Bændablaðið - 14.02.2019, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 47
Á hverju ári látast yfir 2,5
milljónir manns í umferðarslysum
um heim allan og af þeim fjölda
eru um 800.000 börn undir 12
ára aldri. Út frá þessum tölum
vinna bílaframleiðendur og reyna
með öllum ráðum og tilheyrandi
kostnaði að hanna bílana sína eins
örugga og hægt er.
Staðreyndin er sú að í flestum
umferðarslysum er það ökumaðurinn
sem er orsök slyssins. Mörg af
þessum slysum hefði verið auðvelt
að forðast með smá vinnu og
heilbrigðri skynsemi. Síðastliðin
10 ár hafa látist í íslenskri umferð
að meðaltali 12,3 árlega og síðustu
3 ár töluvert yfir meðaltali.
Þegar bíllinn er skafinn á
morgnana þarf að skafa og
hreinsa allt af bílnum
Þegar tölur um umferð eru skoðaðar,
ástand vega og merkingar má
sennilega fullyrða að við séum
heppin að umferðin og ástand vega
taki ekki fleiri líf. Mest er áberandi
forvarnir yfir sumartímann, en
sárlega vantar meiri fræðslu um
vetrarakstur og þá staðreynd að
sólin er lágt á lofti og blindar margan
ökumanninn. Fræðsla eins og um
það hversu áríðandi sé að allar
rúður séu hreinar er vanmetin. Það
að á köldum morgnum séu bílar í
umferðinni með nánast óskafaðar
rúður er gjörsamlega óafsakanlegt.
Fyrir nokkrum dögum
gerði nokkurra gráðu hita í
Reykjavíkurumferðinni og varð
ég vitni að því að tveir bílar hlið
við hlið stoppuðu á rauðu ljósi á
Miklubrautinni og nærri fet á þykkt
snjórinn af þaki beggja bílanna rann
fram og byrgði þeim algjörlega sýn.
Þetta tafði umferðina í smá tíma,
en þeir sem þetta sáu gleyma þessu
seint og skafa örugglega snjóinn af
þaki bíla sinna fyrir næstu hláku.
Sólin lágt á þessum tíma árs
Á þessum tíma árs á góðviðrisdögum
þegar sólin skín getur verið erfitt
að vera í umferðinni. Sólin getur
verið versti óvinur þeirra sem eru
með skítugar rúður og rispaðar og
því er það ágætis ávani að vera
með þurran klút til að strjúka fínt
ryk af rúðum á morgnana áður en
farið er út í umferðina og einnig að
passa vel upp á að þurrkublöðin séu
í lagi og nægur vökvi á rúðupissinu.
Sjálfur legg ég mikið upp úr því sem
atvinnubílstjóri að vera alltaf með
hliðarrúður og spegla nýbónaða því
að ég gæti aldrei fyrirgefið sjálfum
mér ef ég mundi lenda í slysi vegna
skítugra spegla og hliðarrúðna.
Afturljósin verða að vera kveikt,
annað er stórhættulegt
Þegar ferðast er á milli landshluta
á þessum tíma árs er ekki óalgengt
að ekið sé yfir fjallvegi þar sem er
mikill lágskafrenningur og snjófjúk.
Á þessum leiðum er hreinlega
lífsnauðsynlegt við þannig aðstæður
að allir bílar séu með afturljósin
kveikt og helst skæra þokuljósið
líka.
Ef einhver ekur fram á aftur-
ljósalausa bíla þá endilega að
blikka þá aftanfrá í þeirri von um
að stjórnandinn átti sig á því að hann
sé ljóslaus að aftan og ekki bara á
fjallvegum. Heldur alltaf ef ekið er
fram á afturljósalausan bíl ætt alltaf
að blikka hann með háuljósunum í
þeirri von að ökumaðurinn átti sig á
ljósleysinu og hættunni sem hann er
að skapa sér og öðrum í umferðinni.
Margir gera sér ekki
greinfyrir hættunni sem stafar af
ljósleysi að aftan
Að vera ljóslaus að aftan á litlum
bíl í lágskafrenningi er einfaldlega
stórhættulegt ef að hár vöru- eða
flutningabíll sem er með ökumanninn
fyrir ofan skafrenninginn og hann sér
vel niður á stikurnar er sá ökumaður
nokkuð viss um stöðu sína á veginum
og keyrir oft of hratt miðað við
aðstæður, en skyndilega verður hann
var við hvíta þúst á veginum sem
ekur mun hægar. Þá er hans eina
lausn til að forða slysi að keyra út
af veginum vitandi það að það gæti
kostað hann upp undir eina milljón
að ná bílnum upp úr skaflinum á
veginn aftur.
