Bændablaðið - 14.02.2019, Síða 32

Bændablaðið - 14.02.2019, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201932 Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA VÍKURVAGNAR EHF. RAFMAGNSBÚNAÐUR BREMSUR BEISLI DEKK LJÓS LED LJÓS Til Monstera-ættkvíslarinnar teljast á milli 40 og 50 tegundir sem allar eiga heimkynni sín í hitabelti Ameríku. Tegundirnar eru meira og minna sígrænar plöntur sem klifra gjarnan upp eftir stofnum annarra plantna. Til klifursins nota þær loftrætur sem smjúga inn í ójöfnur og sprungur trjábola og greina sem klifrað er eftir og ná sér þar í stuðning, vatn, birtu og næringu. Ef þær komast í snertingu við jörð taka þær að starfa eins og venjulegar rætur. Loftræturnar geta orðið býsna langar og fyrirferðarmiklar og eru í sumum löndum nýttar t.d til körfu- og kaðlagerðar. Gómsæta skrímslið Sú tegund sem algengust er í ræktun úr þessum plöntuhópi er Monstera deliciosa, rifblaðka. Rifblaðkan er einkar glæsileg planta sem skartar stórum fagurgrænum blöðum með miklum skerðingum, eða rifum, og þaðan er íslenska heitið komið. Hún getur jafnvel náð 2-3 metra hæð í heimahúsum og nýtur sín langbest ef hún fær ríflegt pláss. Nafnið Monstera er sennilega komið frá latneska orðinu monstrum sem þýðir skrímsli. Deliciosa þýðir gómsætt (delicious) og vísar til ávaxtar plöntunnar sem fullþroskaður er ætur og sagður einkar gómsætur. Plantan blómstrar þó sjaldan í heimahúsum og aðrir hlutar hennar innihalda safa sem getur valdið ertingu ef hann berst á húð. Götóttu laufblöðin Rifblöðkur skarta þó ekki einkennismerki sínu, rifnu blöðunum, alla ævi. Ungar plöntur hafa heil blöð, en rifnu blöðin myndast þegar plantan eldist. Rifurnar í blöðunum eru taldar gegna þeim tilgangi í heimkynnum hennar að hleypa regnvatni í gegnum blöðin svo þau sligist ekki undan þunga vatnsins. Þar sem hvert laufblað getur orðið allt að 100 cm á lengd og 70 cm á breidd er ekki vanþörf á slíkri ráðstöfun. Umönnun Rifblaðka er frekar auðveld í umhirðu. Hún vill ekki vera í beinni sól, en þarf bjartan stað til þess að dafna sem best. Vel fer á því að leyfa henni að leggja undir sig eitthvert hornið í stofunni, á móts við glugga. Hún kýs næringarríka mold, helst vikurblandaða, og jafnan raka. Það er þó í lagi yfir vetrarmánuðina að leyfa moldinni að þorna nokkuð á milli vökvana. Mun meiri hætta er á að gera plöntunni skaða með of mikilli vökvun en of lítilli. Daufa áburðarblöndu er gott að gefa í uþb. þriðju hverri vökvun yfir sumarið og rétt er að umpotta einu sinni á ári og þá að vori. Venjulegur stofuhiti hentar plöntunni mjög vel. Þar sem rifblaðkan á uppruna sinn í töluvert rakara loftslagi en við bjóðum upp á á heimilum okkar er ágætt að úða annað slagið vatni yfir plöntuna, sérstaklega yfir sumarið. Loftrætur rifblöðkunnar geta orðið ansi fyrirferðarmiklar en þær eru plöntunni nauðsynlegar og ekki ætti að klippa þær burtu. Mikið af loftrótum bendir raunar til þess að plöntunni líði vel. Þar sem plantan er í eðli sínu klifurplanta er best að setja mosastöng eða bambusprik með henni í pottinn og binda plöntuna upp. Þannig fæst þéttara og fallegra vaxtarlag. Gleðitárin Nokkuð algengt er að vatnsdropar drjúpi af blöðum rifblöðkunnar. Þetta er af völdum rótarþrýstings og á sér ekki stað nema aðbúnaður plöntunnar sé góður. Tárin eru því góðs viti, þau benda til þess að plöntunni líði vel og því gjarnan haldið á lofti að plantan gráti af vellíðan eða gleði. Fleiri Monstera tegundir Þrátt fyrir að Monstera deliciosa, rifblaðkan, sé algengasta tegund ættkvíslarinnar og sú sem lengst hefur prýtt íslensk heimili er úrvalið í verslunum sífellt að aukast og smávaxnari tegundir aðgengilegri en áður. Þar má til dæmis nefna Monstera obliqua og Monstera adansonii. Íbúar smærri fasteigna geta því einnig tekið þátt í regnskógarstemningunni án þess að afsala sér öllu stofuplássi. Elínborg Erla Ásgeirsdóttir nemi í garðyrkjuframleiðslu hjá Garðyrkjuskóla LbhÍ Reykjum. GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM Monstera – rifblaðka: Skrímslið sem grætur af gleði Hratt flýgur stund Á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda í mars 2017 tók ég við sem formaður samtakanna. Þar á undan var ég varaformaður og formaður Fagráðs í sauðfjárrækt auk þess að sitja sem fulltrúi á Búnaðarþingi. Ég hef nú ákveðið að gefa ekki kost á mér áfram til formennsku í Landssamtökum sauðfjárbænda. Formannssetan hefur verið krefjandi og skemmtileg. Starfið hefur verið erfitt á köflum enda staða greinarinnar