Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 8

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 8
Spillir fyrir miðiu, með Spillisveg og skollagötu. og óhagstæðari mynd sem aðeins tveim dögum síðar kom upp, og skal nú í stórum dráttum greint frá því brunaútkalli. Mánudaginn 5. janúar 1976 kl. 05.23 hringir síminn á náttborði mínu. I símanum var Pétur Þórðarson á Stað, Staðardal í Súgandafirði. Pétur tjáði mér að mikill eldur væri laus í gamla prestssetrinu, en þar býr faðir hans, Þórð- ur Ágúst Ólafsson, ásamt sér eldri manni, Þor- valdi Sveihbjörnssyni, en Pétur og bróðir hans, sem báðir sækja skóla í öðrum landshluta, voru hér í jólaleyfi heima hjá föður sínum á Stað. Eg fékk strax þær upplýsingar að allir sem voru í húsinu hefðu sloppið út, en þá var eldurinn orðinn það magnaður að útilokað var að komast í síma, sem staðsattur var í borð- stofu á neðri hæð hússins. Skammt frá gamla hænum, sem nú var að brenna, stendur nýtt prestssetur, eða því sem næst, byggt í kringum 1950, hús þetta hefur nú í nokkur ár staðið mannlaust, en þarna komust þeir feðgar í síma og ég kvað slökkviliðið koma svo fljótt sem færð leyfði. Meðan þetta stutta símtal átti sér stað, sá 16 ára dóttir mín um brunaútkallið, liðsmenn mættu fljótt og vel, en veður var þá aust-norð- austan, all hvass, skafrenningur og dálítið frost. Það var strax ljóst að ekki yrði ekið á bruna- bifreið, án tafa á brunastað. Frá Suðureyri að Stað er um 5 km leið að fara, og mikill hluti hennar undir snarbröttum hamrabeltum, og sá hluti vegarins var nú ófær vegna snjóa. Því urðum við að varast vegaskemmdir sem þarna höfðu orðið vegna sjávargangs í óveðri sem hér gekk yfir í desember s.l. Ekki hafði tekist að lagfæra veginn, nema að litlu leiti, vegna snjóa og frosta, vegurinn gat því ekki talist fær nema jeppum og dráttarvélum. Vegur þessi nefnist í daglegu tali Spillisvegur, hann dregur nafn sitt af samnefndu fjalli, sem aðskilur Stað- ardal frá Suðureyri. Þetta 'hefur frá upphafi byggðar í Súgandafirði verið erfiður farartálmi, bæði bændum í Staðardal og íbúum á Suður- eyri, en mikið var það til bóta, þegar farið var að moka veginn með jarðýtu veturinn 1959, samt sem áður, þá er þetta hættuleg og hrika- leg leið, þó er ekki vitað um manntjón a'f völd- um grjóthruns, skriðufalla eða snjóflóða, enda segir í Biskupasögum að hinn ágæti maður, Guðmundur góði, hafi farið þarna um, og þá blessað fjallið og ókomna vegfarendur. Ákveðið var að senda snjóbil á undan, með dælu, slöngur og annan nauðsynlegan útbúnað, ef takast mætti að vinna með því dýrmætan tíma. Þó var þetta allnokkur áhætta, því jafn- an er það svo, ef Spillisvegur er á annað borð ófær vegna snjóa, þá er hann ófær öllum far- artækjum, líka snjóbílum, vegna mikils hliðar- halla, en hvað um það, á eftir snjóbílnum fór strax jarðýta í að snjómoka veginn, og í kjöl- far hennar brunabifreið. Þá lét ég kalla út bif- reiðastjóra olíubifreiðar BP og skyldi hann koma á eftir okkur út í Staðardal, en mér var kunnugt um að jarðýtan var með eldsneyti í minna lagi, enda stóð það á endum, þegar búið var að koma brunábifreið heim á Stað, og í gagnið, þá varð ýtan olíulaus, en þá var olíu- bíllinn þar við hendina. Vegurinn undir Spilli er víðast hvar mjög mjór, og á aðra höndina stórgrýtt fjara, en þverhníft klettabelti á hina eins og áður er sagt. Á þessum árstíma er þetta allt í klaka- böndum, en nú brá svo við að snjór var með allra minnsta móti, meðaltími á mokstur þarna undir Spilli er 3—5 klst. en nú var þetta mokað á 30 mín. grófmokað að vísu, því Bedford brunabifreið okkar er góð í snjó að leggja, en þegar við vorum undir svokölluðum Svörtu- 6 SLO KKVILIÐSMAÐU Rl N N

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.