Bændablaðið - 14.02.2019, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201946
Í byrjun árs var ég spurður að því
hvort ég gæti ekki reynt að prófa
aðeins fleiri umhverfisvæna bíla
og skrifa um í ljósi umræðunnar
um að minnka mengun. Með
þetta að leiðarljósi fór ég á Hest-
hálsinn þar sem seldir eru Jaguar
og Land Rover.
Ég fékk að prófa nýjasta útspilið
frá Range Rover sem er bíll með
rafmagnsmótor og bensínmótor sem
er hagkvæmur í rekstri ef ekki er
að jafnaði ekið meira en 30–50 km
flesta daga.
Sennilega versti dagur ársins til
að prófa rafmagnsbíl
Þegar ég fékk bílinn laugardaginn
2. febrúar var hann ekki alveg
fullhlaðinn á rafhlöðunni þar sem
hann hafði verið í prufuakstri
skömmu áður. Þennan dag var
frostið í Reykjavík á bilinu -10°C og
niður í -14° og í svo miklum kulda
endast rafhlöður ekki vel. Þegar ég
setti bílinn í gang átti ég að komast
rúma 30 km á rafhlöðunni, en eftir
að hafa ekið upp að Hafravatni og til
baka og heim til mín, sem er nálægt
20 km, voru aðeins 2 km eftir á
rafhlöðunni. Þennan sama dag
lenti rafmagnsstrætó í Reykjavík í
vandræðum þar sem kuldinn stytti
drægni hans óeðlilega mikið.
Á þessum fyrstu kílómetrum á
rafhlöðunni mældi ég hávaðann inni
í bílnum á meðan ég var að keyra
á rafmagnsmótornum og þrátt fyrir
mikinn kulda og marr í snjónum
mældist hávaðinn ekki nema 65,9
db. Seinna í prufuakstrinum, þegar
allt rafmagn var búið, mældi ég
aftur og reyndist hávaðinn vera í
meðaltalsmælingu á einni mínútu
68,9db. með bensínvélina í gangi
á 90 km hraða.
Skemmtilega þýður og kraftmikill
Á malbikuðum vegi hreinlega
finnst manni maður svífa áfram
og loftpúðafjöðrunin er að gefa
skemmtilega fjöðrun á ójöfnum eins
og hvörf í vegi og hraðahindrunum.
Litlum holum og klakahröngl eins
og er víða á frostdögum líkt og hefur
verið undanfarna daga á götunum er
maður að finna of mikið fyrir því 21
tommu hjólbarðarnir á bílnum eru
nánast ekki að gefa neina fjöðrun.
Ekki er í boði að minnka felgurnar í
þessum bíl nema niður í 20 tommur
vegna þess að bremsudiskar og
dælur eru óvenju stórar og öflugar
í þessum bíl.
Krafturinn í vélinni er mjög
mikill og samkvæmt bæklingi er
bíllinn ekki nema 6,8 sek. að ná
100 km hraða. Til marks um það
að þegar tekið er fram úr bíl sem
er á um 70 km hraða og vélin
nýtt að hámarki, tvöfaldar bíllinn
hraðann á hefðbundinni lengd sem
framúrakstur tekur. Það segir manni
það eitt að maður þarf að passa upp
á að fara ekki á sviptingarhraða við
framúrakstur.
Hefði þurft að hafa mér
færari tölvusnilling með í
prufuakstrinum
Allt mælaborðið er ein stór tölva
og nánast öllu stjórnað á snertiskjá,
þetta var frekar vandræðalegt hjá
mér þar sem ég er einstaklega mikill
klaufi á tölvur og snertiskjái. Þrátt
fyrir þetta vandamál mitt tel ég
mig hafa sloppið skammlaust frá
þessu tölvuundri, en það sem ég
sá og fann í þessari tölvu virtist
endalaust og örugglega missti
ég af miklum fróðleik sökum
lélegrar tölvukunnáttu. Hins vegar
leið mér alltaf vel við aksturinn,
bíllinn fljótur að hitna, hiti í stýri,
sætum. Það sem mér fannst einna
best við bílinn er að með því að
ýta á einn takka á fjarstýringunni á
lyklum bílsins fór miðstöð í gang
sem bræddi af öllum rúðum snjó
og hrím.
Ýmsir kostir umfram aðra bíla
Í bílnum eru framsætin einhver
þau albestu sem ég hef setið í,
loftpúðafjöðrun er eitthvað sem
hentar vel íslenskum vegum og er
hægt að hækka og lækka þennan
bíl töluvert mikið (það má keyra á
venjulegum hraða á bílnum í öllum
hæðarstillingum, en margir halda
að það megi ekki), og sem dæmi
þá er ég ekki hávaxinn og eftir
að ég uppgötvaði að gott væri að
setja bílinn í lægstu stellingu þegar
honum var lagt var bæði betra að
fara út úr bílnum og inn í bílinn
þegar farið var á bílnum næst. Í
flestum rafmagnsbílum er varað við
því að aka yfir ár og öðru vatnasulli,
en í Range Rover Sport PHEV má
aka yfir ár og vera í vatnasulli í
vatnshæð að 90 cm dýpt.
Ekki alveg gallalaus
Þrátt fyrir mikið af alls konar
búnaði til að gera bílinn þægilegan
var ég afar ósáttur þegar ég varð
þess áskynja að ég hefði verið að
keyra bílinn án afturljósa. Það er
ekki nóg að aka með ljósatakkann á
auto, því ef úti er bjart þá eru engin
afturljós á bílnum sem er ólöglegt
og viðurlög við því er 20.000 króna
sekt. Ef kveikt er á ljósunum til
þess að fá afturljósin á þá verður
að muna að slökkva þau því þau
gera það ekki sjálfkrafa.
Bíllinn er án varadekks, en það
eru nánast allir tvinnbílar líka, en
persónulega finnst mér það mikill
ókostur og óöryggistilfinning að aka
um á varadekkslausum bíl. Ég hef
áður sett á prent að varadekkslausa
bíla ætti að banna og að bílar væru
þannig útbúnir að ekki sé hægt að
aka af stað fyrr en að bíllinn sé með
löglegan ljósabúnað (ath. þetta er
mín persónulega skoðun).
Verð og tækniupplýsingar
Range Rover PHEV P400e er
uppgefinn fyrir að vera að eyða
3,6 lítrum á hundraðið við bestu
aðstæður og að hægt sé að keyra
allt að 51 km á rafmagninu áður
en bensínvélin tekur við, en við
íslenskar vetraraðstæður tel ég gott
að ná 25 km á rafmagninu og gæti
ég trúað að eyðslan sé nær 6 lítrum
á hundraðið.
Verðið á Range Rover PHEV
er frá rúmum 13.000.000 og upp
undir 20.000.000, fer algjörlega
eftir stærð vélar, innréttingu og
útbúnaði, en bíllinn sem ég prófaði
var sá ódýrasti, en samt með vél
sem er yfir 400 hestöfl.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 1.803 mm
Hæð 1.803 mm
Breidd 2.220 mm
Helstu mál og upplýsingar
Range Rover PHEV. Myndir / HLJ
Á þessum bíl þarf að muna að kveikja ljósin svo að afturljósin séu á við akstur.
langt á rafhlöðunni í -12 stiga frosti.
Akreinalesaranum gekk ekki vel að lesa daufa miðlínuna á veginum. Tölvan býður upp á nánast endalausar upplýsingar, en mér gekk ekki vel
rafmagninu.
ég viljað sjá varadekk í bílnum en
ekki bara rafmagnspumpu og
þéttivökva.