Bændablaðið - 14.02.2019, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 41
Um er að ræða frábærar fjölnotavélar með
1200 kg lyftigetu og möguleika á ýmsum
aukahlutum.
Á MultiOne 6.3 SD situr stjórnandi í aftari
hluta þessara lipru og sveigjanlegu véla.
Vélarnar afhendast með skóflu, 184 kg
aukaballest að aftan og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is og kynntu
þér þína möguleika.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Eigum á lager
MultiOne 6.3 SD
liðléttinga
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Vinnuskilyrði undir LED-ljósum
Hefðbundin viðbótarlýsing er
mjög orkufrek og kostnaðarsöm.
Þess vegna hefur verið leitað eftir
ljósum sem nýta orkuna betur og
hafa LED ljós verið einn kostur.
Það er aukinn kostnaður í upphafi
þar sem lamparnir eru dýrari en
þeir endast lengur án viðhalds
heldur en ljósin sem hafa verið
notuð hingað til.
Í tilraunahúsi Landbúnaðar-
háskólans á Reykjum var gerð
tilraun á ræktun jarðarberja með
LED ljósum á dimmasta tíma ársins
og verður fjallað um þann þátt sem
snýr að vinnu undir þeim.
Litamismunur
Rauða birtan sem ljósin gefa frá
sér er mjög afgerandi. Það virkar
sem litaðir fletir verði dekkri
(blöð) og hvítir (hvít beð, hitarör,
vökvunarslangir) eða ljósari fletir
(ber) endurkasti rauða litnum (mynd
1). Það gerir það að verkum að erfitt
er að greina á milli hvort berin séu
hálf rauð eða full lituð og þá hvort
þau séu fullþroskuð.
Við vinnu með LED ljós þarf
að kaupa sérhæfð gleraugu sem
draga úr áhrifum rauða ljóssins
(mynd 2). Það tekur 15–20 mín.
fyrir augun að venjast ljósinu með
þessum gleraugum. Ef lítil eða
engin náttúruleg lýsing er utandyra
þá er allt dekkra en það er í raun.
Því er erfitt að vinna við plönturnar
á dimmasta tíma ársins þar sem
litamunurinn sést ekki. Vegna þess
að það lítur út fyrir að allt sé dekkra
er líka erfitt að vinna við plönturnar
sjálfar: t.d. draga fram klasana, þar
sem þarf að horfa á milli blaða til að
ná þeim fram og meta hvort blóm er
frjóvgað. Þegar kemur til uppskeru,
er einnig erfitt að sjá og meta hvort
berin séu orðin þroskuð (mynd 3),
skemmd, súr eða sprungin. Það er
því mikilvægt að skoða vel berin sem
fara í öskjurnar þar sem erfitt er að
greina ástand þeirra á meðan verið er
að tína þau í klefa sem er LED lýstur.
Því gæti verið nauðsynlegt að flokka
úr öskju eftir á ómarkaðshæf ber.
Af þessum orsökum má því álykta
að ber sem ræktuð eru með LED
lýsingu krefjast mun meiri tíma og
athygli en í hefðbundinni lýsingu.
Hins vegar minka áhrifin frá
LED ljósunum á sjónina eftir
því sem náttúruleg birta eykst og
litamismunurinn verður skýrari
(bera mynd 4 saman við mynd 3).
Því gætu ræktendur á suðlægum
slóðum upplifað áhrif LED ljósa
minna en ræktendur á Íslandi þar
sem áhrif ljóssins eru meira og
minna alltaf eins og á mynd 4. Ef
LED ljós er notað í bland við aðra
lýsingu minnka auðvitað áhrif LED
ljóssins á sjónina.
Ef unnið er án sérhæfðra
gleraugna í klefanum með LED
ljósunum þá virkar birtan fyrir
utan klefa sem grænn litur. Það
tekur nokkrar mínútur fyrir augun
að venjast og hætta að sjá ljósið
sem grænt þegar maður fer út fyrir
klefann. Það getur komið móða á
gleraugun meðan unnið er.
Mismunur á vexti
Undir LED ljósum eru klasarnir
og blöðin styttri í samanburði við
ræktun undir HPS ljósum. Því er
ekki hægt að draga klasana fram
eins snemma á ræktunartímabilinu
eins og við HPS lýsingu.
Meindýr og sjúkdómar
Mjög erfitt er að sjá hvort meindýr
og sjúkdómar séu á plöntunum og
það er erfitt að koma auga á mygluð
ber.
Christina Stadler,
Börkur Halldór Bl Hrafnkelsson.
Mynd 3: Jarðarber undir LED ljósi án gleraugna (vinstri) og með gleraugum (hægri). Mynd er tekin um kl. 8.30.
Mynd 4: Jarðarber undir LED ljósi án gleraugna (vinstri) og með (hægri) LED sérhæfðum gleraugum. Mynd er tekin
um kl. 12.30.
Mynd 1: Jarðarberjaplöntur með LED lýsingu. Mynd er tekin um kl. 8.30. Mynd 2: Jarðarberjaplöntur undir LED ljósi með LED sérhæfðum gleraugum.
Mynd er tekin um kl. 8.30.