Fyrir rúmri viku fór ég norður í
land og á leiðinni yfir Öxnadalsheiði
varð ég var við að um 70 til 100
metra fyrir framan mig var bíll,
samt sá ég aldrei nein afturljós, en
stundum sá ég í rauðan toppinn á
bílnum. Niður allan Öxnadalinn tók
ég eftir að bílarnir sem á móti þessum
bíl óku voru að blikka ljósunum á
þennan bíl og það var ekki fyrr en
við áttum um 20 km eftir á Akureyri
að ég sá fyrst ljós aftan á þessum bíl.
Hins vegar sá ég nokkrum sinnum í
afturljósin á hvíta bílnum sem var
um 100 metra fyrir framan þennan
rauða bíl á þessari leið.
KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is
Nú er frost á Fróni....
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
MESSÍAS SKOLLANS TRÉ HRESS BLANDAR INN-HVERFUR MJÖG
SÓGÖNGUR J Á L F H E L D A
PKÚLU E R L U SLEITÁ FLÍK R A U F
ÍKÆLA S A R E N G L A
Ú N T U R EYRIRÚTLIMUR A U R
V ÁGÆTT GÆTATVEIR EINS P A S S A BRAKSPIL M A R R STJAKA
TVEIR
EINSGORM
R
VANALEG
LEIÐ
FÁLMA
KRÆKLA
SKRÁ
A F S A L KVIK-MYNDA-HÚS NOKKRIRÁKÆRA F Á I R AFSPURN BÚ-PENINGUR ÝAF-HENDING
T Í S T ELDSNÆR ÖLL B Á L S
ALDIN-
LÖGUR
ÞESSI M U S TDÝRA-HLJÓÐ
N N ÞÍÐAÖRLÁTUR A F Í S A
RÆSKJA
SIG
KIRTILL H U M M AÓNEFNDUR
S T Ó FUGLKAPÍTULI L Ó A
LJÓS
SKJÓL-
LAUS B I R T A ÞÁTT-TAKANDIHLÓÐIR
B
ATVIKAST
HERÐA-
KLÚTUR S K E ÖGN K O R N
FÓSTRA
VELGJA A L A
A S P A S SPENDÝRFUGL A P I FLÖTURFITA H L I ÐSPERGILL
K J A F T A STEFNAUTAN I S M I KRINGUM Í RÖÐ IBLAÐRA
K
I
A
L
R
ELJU-
SAMUR
L
I
GYÐJA
Ð
R
I
Á
N
N
N
DUGLEGUR
UMGERÐ
Ö
R
T
A
U
M
L
M
L
I
MANNS-
NAFN
RÓMVERSK
TALA
99
KÁL HEIMTING GRIND VAFI LYKTAR VERSLA ÚT
ÓGREINI-
LEIKI
KONUNGUR
FLJÓTRÆÐI
LÓ
FÆÐA
STÆLA
KAPÍTULI
SNÆDDI GLUNDUR
ÁN
REIÐI-
HLJÓÐ
RUSL
SAMTÖK
BOGIKLAUFA-LEGUR
AFHENTIRU
SKÖNNUN
BORÐA
ÞRÓTTUR
UNG-
DÓMUR
NÓTERA
RÁNDÝR HARLA SJÚK-DÓMUR
SYSTUR-
MAÐUR
FLAT-
ORMUR
ÞAKBRÚN
ÍÞRÓTTA-
FÉLAG
SÆGUR
MARÐAR-
DÝR
ÓNÁÐA
TUNNUR
BIT
GLÆSI-
LEIKI
SKORDÝR
HRUMUR
RÆÐA
MYNT
AUGN-
SJÚK-
DÓMUR
MATJURT
VÖRU-
MERKI
MÁLMUR
RISTIR
HAGGA
SARG
KÖTTUR
STAMPUR
DÁ
GJALD-
MIÐILL MEIÐSLIÓREGLA
STEFNA
Á FÆTI
LEYFIST
TVEIR EINS
FISKUR
HEILL
STEIN-
TEGUND SKJÁLFA
EINING
ANGAN
UM-
HVERFIS
100
Umferðin og hætturnar sem henni fylgja
Bíllinn í Öxnadalnum er þarna 70–100 metra fyrir framan.
Komnir til Akureyrar, en ég sá oftar hvíta sendibílinn í Öxnadalnum en þann
rauða sem kveikti ekki ljósin fyrr en stuttu fyrir myndatökuna.