á tímanum grafalvarleg. Við höfum tekist á við fordæmalaust verðhrun á afurðum okkar, þar sem öryggisnet voru nánast engin til staðar. Það er fáránleg og óþolandi staða að framleiða hágæða vöru í krafti einstakra aðstæðna sem frumframleiðendur sjálfir fá algjört hrakvirði fyrir. Í ofanálag orsakast lélegt verð af ytri áhrifum sem bændur höfðu enga möguleika á að afstýra. Horft til baka var þó þungbærast til þess að vita að staðan varðaði velferð fólks í einhverjum tilfellum og jafnvel afdrif heilu samfélaganna. Á sama tíma vorum við einnig að eiga við gjörbreytt og krefjandi umhverfi í fjármögnun samtakanna. Umgjörð um markaðsstarfið hefur verið í hraðri mótun. Þá hafa samningaviðræður við ríkið krafist orku og tíma en eru nú farsællega að baki. Einhverjum kann að þykja það heldur stutt ending að sitja á formannsstóli í tvö ár. Ég bið þá sömu að hafa hugfast að formannsdrauminn bar ég aldrei í maganum þótt ég hafi fyrir tveimur árum ákveðið að taka þessari áskorun. Þrátt fyrir að kunna ágætlega við embættið þá stendur hugurinn til annarra verkefna á þessum tímapunkti. Ég fer sátt frá borði. Á þeim tíma sem ég sat sem almennur stjórnarmaður lét ég mig landnýtingarmál talsvert varða. Ég hef á þeim tíma talað fyrir því að koma á vöktunarkerfi á gróðri. Árið 2017 náðist samkomulag við stjórnvöld um mat og vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum Íslands. Verkefnið er að stórum hluta fjármagnað af rammasamningi búvörusamninga. Ef fram heldur sem horfir mun verkefnið byggja upp mikilvæga fagþekkingu á þróun jarðvegs og gróðurfars ásamt áhrifum beitar á úthaga. Sú fagþekking mun styrkja okkur í öllum ákvörðunum um sjálfbæra landnýtingu. Forysta bænda í þessu efni er forsenda sáttar um nýtingu á landi til beitar. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta verkefni verða að veruleika hjá Landgræðslunni undir faglegri stjórn Bryndísar Marteinsdóttur. Endurskoðun sauðfjársamnings og þörf á hagræðingu innan afurðageirans Endurskoðun samnings um starfsumhverfi sauðfjárræktarinnar er lokið. Ég tel að þær breytingar sem þar eru lagðar til vera til bóta fyrir greinina og niðurstöðuna mjög ásættanlega miðað við aðstæður. Í samkomulaginu koma inn verkfæri og ferlar til að takast á við sveiflur á mörkuðum. Sagan segir okkur að við eigum áfram eftir að takast á við sveiflur í framboði, eftirspurn og verði. Þá er mikilvægt að geta brugðist fljótt við. Áfram verður að huga að hagræðingaraðgerðum innan afurðageirans. Um það eru samningsaðilar sammála líkt og kemur fram í bókun samkomulagsins. Það er gríðarlega mikilvægt til að styðja við og tryggja til framtíðar afurðaverðið, okkar mikilvægustu tekjustoð. Það er dregið úr framleiðsluhvata s tuðningsgre iðs lna v ið framgang samningsins, þar sem hægt verður á niðurtröppun beingreiðslna. Samhliða því verður stofnsettur markaður fyrir greiðslumark. Markmið okkar með stofnsetningu markaðsins er að jafna stöðu framleiðenda innan greinarinnar og halda niðri verði á greiðslumarkinu. Að mínu mati er markaðurinn mikilvægur til að tryggja meiri sanngirni og sátt um kerfið. Breyting á niðurtröppun greiðslumarks, til ársins 2022, er sett fram í samræmi við ályktun aðalfundar LS en eftir það er lögð til niðurtröppun sem ég tel að eigi að sætta sjónarmið mismunandi hópa sauðfjárbænda. Það er ekkert launungarmál að staða bænda innan kerfisins er misjöfn. Ég tel breytingu endurskoðunarinnar við framgang samningsins vera millilendingu sem að flestir ættu að geta sæst á. Sátt innan greinarinnar er mikilvæg og til að skapa hana verða aðilar af báðum endum að gefa eitthvað eftir. Það er rétt að taka fram að ég hef aldrei staðið ein, stjórn og framkvæmdastjóri hafa unnið saman sem einn maður og hvert eitt einasta þeirra verið frábærir liðsmenn. Þá hafa samtökin notið styrk og liðsinnis Bændasamtakanna, sem skiptir miklu máli. Ég hef sinnt þessu embætti af alefli enda frá fyrsta degi ljóst að það þyrfti til, en hvort það var nóg á líklega tíminn eftir að leiða í ljós. Mig langar að þakka sauðfjárbændum viðkynninguna, samtölin og símtölin sem hafa verið ófá og mörg hver afskaplega uppbyggileg. Einnig þeim fjölmörgu öðrum sem ég hef haft samskipti við vegna starfsins. Samstarfsfólki og samstjórnarfólki mínu í gegnum tíðina þakka ég kærlega samstarfið og góð kynni. Oddný Steina Valsdóttir Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda Oddný Steina Valsdóttir. Butra í Fljótshlíð. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.