tíma. Þannig var,
ásamt fyrirliggjandi upplýsingum
um hrygningu makríls við
Ísland, leiddar líkur að því hvar
makrílungviðið klaktist út. /VH